Fréttablaðið - 21.05.2003, Side 18
■ ■ TÓNLIST
20.00 Fyrstu tónleikar Kammer-
kórs Reykjavíkur verða í Laugarnes-
kirkju. Meðal annars verða flutt lög eftir
Hjálmar H. Ragnarsson, Hallgrím Helga-
son og Hildigunni Rúnarsdóttur. Bjarni
Jónatansson leikur á píanó og Hugrún
Sif Hallgrímsdóttir á þverflautu. Stjórn-
andi kórsins er Sigurður Bragason.
20.00 Dagur Bergsson píanóleikari
heldur burtfarartónleika frá sígildri braut
Tónlistarskóla FÍH í sal skólans. Sam-
hliða píanóleik hefur Dagur stundað
slagverksnám.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Nemendaleikhúsið sýnir
Tvö Hús eftir Lorca. Um er að ræða
útskriftarsýningu Leiklistardeildar
Listaháskólans og er verkið í leikstjórn
Kjartans Ragnarssonar.
■ ■ SÝNINGAR
Útskriftarsýning myndlistar- og
hönnunarnemenda Listaháskóla Ís-
lands stendur nú yfir í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.
Yfirlitssýning á rússneskri ljósmynd-
un hófst um helgina á Kjarvalsstöðum.
Verkin eru frá miðri nítjándu öld til dags-
ins í dag og bera glöggt vitni um þær
breytingar sem hafa átt sér stað í rúss-
neskri ljósmyndun.
Sýning á höggmyndum eftir Örn
Þorsteinsson var opnuð á Kjarvals-
stöðum um helgina. Sýningin teygir sig
um ganga Kjarvalsstaða og umhverfis
húsið.
Veronica Österman frá Finnlandi er
með málverkasýningu í Listhúsi Ófeigs,
Skólavörðustíg 5. Sýningin er opin virka
daga 10-18 og laugardaga 11-16.
Í Hallgrímskirkju stendur yfir sýn-
ing á listvefnaði eftir Þorbjörgu Þórð-
ardóttur. Verkin eru unnin í ull, hör sí-
sal og hrosshár. Hugmyndir að verk-
um sínum sækir Þorbjörg til íslenskr-
ar náttúru og vinnur úr þeim á óhlut-
bundinn hátt. Sýningin er opin dag-
lega kl 9-17 og lýkur 26. maí.
Ella Magg sýnir ný og „öðruvísi“
olíumálverk í Listasal Man, Skólavörðu-
stíg 14. Sýning hennar stendur til 18
maí og er opin virka daga frá kl. 10-18,
laugardaga frá kl. 11-18 og sunnudaga
frá kl. 15-18.
Gunnar Karl Gunnlaugsson sýnir
ljósmyndir af um það bil 60 brúm á
þjóðvegi 1 í Menningarmiðstöðinni
Gerðubergi.
Sýningin Handritin stendur yfir í
Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er á
vegum Stofnunar Árna Magnússonar.
Einnig er þar sýning sem nefnist Ís-
landsmynd í mótun – áfangar í korta-
gerð.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
21. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
18 19 20 21 22 23 24
MAÍ
Miðvikudagur
Nýtt gallerí var opnað á dögun-um og ber það nafnið Kling og
Bang gallerí. Að stofnuninni stan-
da tíu ungir myndlistarmenn en
það eru þau Daníel Björnsson, Er-
ling Þ.V. Klingenberg, Guðrún
Benónýsdóttir, Hekla Dögg Jóns-
dóttir, Kristinn Pálmason, Nína
Magnúsdóttir, Sara Björnsdóttir,
Sirra Sigrún Sigurðardóttir,
Snorri Ásmundsson og Úlfur
Grönvold.
„Það má segja að hugmyndin
hafi kviknað af sjálfu sér,“ segir
Erling aðspurður um hvað hafi
valdið því að þau réðust í þetta
stóra verkefni. „Okkur þótti
skorta gallerí sem sýnir fram-
sækna list. Við komum reyndar
fyrst til að skoða þetta húsnæði
sem vinnuaðstöðu en sáum strax
að það var tilvalið sem gallerí og
því hóuðum við saman nokkrum
hópi myndlistarmanna og réð-
umst í þetta verkefni“.
Sjálf kalla þau galleríið
Kontórinn og markmiðið er að
hann verði miðstöð umræðu og
listsköpunar þar sem hægt er að
taka púlsinn á því sem er að ger-
ast í dag. „Við viljum alls ekki tak-
marka okkur sem gallerí og erum
með ýmislegt í bígerð, svo sem
viðræður við gallerí í Kaup-
mannahöfn um samstarf, hug-
mynd um að veita myndlistar-
■ MYNDLIST
Framsækin list
á Laugavegi
Þetta er eináhrifamesta
sýningin sem ég
hef séð í vetur,“
segir Nanna
Kristín Magnús-
dóttir leikkona
um Tvö Hús, útskriftarsýningu
Leiklistardeildar Listaháskólans,
í leikstjórn Kjartans Ragnarsson-
ar. „Sýningin er mjög falleg frá
hendi leikstjórans og leikmynda-
hönnuðar og sérstaklega leikara-
efnanna, sem fá öll að sýna hvað í
þeim býr. Þá taka öll góða spretti
og fá úr einhverju að moða.“
Mittmat
Daglegt flug til London
Iceland Express flýgur til London alla daga.
Skoðaðu og bókaðu á IcelandExpress.is eða komdu á söluskrifstofuna
Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga.
Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
SÖLUHÆSTU PLÖTUR SKÍFUNNAR
- VIKA 19
Pottþétt 31
POTTÞÉTT 31
Pink Floyd
DARK SIDE OF THE MOON
Blur
THINK TANK
Rod Stewart
IT HAD TO BE YOU
Botnleðja
ICELAND NATIONAL PARK
The White Stripes
ELEPHANT
Madonna
AMERICAN LIFE
AC/DC
BACK IN BLACK
Linkin Park
METEORA
Justin Timberlake
JUSTIFIED
Norah Jones
COME AWAY WITH ME
AC/DC
RAZOR’S EDGE
Michael Jackson
THRILLER
Neil Young
HARVEST
Matrix Reloaded
MATRIX RELOADED
50 Cent
GET RICH OR DIE TRYING
Írafár
ALLT SEM ÉG SÉ
Bob Dylan
DESIRE
AC/DC
LET THERE BE ROCK
Scooter
24 CARAT GOLD
Topp20 listinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M