Fréttablaðið - 21.05.2003, Page 4

Fréttablaðið - 21.05.2003, Page 4
4 21. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR ■ Akureyri Hvernig líst þér á áframhaldandi stjórn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknar? Spurning dagsins í dag: Hvernig verð þú sumarfríinu? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 8,3% 11,1% Frekar illa 28,7% Hlutlaus 14,3%Frekar vel 37,5%Mjög vel Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Endurbygging Íraks kostnaðarsöm: Peningar af skornum skammti SVISS, AP Alþjóða heilbrigðisstofn- unin hefur engan veginn það fjár- magn sem til þarf til að koma lág- marksþjónustu á aftur í Írak. Þar er átt við stuðning við spítala landsins sem geta ekki greitt starfsfólki laun né keypt áríðandi sjúkragögn og lyf. Einnig er um að ræða fjárstuðning til að koma sorphirðumálum í gott lag en þar vantar mikið upp á. Skemmdir sem urðu á orku- veitum í landinu í stríðsátökum hafa leitt til þess að rafmagn fer af annars lagið, sem aftur veldur því að vatnsveitur hætta að dæla fersku vatni og skólp og drulla safnast fyrir í lögnum. Það aftur getur valdið því að drykkjarvatn spillist. „Við áttum von á því að ástand- ið yrði miklu verra,“ sagði Khalid Shibib, erindreki heilbrigðisstofn- unarinnar í Írak. Samt er ljóst að það vantar 170 milljón dollara til að koma þessum málum í gott horf. Starfsmenn Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar ganga nú bónveg á milli velmegandi þjóða heims og fara fram á aðstoð. ■ Sekur um trúgirni en ekki misferli Hrafnkell A. Jónsson, fráfarandi stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Austurlands, mun gera sjóðfélögum grein fyrir málum á ársfundi sjóðsins í næstu viku. Hann ætlar að hreinsa mannorð sitt. LÍFEYRIR „Mínar ástæður fyrir að hætta eru þær að þótt ég telji að ég búi yfir þekkingu sem hefði gagnast sjóðnum er mér er ekki sætt undir slíkum opinberum ásökunum,“ segir Hrafnkell A. Jónsson, stjórnarformaður Líf- eyrissjóðs Aust- urlands, sem láta mun af s t j ó r n a r f o r - mennsku á árs- fundi sjóðsins á m á n u d a g i n n . Allir stjórnar- menn sjóðsins munu þá hætta í kjölfar mikillar gagnrýni vegna stórtaps. Fjórir sjóðfélagar kærðu stjórnarmennina og fyrr- um framkvæmdastjóra til ríkis- saksóknara fyrir meint lögbrot við stjórn sjóðsins. Hrafnkell seg- ir ekkert hafa við það að athuga að sjóðfélagar leiti réttar síns. En hann segist ekki hafa séð kæruna og hann viti ekki hverjir standi að baki henni. „Ég tel þá aðferð að senda fjöl- miðlum kæruna vera með fá- dæmum lúaleg vinnubrögð,“ seg- ir Hrafnkell. Hrafnkell segir að stjórnar- menn muni sitja uppi með ákveð- inn stimpil hver sem niðurstaða rannsóknarinnar verði. „Með því að koma kærunni í fjölmiðla hafa kærendur sett blett á mannorð okkar,“ segir hann. „Ég er kannski sekur um trú- girni en ég er ekki sekur um vís- vitandi misferli. Ég mun leggja mig allan fram um að hreinsa þann blett af mér. Þetta er þung- ur baggi að bera eftir 25 ára starf í verkalýðshreyfingunni,“ segir Hrafnkell. Hrafnkell segist vonast til að ný stjórn muni ekki rifta sam- starfinu við Kaupþing, sem ann- ast hefur vörslu sjóðsins. „Það yrði aðeins eitt áfallið enn. Mitt mat er að Kaupþing hafi staðið sig vel og ekki við stjórnendur þar að sakast í neinu. Megintapið er vegna þess að menn voru með áhættusama fjár- festingarstefnu sem miklu skil- aði á meðan allt lék í lyndi. Að sama skapi varð skellurinn mikill þegar syrti í álinn á mörkuðum,“ segir Hrafnkell og bendir á að þrátt fyrir allt sé sjóðurinn með 2,73 prósent ávöxtun ef litið er til síðustu 10 ára. „Þetta er ekkert til fyrirmynd- ar en sönnun þess að sjóðfélagar hafa ekki tapað iðgjöldum sínum. Sjóðurinn á bjarta framtíð í nú- verandi stöðu og engin ástæða til breytinga,“ segir Hrafnkell. rt@frettabladid.is FORSETI ÍRANS Engir al Kaída-meðlimir í landinu. Skammt stórra högga á milli: Bandaríkin ásaka Írani ÍRAN, AP Yfirvöld í Íran harðneita ásökunum þess efnis að þau skjóti skjólshúsi yfir grunaða hryðju- verkamenn al Kaída. Bandaríkja- menn hafa leitt að því líkum að forsprakkar sprenginganna í Riyadh hafi stýrt aðgerðum frá Íran. „Við vitum að háttsettur með- limur al Kaída er í Íran,“ sagði Donald Rumsfeld, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, en gaf ekki frekari útskýringar. Grunur hefur leikið á að fjórir meðlimir hafi að- setur í landinu, þar á meðal sonur Osama Bin Laden, Saad Bin Laden. Talsmaður Íransstjórnar leiddi að því getum að Bandaríkjamenn væru að fiska