Fréttablaðið - 21.05.2003, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 21. maí 2003
ALDRAÐIR Eldri borgarar gera
kröfu til stjórnvalda um að efla
beri Framkvæmdasjóð aldraðra
til aukinnar uppbyggingar og
þjónustu.
Þetta kom fram á landsþingi
eldri borgara en Benedikt Dav-
íðsson, formaður Landssam-
bandsins, segir að kröfur fund-
arins beinist að nýrri ríkis-
stjórn.
Þá var samþykkt að heima-
hjúkrun verði forgangsverkefni
í samstarfi við sveitarfélögin í
landinu að höfðu samráði við
sambandið. Benedikt segir að
meginviðfangsefni fundarins
hafi verið aðbúnaður á sjúkra-
húsum, hjúkrunarheimilum og í
heimahúsum en öll þjónusta
heimahjúkrunar sé í skötulíki.
Auk þess hafi almannatrygg-
ingakerfið og skattamál verið
mönnum mjög ofarlega í huga.
Landsfundurinn leggur
einnig til að hver vistmaður á
öldrunarheimilum eigi kost á
einbýli, nema annars sé óskað.
Einnig þurfi að athuga hver
munurinn sé á rekstrarkostnaði
á litlum og stórum öldrunar-
heimilum.
Landsfundurinn mótmælir
þeim seinagangi og drætti sem
hefur orðið á opnun hjúkrunar-
heimilisins á Vífilsstöðum og
minnir á að þrátt fyrir fjölgun
hjúkrunarrýma á síðasta ári hafi
biðlistar lengst verulega.
Þá lýsir fundurinn vanþóknun
sinni á tillögum stjórnmála-
flokka um breytingar á skatta-
lögum sem ekki eru líklegar til
tekjujöfnunar í þjóðfélaginu
heldur hins gagnstæða.
Innan Landssambands eldri
borgara eru 16.500 félagsmenn
víðs vegar að af landinu. ■
BENEDIKT DAVÍÐSSON, FORMAÐUR
LANDSSAMBANDS ELDRI BORGARA
Skattamál og almannatryggingagreiðslur
voru mönnum ofarlega í huga.
Landsfundur eldri borgara:
Þjónusta í heimahúsum í skötulíki
PABBI KOMINN HEIM
Bandaríska liðþjálfanum John Hernandez
var vel fagnað af syni sínum og eiginkonu
þegar hann sneru aftur heim í herstöðina í
Illesheim í Þýskalandi eftir sex mánaða
dvöl í Írak.
Stangveiði:
Góð veiði
í silung
STANGVEIÐI Silungsveiði á stöng
gengur vel þessa dagana að því er
segir á heimasíðu Stangaveiðifé-
lags Reykjavíkur.
Veiðimenn munu fá ágæta
veiði í Þingvallavatni, Elliðavatni
og Hlíðarvatni. Algeng veiði sé
fimm til tíu fiskar á hverja stöng í
Þingvallavatni. Fluguveiðimenn
hafi náð 30 til 40 fiskum á stuttum
tíma. Í Hlíðarvatni hafi tvö þrigg-
ja manna dagsholl fengið um 20
fiska hvort.
Þá er sjóbleikja farin að sjást í
ósum Hvolsár og Staðarhólsár,
Lónsár í Þistilfirði og Breiðdalsár.
Sjóbirtingsveiði er góð. ■
þeim. Svona aðgerðir hafa áhrif á
að vextir hækka og það er aðeins
til að herða sultarólina. Fremur en
lofa öllum láni hefðum við talið
eðlilegt að koma á móts við það
fólk sem tilheyrt hefur félagslega
kerfinu,“ segir Gylfi.
Ari Edvald framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, óttast að
hækkun lánshlutfalls fyrir alla
verði til þess að vextir hækki.
Heppilegra væri að draga úr
skilaboðum um að taka lán og
hvetja fremur til sparnaðar.
bergljot@frettabladid.is
HALLDÓR ÁSGRÍMSSOM
Eitt af kosningaloforðum
Framsóknarflokksins var 90 prósent hús-
næðislán fyrir alla. Nú bíða menn spenntir
eftir að loforðið verði efnt.