Fréttablaðið - 21.05.2003, Síða 6
HLUTABRÉF Fjögur fyrirtæki á að-
allista Kauphallar Íslands verða
afskráð úr Kauphöllinni á næst-
unni. Félögin fylgja í fótspor
margra annarra félaga sem tekin
hafa verið af opnum markaði.
Stærsta félagið
sem er að hverfa
úr kauphöllinni er
Baugur, sem er að
markaðsvirði um
26 milljarðar
króna.
Hópur í kringum Bónusfeðga
sem á félagið Mundil hefur
eignast ríflega 60% í Baugi. Þar
sem Mundill á yfir helming í
Baugi er Mundli skylt að gera
öðrum hluthöfum tilboð um yfir-
töku á hlutabréfum þeirra. For-
svarsmenn Mundils segja aðild-
ina að Kauphöllinni vera starf-
semi Baugs fjötur um fót, meðal
annars vegna krafna um upplýs-
ingaskyldu og tíð uppgjör.
Íslenskir aðalverktakar (ÍAV)
eru einnig á leið úr Kauphöllinni
eftir að hópur í kringum Stefán
Friðfinnsson forstjóra keypti tæp-
lega 40% hlut ríkisins í félaginu.
Eign hópsins er komin yfir 50% og
hefur öðrum hluthöfum verið gert
tilboð um að yfirtaka hlutabréf
þeirra. Markaðsvirði ÍAV er nú
tæpir 5,2 milljarða króna.
Þriðja félagið sem boðað hefur
verið að hverfi úr Kauphöllinni er
Olíuverzlun Íslands (Olís). Mark-
aðsvirði þess er 6,7 milljarðar
króna. Þar hafa Einar Benedikts-
son forstjóri og samstarfsmenn
hans náð meirihluta. Einar hefur
sagt að afskráning félagsins teng-
ist ekki síður þeirri staðreynd að
lítill hreyfanleiki hafi verið á
hlutabréfum félagsins eins og eigi
við um fleiri félög í Kauphöllinni.
Yfirtökutilboð hefur einnig
borist í Ker hf., sem áður hét
Olíufélagið og á Esso auk þess
að hafa átt stóran hlut í Olís.
Markaðsvirði Kers er rúmir 12
milljarðar króna.
Frá því Kauphöllin var sett á
fót fyrir rúmum áratug hafa 35
félög verið afskráð, oft vegna
sameiningar við önnur fyrir-
tæki sem áfram eru skráð í
Kauphöllinni, en mörg félög
hafa verið afskráð eftir að einn
aðili hefur eignast meirihluta
hlutabréfa eins og í áðurnefnd-
um tilvikum. Nokkur nýjustu
dæmin um þetta eru Keflavíkur-
verktakar, Húsasmiðjan, Frum-
herji og Íslenska járnblendi-
félagið.
gar@frettabladid.is
6 21. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
AFSKRÁNINGAR ÚR KAUP-
HÖLL ÍSLANDS FRÁ UPPHAFI
Fjárfestingarfélag Íslands, Hlutabr.sjóður
VÍB, Jökull, Íslenskar sjávarafurðir,
Krossanes, Íslandsbanki, Fjárfestingar-
banki atvinnulífs, Hlutabréfasjóðurinn Ís-
haf, Hlutabréfasjóður Norðurlands, Sam-
vinnusjóður Íslands, Sjávarútvegssjóður
Íslands, Fóðurblandan, Básafell, Hans
Petersen, Frjálsi fjárfestingarbankinn, Al-
menni hlutabréfasjóðurinn, Skinnaiðnað-
ur, Héðinn, Vaxtarsjóðurinn, Samvinnu-
ferðir Landsýn, Kaupfélag Eyfirðinga,
Keflavíkurverktakar, Loðnuvinnslan, Út-
gerðarfélag Akureyringa, Talenta Há-
tækni, Skagstrendingur, Húsasmiðjan,
Delta, Þróunarfélag Íslands, Auðlind,
Haraldur Böðvarsson, Hlutabréfasjóður
Íslands, Frumherji, Íslenska járnblendifé-
lagið, SR-Mjöl.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 73.68 0,66%
Sterlingspund 120.27 0,39%
Dönsk króna 11.56 0,26%
Evra 85.80 0,22%
Gengisvístala krónu 120,86 0,79%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 284
Velta 9.934 milljónir
ICEX-15 1.431 0,66%
Mestu viðskipti
Baugur Group hf. 1.575.224.558
Kaupþing banki hf. 504.302.985
Pharmaco hf. 443.987.959
Mesta hækkun
Hampiðjan hf. 4,44%
Nýherji hf. 3,95%
Kögun hf. 3,09%
Mesta lækkun
Tryggingamiðstöðin hf. -2,80%
Sæplast hf. -1,30%
Íslandssími hf. -1,24%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8530,8 0,4%
Nasdaq*: 1498,8 0,4%
FTSE: 3971,6 0,8%
DAX: 2861,2 0,4%
NIKKEI: 8059,5 0,3%
S&P*: 921,8 0,1%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
Veistusvarið?