og dreifa athyglinni frá misheppnuðum tilraunum sín- um til að hindra hryðjuverk með því að ásaka aðrar þjóðir. ■ 300 KRÓNUR Á TÍMANN Laun unglinga í sumarvinnu hjá Akur- eyrarbæ hafa verið hækkuð um þrjú prósent frá í fyrra. Krakkar sem eru 14 ára fá 302 krónur á tímann og 15 ára fá 346 krónur. INNBROTSÞJÓFAR HANDTEKNIR Tveir menn voru handteknir í Reykjavík í fyrrinótt grunaðir um að hafa brotist inn í húsnæði við Sævarhöfða. Ekki var ljóst í gær hvort einhverju hafi verið stolið í innbrotinu. NAGLABYSSA Í HÖFUÐIÐ Nagla- byssa féll á höfuð manns í fyrra- dag þegar hann var við vinnu í ný- byggingu í Vogum. Maðurinn var sendur til skoðunar á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja og leiddi skoð- un í ljós að hann væri ekki alvar- lega slasaður. Þá fékk lögreglan í Keflavík tilkynningu um að brot- ist hefði verið inn í golfskálann í Sandgerði. Fimm nýjum Rawling- golfkylfum var stolið. VÖKNUÐU VIÐ HVELL Íbúar við götu í austurborg Reykjavíkur vöknuðu við mikinn hvell í fyrri- nótt. Þegar farið var að kanna or- sakir hávaðans kom í ljós að keyrt hafði verið utan í nokkra bíla í hverfinu og þurfti kranabíl til að fjarlægja tvo bíla. Ögmundur Jónasson um nýja ríkisstjórn: Þreytulegt par STJÓRNARMYNDUN „Ég neita því ekki að mér finnst þetta ósköp þreytulegt par, framsókn og íhald, eftir að búið er að taka þau niður af flettiskiltunum, farðinn er far- inn af andlitunum, brosin horfin og auglýsingaglamrið þagnað,“ segir Ögmundur Jónasson, þing- maður Vinstri grænna, um vænt- anlegt áframhald á núverandi rík- isstjórnarsamstarfi. „Þjóðarinnar vegna vona ég að ríkisstjórninni muni takast betur upp við lands- stjórnina en á síðasta kjörtíma- bili.“ Ögmundur segir þessa niður- stöðu alltaf hafa verið fyrirsjáan- lega í sínum huga, að því gefnu að meirihlutinn héldi velli. „Fram- sókn meinti aldrei neitt með því að ætla að líta til annarra átta eft- ir kosningar,“ segir Ögmundur. „Framsókn stendur til hægri og horfir til hægri.“ ■ MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON Hefði fremur kosið stjórn Samfylkingar, Framsóknarflokks og Frjálslyndra. Varaformaður Frjálslyndra: Vonbrigði fyrir þjóðina STJÓRNARMYNDUN „Þetta hljóta að vera vonbrigði fyrir þjóðina,“ segir Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokks- ins, um ríkisstjórnarmyndun. „Þessir flokkar ætla ekki að hlusta á vilja hennar. Þeir ætla bara að setja hausinn undir sig og halda áfram. Ég er ekki viss um að þeim muni takast það áfalla- laust. Þjóðin gaf þeim báðum gult spjald í kosningunum.“ Magnús segist fremur hafa kosið stjórn Samfylkingar, Fram- sóknarflokks og Frjálslyndra. „Ég held að það hefði getað orðið ágæt stjórn og vinsæl,“ segir hann. ■ STJÓRNARMYNDUN Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaþingmaður Sam- fylkingarinnar, segist ekki búast við miklum breytingum í lands- stjórninni með áframhaldandi rík- isstjórnarsamstarfi Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks. „Mér líst náttúrlega ekki vel á þetta,“ segir Ingibjörg Sólrún. „Þetta er ekki spennandi stjórn.“ Ingibjörg Sólrún segir það ekki hafa komið sér á óvart hversu stuttan tíma það hafi tekið flokk- ana að mynda nýja stjórn. „Maður hafði það sterklega á tilfinningunni að þeir væru búnir að splæsa sig saman fyrir kosn- ingarnar, þó Halldór hafi tekið smá hliðarskref á lokasprettinum. Ég held því miður að það hafi ver- ið meira taktískt hjá honum.“ Ingibjörg Sólrún segir að ef stjórnarflokkarnir ákveði ekki að endurskoða fiskveiðistjórnunar- kerfið með einhverjum hætti séu þeir að fara illa að ráði sínu. Þjóð- in hafi sent skýr skilaboð um að hún vildi breytingar á því. ■ VANTAR LYF OG SJÚKRAGÖGN Spítalar eiga ekki nauðsynjar og starfsfólk fær ekki greitt. ESKIFJÖRÐUR Málefni Lífeyrissjóðs Austurlands hefur borið hátt að undanförnu. Stórtap sjóðsins hefur orðið til þess að stjórnin hættir öll. „Þetta er þungur baggi að bera eftir 25 ára starf í verkalýðs- hreyfingunni. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Ingibjörg Sólrún segir það ekki hafa komið sér á óvart hversu stuttan tíma það hafi tekið flokkana að mynda nýja stjórn. ■ Lögreglufréttir FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Mjög illa Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur líst ekki vel á stjórnina: Ekki spennandi stjórn ÖGMUNDUR JÓNASSON Er engu hrifnari af nýrri ríkisstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks en eldri stjórnum þeirra flokka.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.