Fréttablaðið - 21.05.2003, Page 14
FÓTBOLTI „Ég held að þetta sé ávís-
un á gott Íslandsmót,“ segir Ey-
steinn Láursson, miðvörður í
Þrótti, um leiki 1. umferðar. „Það
geta allir unnið alla og það stefnir
í mjög spennandi Íslandsmót.“
„Valsmenn eru greinilega
frískir. Það hefur verið eins hjá
þeim og okkur þar sem pressan
var öll á KR. Sjónir allra beindust
að Lee Sharpe en pressan var eng-
in á Valsmönnum.“
„Það kom á óvart að FH-ingar
stóðu í ÍA en þeir eru til alls lík-
legir. Skagamenn mæta dýrvit-
lausir næst [gegn Þrótti] en að
sama skapi ætlum við ekki að
vera stigalausir eftir tvær um-
ferðir. Það má búast við hörkuleik
uppi á Skaga.“
„Maður bjóst við sigri Fylkis
og þeir kláruðu þetta á upphafs-
mínútunum. Það eru ekki öll lið
sem fara til Eyja og sigra. Ég sá
ekki leikinn en ætli rauða spjaldið
á Bjarnólf hafi ekki verið vendi-
punkturinn.“
Eysteinn lék vel gegn KR í
frumraun sinni í efstu deild.
„Þetta var erfiður leikur og við
höfðum áhyggjur vegna þess að
við erum með ungt og reynslulítið
lið. Það virtist ekki há okkur í
upphafi og það kom okkur á óvart
hvað KR-ingar bökkuðu í byrjun.
Við komust í 1:0, sem var drauma-
byrjun og vorum óheppnir að
komast ekki í 2:0 þegar þeir
bjarga á línu.“
„Í seinni hálfleik fóru menn
óbeint að hugsa um að halda
fengnum hlut. Það kann ekki góðri
lukku að stýra að bakka og KR-
ingar komust meira og meira inn í
leikinn. Eftir að við lendum 2:1
undir eigum við skot í stöng og
svo fær okkar maður boltann en
hittir hann ekki almennilega. Eft-
ir á að hyggja var ég mjög sár og
svekktur en úr því sem komið var
fannst mér að 1:1 hefði verið
sanngjarnt.“
„Fyrir mig sem nýliða í efstu
deild er það frábært að fá tæki-
færi til að kljást við Arnar. Hann
var náttúrlega mjög erfiður. Við
teljum okkur hafa náð að halda
honum ágætlega í skefjum en
hann kom samt inn einu marki og
það var einu marki of mikið fyrir
mig.“ ■
14 21. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
1000 kr. tilboð
Aukaálegg að eigin
vali kr. 150
kr. 1.000
Stór pizza með
2 áleggstegundum
sótt
h
a
u
s
v
e
r
k
!"!# $%&'($%&')
Trevor Sinclair, leikmaðurWest Ham, segist hafa fullan
hug á að vera áfram í herbúðum
liðsins þrátt fyrir að það spili í 1.
deildinni í næstu leiktíð. Sinclair,
sem hefur verið orðaður við önn-
ur lið undanfarið, vildi fara frá
West Ham árið 2001. Þá sagðist
hann vera óánægður með veru
sína á Upton Park.
Manchester United er sagtvera á höttunum eftir Ruben
Baraja, miðju-
manni Valencia.
Baraja, sem er
27 ára spænskur
landsliðsmaður, á
fimm ár eftir af
samningi sínum
við spænska lið-
ið. Stórliðin Real
Madrid og
Barcelona eru
einnig sögð hafa áhuga á kappan-
um.
Ávísun á gott
Íslandsmót
Eysteinn Lárusson, varnarmaður Þróttar, telur leiki 1. umferðar gefa
fyrirheit um spennandi mót.
EYSTEINN LÁRUSSON
Eysteinn Pétur Lárusson í baráttu við Arnar
Gunnlaugsson. Eysteinn lék mjög vel gegn
KR í sínum fyrsta leik í efstu deild. Hann
lék með Tindastóli og Hvöt áður en hann
gekk til liðs við Þrótt fyrir síðustu leiktíð.
KARLAR
L U J T Stig
Fylkir 1 1 0 0 3
KA 1 1 0 0 3
KR 1 1 0 0 3
Valur 1 1 0 0 3
FH 1 0 1 0 1
ÍA 1 0 1 0 1
ÍBV 1 0 0 1 0
Grindavík 1 0 0 1 0
Þróttur R. 1 0 0 1 0
Fram 1 0 0 1 0
2. UMFERÐ
24. maí Valur-ÍBV
24. maí KA-FH
24. maí ÍA-Þróttur R.
25. maí Fram-KR
26. maí Fylkir-Grindavík
MÖRK
Gunnar H. Þorvaldsson ÍBV
Arnar Gunnlaugsson KR
Björn Viðar Ásbjörnsson Fylkir
Gunnlaugur Jónsson ÍA
Haukur Ingi Guðnason Fylkir
Hjálmar Þórarinsson Þróttur
Hreinn Hringsson KA
Jóhann Hreiðarsson Valur
Jónas G. Garðarsson FH
Ólafur Örn Bjarnason Grindavík
Ómar Hákonarson Fram
Sigurbjörn Hreiðarsson Valur
Sigurður R. Eyjólfsson KR
Steinar Tenden KA
Sævar Þór Gíslason Fylkir
Landsbankadeild karla:
Sigurmarkið er
Sigurbjörns
FÓTBOLTI Sigurbjörn Hreiðarsson
skoraði sigurmark Valsmanna í
Grindavík á sunnudag. Markið var
upphaflega skráð á Jóhann, yngri
bróðir Sigurbjörns, sem skaut að
marki en boltinn breytti um stefnu
af Sigurbirni á leiðinni í markið.
Breytt skráningin byggir á leiðbein-
ingum FIFA sem segja að sá leik-
maður sóknarliðsins sem síðastur
snerti boltann skoraði markið.
Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar
Þorvaldsson er einn markahæstur í
Landsbankadeildinni því hann skor-
aði tvisvar í 1. umferð en fjórtán
leikmenn skoruðu eitt mark hver. ■
SIGURBJÖRN HREIÐARSSON
Sigurbjörn skoraði sigurmark Vals.
■ Fótbolti