1Fimm stjórnendur Olís, þar á meðalforstjórinn, hafa keypt rúmlega 70 %
hlut í fyrirtækinu. Hvað heitir forstjóri
fyrirtækisins?
2Smáríki í Asíu, sem var í 24 ár undirjárnhæl indónesískra stjórnvalda,
fagnar um þessar mundir eins árs lýðræð-
isafmæli. Hvað heitir landið?
3Skáldsagan Augun þín sáu mig hefurverið seld til forlags í Finnlandi. Hver
er höfundur bókarinnar?
Svörin eru á bls. 30
SUÐUR-KÓREA, AP Embættismenn
frá Norður-Kóreu vara nágranna
sína í suðri við „hræðilegu slysi“
ef þeir voga sér að setja út á
kjarnorkutilraunir Norður-Kóreu-
manna í viðræðum þjóðanna.
Þjóðirnar tvær eiga í viðræð-
um um efnahagsmál innan Kóreu
og kom þessi yfirlýsing eftir fund
forseta Suður-Kóreu, Roh Moo-
hyun, við forseta Bandaríkjanna,
George Bush. Þar kom fram að
hvorugur forsetanna gæti liðið
kjarnorkuuppbyggingu Norður-
Kóreumanna.
Bandaríkjastjórn hefur gefið
út yfirlýsingu þess efnis að frek-
ari aðgerðir gætu orðið nauðsyn
ef Norður-Kóreumenn halda
áfram tilraunum sínum með
kjarnorku.
Fundur Kóreuríkjanna hefur
það markmið að ræða málefni
sem snerta báðar þjóðir, s.s. járn-
brautir og vegi sem liggja yfir
landamærin.
Ástandið hefur verið erfitt síð-
an Norður-Kóreumenn viður-
kenndu í október að kjarnorku-
áætlun þeirra væri í fullum gangi
þrátt fyrir alþjóðlega samninga
um annað. ■
MÓTMÆLI Í SUÐUR-KÓREU
Margir íbúar Suður-Kóreu hafa gagnrýnt
afstöðu stjórnvalda til Norður-Kóreu
harkalega.
Kjarnorkutilraunir Norður-Kóreumanna:
Vara Suður-Kóreumenn við íhlutun
SLOBODAN MILOSEVIC
Saksóknarar óskuðu eftir 200 dögum í við-
bót til þess að leggja fram sönnunargögn
til stuðnings þeim 66 ákærum sem gefnar
hafa verið út á hendur Milosevic.
Réttarhöld framlengd:
Fá 100 daga
í viðbót
HAAG, AP Stríðsglæpadómstóll
Sameinuðu þjóðanna hefur sam-
þykkt að veita saksóknurum 100
daga í viðbót til þess að sækja mál
sitt gegn Slobodan Milosevic,
fyrrum forseta Júgóslavíu. Í ljósi
þessarar ákvörðunar er dómsupp-
kvaðningar ekki að vænta fyrr en
seint árið 2005.
Milosevic, sem sér sjálfur um
að halda uppi vörnum í málinu,
hefur misst úr 54 daga síðan rétt-
arhöldin hófust vegna veikinda.
Gert hafði verið ráð fyrir því að
saksóknarar lykju máli sínu 16.
maí síðastliðinn en þeir fóru fram
á að fá 200 daga í viðbót til að
leggja fram sönnunargögn og yf-
irheyra vitni. ■
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN
Ökutækjatryggingar skiluðu tæpum 37
milljónum króna í hagnað, samanborið við
10 milljónir á sama tíma í fyrra.
Tryggingamiðstöðin:
Aukinn
hagnaður
VIÐSKIPTI Tryggingamiðstöðin var
rekin með um 160 milljóna króna
hagnaði fyrstu þrjá mánuði árs-
ins. Á sama tímabili í fyrra nam
hagnaðurinn rúmum 113 milljón-
um.
