Fréttablaðið - 21.05.2003, Page 8
8 21. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
VORSTEMNINGIN
Þau hafa aldrei verið full svo
snemma.
Þorsteinn Hilmarsson upplýsingafulltrúi
um lón Landvirkjunar. DV, 20. maí.
EKKI STJÓRNARSAMSTARF
Ég hef verið þeirrar skoðunar að
stjórnarsáttmálar eigi að vera
stuttir.
Davíð Oddsson. DV, 20. maí.
ÁSAMT FLEIRU
Aflaskipið Guðrún Gísladóttir
þarf að komast upp á yfirborðið.
Gunnar Guðmundsson, 20. maí.
Orðrétt
SÁDI ARABÍA, AP Bandaríska sendi-
ráðinu í Riyadh, höfuðborg Sádi-
Arabíu, hefur verið lokað tíma-
bundið vegna ótta um fleiri yfir-
vofandi hryðjuverkaárásir.
Yfirvöld í Sádi-Arabíu telja
sig hafa góðar heimildir fyrir
því að 50 herskáir múslimar séu
í þann mund að skipuleggja
sjálfsmorðsárásir víðs vegar í
landinu. Telja þau einnig að fyr-
irhuguð skotmörk séu líklega
bandarísk og hafa þess vegna
ráðlagt sendiherra Bandaríkj-
anna að loka sendiráðinu og öðr-
um konsúlötum tímabundið.
„Stjórnvöld hafa gert allt sem
í þeirra valdi stendur til að
koma í veg fyrir hryðjuverk,“
sagði prins Saud al-Faisal, utan-
ríkisráðherra Sádi-Arabíu. „Það
eina sem við gerum núna er að
vona það besta og óttast það ver-
sta.“
Hópur 60 rannsóknarmanna
frá FBI og öðrum öryggisstofn-
unum Bandaríkjanna hafa lið-
sinnt Sádum undanfarið í rann-
sókn á sprengingum sem urðu
34 að aldurtila fyrir stuttu. ■
FRÁ RIYADH
Líkur benda til að fleiri árásir séu yfirvof-
andi.
Mikil hræðsla við fleiri hryðjuverk:
Óttast það versta
Auglýsingaherferð í
Brasilíu:
Holdsveiki
útrýmt
BRASILÍA, AP Brasilísk stjórnvöld
ætla að berjast við holdsveiki
með auglýsingaherferð sem sýn-
ir fallega kroppa sóla sig á
ströndinni.
Holdsveiki er enn til staðar í
landinu og vegna þess hve fólk
með veikina er illa séð hefur
reynst erfitt að finna þá sem
verst þjást. Stjórnvöld vona að
auglýsingarnar auk þess að
bjóða fría meðferð á spítölum
landsins beri þann árangur að
holdsveiki verði útrýmt árið
2005. ■
Heilbrigðisdeild - Iðjuþjálfun
Krefjandi og skemmtilegt nám
Ég flutti til Akureyrar fyrir fjórum árum til að læra iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri og sé
alls ekki eftir því að hafa komið hingað norður. Þetta eru búin að vera fjögur frábær ár, ég hef
kynnst fullt af fólki og námið er búið að vera krefjandi en mjög skemmtilegt.
Kristjana Milla Snorradóttir
Nemandi á 4. ári í iðjuþjálfun
Umsóknarfrestur er til 5. júní 2003
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í afgreiðslu háskólans á
Sólborg (sími 463 0900) og á heimasíðunni, www.unak.is
Nám í iðjuþjálfun tekur fjögur ár til B.Sc. gráðu. Nemendur öðlast þekkingu á byggingu
og starfsemi huga, heila og líkama ásamt því að fá innsýn í sjúkdóma, áföll og annað
sem getur ógnað iðju, heilsu og vellíðan og læra fjölbreyttar aðferðir til að koma í veg
fyrir og takast á við vanda fólks. Iðjuþjálfar starfa hjá ýmsum heilbrigðisstofnunum, í
félagsþjónustunni, skólum, hjá félagasamtökum og fyrirtækjum.
