Fréttablaðið - 21.05.2003, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 21. maí 2003
15.00 Stöð 2
Spænsku mörkin. Mörk helgarinnar úr
spænska boltanum.
18.30 Sýn
Western World Soccer Show. Heimsfót-
bolti Western World.
20.00 Sýn
Liverpool Story – Walk on. Einstök heim-
ildamynd um Liverpool, sigursælasta fé-
lagið í ensku knattspyrnunni.
22.30 Sýn
Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta-
viðburði heima og erlendis.
KÖRFUBOLTI Dallas Mavericks vann
San Antonio Spurs 113:110 í fyrsta
úrslitaleik Vesturdeildar NBA-
deildarinnar í fyrrakvöld. Leikur-
inn var háður á heimavelli Spurs.
Það sem skipti sköpum í leikn-
um var að leikmenn Mavericks
hittu úr 49 vítaskotum af 50, sem
er frábær nýting, á meðan leik-
menn Spurs hittu aðeins úr 31 af
47.
Þjóðverjinn Dirk Nowitzki
skoraði 38 stig fyrir Mavericks og
Michael Finley setti niður 26. Tim
Duncan átti stórleik fyrir Spurs,
skoraði 40 stig og tók 15 fráköst. ■
TROÐSLA
Dirk Nowitzki, leikmaður Maver-
icks, treður boltanum í körfuna
með tilþrifum. Tim Duncan kemur
engum vörnum við.
Úrslitakeppni NBA:
Spurs tapaði
á heimavelli
hvað?hvar?hvenær?
18 19 20 21 22 23 24
MAÍ
Föstudagur
AP
/M
YN
D
GOLF Svíinn Annika Sörenstam
verður í dag fyrsta konan í 58 ár
sem tekur þátt í PGA-mótaröðinni
þegar hún keppir á Colonial-mótinu
í Texas. Síðasta konan sem keppti í
PGA var Babe Zaharias, sem vann
sér rétt til að leika á Opna Los Ang-
eles-mótinu árið 1945.
Sörenstam, sem er 32 ára, hefur
verið mikið í fjölmiðlum undanfar-
ið vegna þátttöku sinnar og þegar
hún mætti á völlinn í gær var hún
strax umkringd fréttamönnum.
Margir hafa gagnrýnt þátttöku
hennar, þar á meðal kylfingurinn
Vijay Singh, sem hótaði því að
keppa ekki ef hún myndi leika við
hlið hans. Eftir að hafa unnið
Byron Nelson-mótið um síðustu
helgi ákvað hann hins vegar að
hætta við að taka þátt og sagðist
þurfa á hvíld að halda.
Sorenstam er fremsta
golfkona heimsins í dag. Hún hef-
ur unnið 43 mót á ferlinum, þar af
13 á síðasta ári. Hún segist þurfa
á nýrri áskorun að halda og vill
prófa sig á meðal karlanna. „Ég
ákvað að taka þátt vegna þess að
ég vil sjá hversu langt ég kemst.
Ég er að fara í algerlega nýtt um-
hverfi, erfiðari völlur, erfiðari
andstæðingar og miklu meiri at-
hygli. Þetta verður allt saman
mjög frábrugðið því sem ég er
vön,“ sagði Sorenstam. ■
SORENSTAM
Annika Sorenstam talar við kylfusvein sinn.
Sorenstam verður í nýju umhverfi dag þeg-
ar hún etur kappi við hitt kynið á golfvell-
inum.
Annika Sörenstam:
Keppir við karlana