Í fréttatilkynningu frá fyrir-
tækinu kemur fram að hagnaður
af vátryggingarekstri hafi verið
um 120 milljónir. Þar af skiluðu
lögboðnar ökutækjatryggingar
fyrirtækinu tæpum 37 milljónum,
samanborið við 10 milljónir á
sama tíma í fyrra.
Að mati stjórnenda Trygginga-
miðstöðvarinnar var afkoman við-
unandi og í samræmi við vænting-
ar. Arðsemi eigin fjár var 3,47% á
tímabilinu, eða nálægt 14% á árs-
grundvelli. ■
HESTAR
Stefnt er að því að bjóða upp á nám í
söðlasmíði við Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Fjölbrautaskóli
Suðurlands:
Býður upp á
söðlasmíði
SKÓLAR Fjölbrautaskóli Suður-
lands stefnir að því að bjóða upp á
nám í söðlasmíði næsta haust. Að
sögn Þórarins Ingólfssonar að-
stoðarskólameistara eru nokkur
ár síðan söðlasmíði var síðast í
boði við skólann. Skráningar hefj-
ast í næstu viku og í framhaldi af
því kemur í ljós hvort nægur
fjöldi nemenda fæst til þess að
hægt verði að bjóða upp á námið.
Að sögn Þórarins vilja hesta-
menn handgerða söðla. „Það hefur
hver sinn stíl og séreinkenni,“
segir hann. ■
Leitað að manni:
Lá við
vegkant
LEIT Óttast var á laugardagskvöld
um afdrif Bandaríkjamanns af
Keflavíkurflugvelli sem var einn á
jeppaferðalagi um hálendið. Hafði
hann látið kunningja sinn vita af sér
símleiðis og skýrt honum frá því að
bíllinn hans væri fastur á fjallvegi í
nágrenni Heklu. Nánari lýsing lá
ekki fyrir og ekkert símasamband
náðist við manninn, sem sagðist
vera á göngu, blautur og kaldur.
Björgunarsveitir á Hellu og Hvols-
velli fóru til leitar. Fannst maðurinn
undir morgun í svefnpoka við veg-
kant einn kílómetra frá bílnum.
Hann var vel á sig kominn en nokk-
ur sárfættur eftir gönguna. ■
55 erlend fiskiskip að veiðum:
Dræm veiði á Reykjaneshrygg
SJÁVARÚTVEGUR Landhelgisgæslan
kannaði ástandið á veiðum á
Reykjaneshrygg í gær. Í ljós kom
að fimmtíu og fimm erlend fiski-
skip voru að veiðum við lögsögu-
mörkin. Eitt erlent olíuskip var
einnig á svæðinu. Þá voru fjögur
íslensk úthafskarfaveiðiskip að
veiðum rétt innan við lögsögu-
mörkin.
Þrettán erlendu veiðiskipanna
eru frá ríkjum sem eru ekki aðilar
að Norðaustur-Atlantshafsfisk-
veiðinefndinni (NEAFC) og eru
þar af leiðandi að veiða utan
kvóta. Þar af eru fimm skip frá
Litháen, eitt frá Lettlandi, fimm
frá Dóminíska lýðveldinu og tvö
frá Belís. Samkvæmt upplýsing-
um frá Landhelgisgæslunni er
dræm veiði á svæðinu.
Fiskveiðinefndin NEAFC hefur
úthlutað utansamningsþjóðum
1.200 tonna úthafskarfakvóta ár-
lega en í fyrra fóru þau langt
fram yfir þau mörk og er talið að
þau hafi veitt alls 30.000 tonn. Ís-
lendingar hafa heimild til að veiða
alls 55 þúsund tonn af úthafskarfa
á stjórnunarsvæði Fiskveiði-
nefndarinnar. ■
NEAFC-SVÆÐIÐ
NEAFC-svæðið er sýnt blálitað. Árlega er
utansamningsþjóðum úthlutað 1.200
tonna úthafskarfakvóta en í fyrra fóru þau
langt fram yfir þau mörk. Kort: Landhelgis-
gæslan.
Flóttinn úr
Kauphöllinni
Fjögur fyrirtæki að samtals markaðsverðmæti nærri 52 milljarðar króna
hætta að vera almenningshlutafélög innan tíðar. Þau fylgja í spor
margra annarra fyrirtækja sem skráð hafa verið úr Kauphöll Íslands.
KAUPHÖLLIN
Hvert fyrirtækið á fætur öðru hefur verið yfirtekið af þeim sem ráða meirihluta hlutabréfa
og skráð úr Kauphöll Íslands.
■
Frá því Kaup-
höllin var sett á
fót hafa 35 fé-
lög verið af-
skráð.