Fréttablaðið - 21.05.2003, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 21. maí 2003
SUMARSKÓLAR AÐ HEFJAST
Sumarskólarnir byrja um það leyti sem
öðrum skólum landsins er slitið.
Sumarskólastarfið að
hefjast:
Í skólann
að sumri
SUMARSKÓLI Tveir sumarskólar
verða starfræktir í sumar, Sumar-
skólinn í FB og Sumarskólinn. Að
sögn Ólafs Hauks Johnson, skóla-
stjóra Sumarskólans, hefur verið
stöðug aukning nemenda ár frá
ári síðan skólinn var stofnaður.
Rúmlega 600 nemendur stunduðu
nám við skólann síðasta sumar.
„Þetta eru áfangar á framhalds-
skólastigi sem nemendur geta
tekið og fengið síðan metna inn í
sína skóla,“ segir Ólafur, sem seg-
ir að stærðfræði og íslenska séu
vinsælustu greinarnar.
Að sögn Ólafs eru ástæður
þess að fólk fer í sumarskóla að
minnsta kosti tvíþættar. „Það eru
nemendur sem hafa fallið og eru
að bæta upp fyrir það,“ segir
hann. „En ekki síður eru hér dug-
legir nemendur sem vilja flýta
fyrir sér í náminu.“
„Ég fór í sumarskóla til að geta
útskrifast á þremur og hálfu ári,“
segir María Dalberg, nemandi
Menntaskólans við Hamrahlíð. Að
hennar sögn var nokkuð álag að
vera bæði í sumarskólanum og í
fullu starfi. Sumarskólinn stendur
líka aðeins yfir í mánuð en farið
er yfir námsefni heillar annar í
framhaldsskóla. ■
SMS sífellt vinsælli:
Þú ert
rekinn
ÁSTRALÍA, AP Maður í Ástralíu hefur
lögsótt fyrrum atvinnurekanda
sinn fyrir að segja sér upp með
smáskilaboðum. „Þú vinnur ekki
lengur fyrir Umferðarþjónustu JNI
og hefur fyrirgert öllum þínum
rétti,“ sögðu boðin.
Talsmenn JNI segja þessu þver-
öfugt farið, maðurinn hafi sent upp-
sögn með SMS og þeir svarað dag-
inn eftir á sama máta. „Uppsögnin
var á ákaflega litríku máli.“
Forsvarsmenn fjarskiptamála í
landinu mæla eindregið með gam-
aldags aðferðum eins og bréfsefni
eða fundum með viðkomandi í stað
þess að nota nútíma tækni. ■