Fréttablaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 11
11MIÐVIKUDAGUR 21. maí 2003
Ekkill argur:
Nóg komið
LONDON, AP Maður einn í Bretlandi
sem varð ekkill fyrir nokkru var
ekki ýkja sáttur við að konan sín
fengi ítrekað senda reikninga
vegna ógreiddra stöðumælasekta.
Hann skrifaði til baka að kona
sín væri látin en tveim árum síðar
héldu ítrekanir áfram að berast inn
um lúguna. Þær hættu ekki að birt-
ast fyrr en einn daginn er hann rölti
með ösku konu sinnar og dánarvott-
orð og sýndi borgarfulltrúa svart á
hvítu að konan væri látin. ■
Nemendur í fjarnámi:
Sjálfsagi og þroski nauðsynlegur
FJARNÁM Nemendafjöldi í fjarnámi
við Verkmenntaskólann á Akur-
eyri hefur aukist síðustu annir. Að
sögn Ingimars Árnasonar,
kennslustjóra fjarkennslu, eru
nemendur nú um 800. Mjög breið-
ur hópur nýtir sér möguleikann á
fjarnámi. „Það er allt frá nemend-
um í 10. bekk grunnskóla og upp í
sextugt fólk,“ segir Ingimar.
Ingimar segir 80% þeirra nem-
enda sem skrá sig í fjarnám í upp-
hafi annar skila sér í lokapróf.
Nokkur sjálfsagi og þroski er
nauðsynlegur til þess að fjarnám-
ið geti gengið vel og hefur eldri
nemendum því að sumu leyti
vegnað betur. „Eftir því sem
menn eru yngri þurfa þeir frekar
aðhaldið sem er í skólanum,“ seg-
ir Ingimar, sem tekur fram að það
sé þó alls ekki algilt. ■
FJARNÁM
Verkmenntaskólinn á Akureyri var fyrsti
skólinn sem bauð upp á fjarnám á fram-
haldsskólastigi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
BELGÍA, AP Nató er að stíga sín
fyrstu skref inn í Írak með því að
aðstoða Pólverja við að koma frið-
arsveitum inn í hið stríðshrjáða
land. Pólverjar vilja aðstoð Nató
við að setja sveitirnar saman, öfl-
un gagna og stuðning við alla
flutninga.
Forsvarsmenn Nató sögðu að
enginn meðlimur hefði enn mót-
mælt þessum stuðningi við Pól-
verja. Talsvert hefur verið talað
um frekari umsvif Nató sem frið-
arsveita í Írak en engin ákvörðun
verið tekin.
Er þetta í fyrsta sinn sem Nató
tekur þátt í aðgerðum utan Evr-
ópu. „Nató þarf að endurnýja sig,“
sagði Nicholas Burns, sendiherra
Bandaríkjanna hjá Nató. „Nató
þarf að vera þar sem vandamálin
eru og þetta eru fyrstu skrefin í
átt að því.“
Pólsku sveitunum er ætlað að
halda friðinn á svæðunum á milli
Breta og Bandaríkjamanna í suð-
urhluta Írak. ■
FRÁ FUNDI NATÓ
Nató vill styðja Pólverja við friðarstörf.
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154
www.teflon.is
LAKKVÖRN
BRYNGLJÁI
Á BÍLINN!
Blettun-djúphreinsun-alþrif.
Hlutverk Nató að breytast:
Pólskar sveitir til Íraks