Fréttablaðið - 21.05.2003, Side 2
2 21. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
“Ef trén eru í réttum jarðvegi geta
þeir líklega gert það.“
Landvernd stendur frammi fyrir miklum fjárhags-
örðugleikum sem ekki sér fyrir endann á. Ólöf
Guðný Valdimarsdóttir er formaður Landverndar.
Spurningdagsins
Ólöf, vaxa peningarnir ekki á
trjánum?
■ Evrópa
JAFNRÉTTI „Nú bíðum við eftir við-
brögðum Vinnueftirlitsins. Það
verður spennandi að sjá hvernig
brugðist verður við,“ segir Sigrún
Viktorsdóttir, mannfræðingur og
starfsmaður Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur, sem sent hefur
fyrsta eineltis-
málið til Vinnu-
eftirlitsins eftir
breytingar á
vinnulöggjöfinni
sem gengu í
gildi 15. mars
s í ð a s t l i ð i n n .
Með breytingun-
um er Vinnueft-
irlitinu gefið
vald til að rann-
saka eineltismál
á vinnustöðum
og grípa í tau-
mana ef þurfa
þykir. Fær
vinnueftirlitið
heimild til að
fara í viðkomandi fyrirtæki í
þeim tilgangi að fá botn í málin.
Sigrún Viktorsdóttir segir að 8-
12 prósent vinnandi manna verði
fyrir einelti á vinnustað einhvern
tíma á starfsævinni. Dregur Sig-
rún ekki í efa og er reyndar viss
um að fleiri eineltismál verði send
Vinueftirlitinu á næstunni í kjöl-
far fyrrgreindra breytinga á
vinnulöggjöfinni:
„Birtingarmyndir eineltis á
vinnustað eru margar og flóknar;
teygja sig allt frá útskúfun og hót-
unum yfir í almennar aðfinnslur um
vinnubrögð,“ segir Sigrún. „Konur
eru í miklum meirihluta þolenda,
eða um 70 prósent, en gerendur eru
af báðum kynjum og þar er enginn
munur á.“
Niðurstöður erlendra rannsókna
á eðli eineltis á vinnustað benda til
þess að grunnurinn að öllu saman sé
sá að reyna að flæma fórnarlambið
af vinnustað í stað þess að beita
uppsögn: „Með því móti firra ger-
endur sig þeirri ábyrgð sem fylgir
því að segja starfsmanni upp,
kannski af óljósum ástæðum,“ segir
Sigrún Viktorsdóttir.
Niðurstöðu Vinnueftirlitsins
vegna þessa eineltismáls er að
vænta innan tíðar. Kærandinn er
kona á miðjum aldri sem kært
hefur stjórnendur fyrirtækis sem
hún starfar hjá í Reykjavík fyrir
að gera sér dagleg störf erfið með
stöðugum athugasemdum og af-
skiptaleysi í bland. Sættir hún sig
ekki við það viðmót sem hún þarf
að búa við á vinnustað sínum.
eir@frettabladid.is
SIGRÚN VIKTORSDÓTTIR
Gerendur eineltis vilja oft firra sig þeirri ábyrgð sem fylgir því að segja starfsmanni upp.
Fyrsta eineltismálið
til Vinnueftirlitsins
Verslunarmannafélagið bíður nú viðbragða Vinnueftirlitsins vegna
fyrsta eineltismálsins. Kærandinn er kona í reykvísku fyrirtæki
sem finnst hún sniðgengin á vinnustað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
Ð
/R
Ó
B
ER
T
Júróbíll
SKODA OCTAVIA W/G 10/00.
Ekinn 28 þ. km. Vél 1600 cc. Beinskiptur.
Verð 1.140 þ. kr. www.toyota.is
„Neverných odmení a verných trestá“
Kauptu Júróbíl fyrir 24. maí.
Þú gætir unnið bíl
til ókeypis afnota
í heilt ár!
KONGÓ, AP Óbreyttir borgarar í
borginni Bunia í norðausturhluta
Kongó hafa sakað vígasveitir
Lendu-ættbálksins um mannát.
Ættbálkarnir Lendu og Hema
lögðu niður vopn fyrir fáeinum
dögum eftir að hafa barist hat-
rammlega í rúma viku.
Íbúar Bunia halda því fram að
vígasveitir Lendu-ættbálksins
hafi rist fórnarlömb sín á hol, rif-
ið úr þeim hjarta, lungu og lifur
og lagt sér líffærin til munns.
Það sem býr að baki þessari af-
brigðilegu hegðun er hjátrú og
óútskýranlegt hatur, að sögn
belgísks prests sem búsettur hef-
ur verið í Kongó í rúma þrjá ára-
tugi. Presturinn heldur því fram
að kynfæri sumra fórnar-
lambanna hafi verið skorin af í
þeim tilgangi að nota þau í sær-
ingar.
Sameinuðu þjóðirnar hafa tek-
ið þessar ásakanirnar mjög alvar-
lega og hafa þegar hrint af stað
rannsókn. Vígamenn kongóskra
ættbálka hafa áður gerst sekir um
mannát. ■
KONGÓSKIR FEÐGAR
Fjöldi þorpsbúa liggur særður á bráðabirgðasjúkrahúsum í Bunia eftir blóðug átök síðustu
daga.