FLUGVÉL SNÚIÐ VIÐ Flugvél með
utanríkisráðherra Danmerkur
innanborðs, sem er í opinberu
ferðalagi í Miðausturlöndum,
var óvænt snúið við. Ástæðan
var sú að einn meðlimur áhafn-
arinnar fann tóman kassa með
grunsamlegri orðsendingu. Ótt-
ast var að um sprengjuhótun
væri að ræða en svo var ekki.
Vélin var á leið frá Sýrlandi til
Sádi-Arabíu.
SPRENGING Á KAFFIHÚSI Ein kona
lést og önnur særðist þegar
sprengja sprakk á salerni á kaffi-
húsi í miðborg Ankara, höfuðborg-
ar Tyrklands. Grunur leikur á því
að konan sem fórst hafi verið með
sprengjuna á sér og hún hafi
sprungið áður en konunni tókst að
koma henni fyrir á réttum stað.
Enginn hefur lýst ábyrgð á tilræð-
inu á hendur sér og ekki er vitað
hvers vegna það var framið.
■ Evrópa
CASABLANCA, AP Marokkósku lög-
reglunni hefur tekist að bera
kennsl á hryðjuverkamennina
sem létust í sjálfsmorðsárásunum
í Casablanca um helgina. Reynd-
ust þeir allir vera ungir Marokkó-
ar og flestir þeirra námsmenn.
Einn árásarmannanna lifði af og
hefur, að sögn lögreglunnar, veitt
mikilvægar upplýsingar varðandi
tengsl árásarmannanna við al-
þjóðleg hryðjuverkasamtök.
Upphaflega var álitið að árás-
irnar fimm hefðu verið vandlega
skipulagðar en við nánari athugun
hefur komið í ljós að hryðjuverka-
mennirnir hafa að líkindum mis-
reiknað sig þegar þeir völdu skot-
mörk sín. Þykir það benda til þess
að mennirnir hafi ekki verið á
vegum háþróaðra hryðjuverka-
samtaka á borð við al Kaída.
Einn árásarmannanna
sprengdi sig í loft upp hjá gömlum
gosbrunni og varð valdur að
dauða þriggja múslíma. Flest
bendir til þess að hann hafi ætlað
að stilla sér upp við annan gos-
brunn skammt frá kirkjugarði
gyðinga. Á Hotel Farah reyndu
hryðjuverkamennirnir árangurs-
laust að brjótast fram hjá öryggis-
vörðum. Sprengdu þeir að lokum
sprengjur sínar við innganginn
með þeim afleiðingum að verðirn-
ir létu lífið. Að lokum hefur verið
bent á að menningarmiðstöð gyð-
inga, þar sem ein sprengjan
sprakk, var lokuð og mannlaus
þegar árásin var gerð. ■
HEIMKYNNI HRYÐJUVERKAMANN-
ANNA
Marokkóskar öryggissveitir telja að margir
árásarmannanna hafi komið frá fátækra-
hverfinu Sidi Moumen í Casablanca.
Lögreglan hefur borið kennsl á árásarmennina:
Ungir og illa
skipulagðir
SRI LANKA, AP Tala látinna í flóðum
og aurskriðum sem gengið hafa
yfir Sri Lanka síðustu daga er
komin yfir 200 manns og 200 ann-
arra er saknað. Að minnsta kosti
60 þúsund hús eru skemmd eða
eyðilögð. Eru þetta verstu nátt-
úruhamfarir á eyjunni í langan
tíma.
Þúsundir manna sneru til síns
heima eftir að hafa flúið verstu
rigningarnar og fundu hús sín
hrunin eða horfin og ringulreið
greip um sig. Matarskortur er far-
inn að gera vart við sig og hafa
hjálparstofnanir víðs vegar í
heiminum þegar sent matvæli og
klæði til landsins.
Sólin skein í fyrsta sinn eftir
miklar rigningar og gerði þeim
sem enn eiga þak yfir höfuð kleift
að hefja hreinsunaraðgerðir. Raf-
magn hefur einnig komist á aftur
í hluta landsins.
Rigningarnar hófust í þann
mund sem mikil hátíð stóð yfir til
að heiðra fæðingu, dauða og upp-
lifanir Búdda. ■
FRÁ RATNAPURA
Það svæði sem orðið hefur harðast úti í flóðunum.
Íbúar Sri Lanka snúa til síns heima:
Aðstæður hræðilegar