Kongóskar vígasveitir sakaðar um mannát:
Líffæri rifin út og étin
VERSLUNIN DRAUMURINN
Lögreglan gerði húsleit í versluninni en vill
ekki upplýsa hvað var þess valdandi eða
hvort ábendingar hafi borist um að þar
væri eitthvað að finna. Tuttugu grömm af
fíkniefnum fundust við leitina.
Lögregluaðgerðir í
Draumnum:
Fundu
áfengi og
amfetamín
FÍKNIEFNAMÁL Tuttugu grömm af
amfetamíni fundust við leit í
versluninni Draumnum í fyrra-
kvöld. Lögreglan lokaði verslun-
inni og handtók þrjá menn. Einum
þeirra var sleppt fljótlega en hin-
ir tveir sátu í fangageymslu
áfram og voru yfirheyrðir í gær.
Þeim var sleppt eftir yfirheyrslur.
Lögreglan vildi ekki upplýsa
hvað var þess valdandi að leitað
var í versluninni. Auk fíkniefna
fannst eitthvað af áfengi. Heil-
brigðiseftirlitið var kallað til og
vann að því í gær að hreinsa út
skemmd matvæli og önnur
óhreinindi. ■
Þrítugur Grikki reif bæði augun
úr sér á flugvellinum í Aþenu eft-
ir að lögregla handtók hann
vegna skilorðsbundins dóms sem
hann hlaut nokkru áður. Maður-
inn var sendur á spítala þar sem
læknar reyndu að bjarga því sem
bjargað yrði.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Mikil ásókn er
í að eignast sumarhús í Súðavík ef
marka má þann fjölda tilboða sem
hreppnum barst í tvö einbýlishús
á snjóflóðasvæðinu í gömlu
byggðinni.
Hreppurinn bauð húsin til sölu
og mikil viðbrögð urðu því í gær
reyndust tilboðin vera 21 talsins.
Hæsta tilboðið hljóðaði upp á ríf-
lega 5,2 milljónir króna en það
lægsta upp á 250 þúsund krónur.
„Þetta eru tilboð frá fólki sem
á rætur á svæðinu. Súðavík er
sumarparadís sem margir kunna
orðið að meta. Hér þrefaldast
fjöldi íbúanna þegar best lætur á
sumri,“ segir
Ómar.
Þegar er fjöldi
húsa í gömlu
Súðavík í eigu
fólks annars stað-
ar af á landinu.
Ómar segir að
fyrstu húsin hafi
verið seld ódýrt
en verðmæti hús-
anna hafi síðan
mjakast upp á
við.
„Það er ákveðin vakning fyrir
Súðavík sem sumarstað,“ segir
Ómar sveitarstjóri.
Ákvörðun um sölu húsanna
verður tekin á fundi hrepps-
nefndar Súðavíkurhrepps í
næstu viku. ■
SÚÐAVÍK
Nesvegur 9 er annað tveggja húsa sem eru til sölu. Fimm aðilar buðu yfir fjórar milljónir
króna.
Einbýlishús á snjóflóðasvæði boðin til sölu:
Slegist um sumarhúsin í Súðavík
ÓMAR ÞÓR
JÓNSSON
Ánægður með
sumarparadísina í
Súðavík.
„ Birtingar-
myndir einelt-
is á vinnustað
eru margar
og flóknar;
teygja sig allt
frá útskúfun
og hótunum
yfir í almenn-
ar aðfinnslur
um vinnu-
brögð.
Miðausturlönd:
Varað við
falli Abbas
SÞ, AP Terje Röd-Larsen, æðsti
fulltrúi Sameinuðu þjóðanna sem
fjallar um málefni Miðaustur-
landa, segir að ríkisstjórn Mahm-
oud Abbas, forsætisráðherra
Palestínu, hrökklist frá völdum ef
sjálfsmorðsárásum linnir ekki og
Ísraelar sýna ekki samstarfsvilja.
Röd-Larsen lagði áherslu á að
Ísraelar og Palestínumenn yrðu
að vinna saman til að tryggja póli-
tíska framtíð Abbas. Forsætisráð-
herrann hefur heitið því að berj-
ast gegn árásum palestínskra
vígamanna og stöðva árásir á
Ísraela. ■
Borgarráð:
Deilt um
bæjarstæði
BORGARRÁÐ Borgarráðsfulltrúar
Sjálfstæðisflokks og Ólafur F.
Magnússon leggjast gegn bygg-
ingu hótels á bæjarstæði land-
námsbæjar Ingólfs.
Sjálfstæðismenn bókuðu á
borgarráðsfundi að bæjarstæðinu
væri ekki sýnd virðing með hótel-
byggingu. Nær væri að fornleifar
hefðu forgang sökum sögulegs
gildis. Þeir vilja breyta bæjar-
stæðinu og gamla kirkjugarðinum
í lítinn garð sem ferðamenn
myndu heimsækja.
Ólafur F. vill varðveita forn-
minjarnar á svæðinu og er mót-
fallinn því að þjóðargersemum
verði komið fyrir í kjallara hótels.
Borgarráðsfulltrúar Reykja-
víkurlistans létu bóka að vel fari á
að byggja upp í miðbænum ásamt
því að sýna fornminjar. ■
TERJE RÖD-
LARSEN
Segir Ísraela
þurfa að vinna
með Abbas vilji
þeir frið.