Fréttablaðið - 21.05.2003, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 21. maí 2003
GUNNAR HELGASON LEIKARI
Um eftirlætis veitinga- ogskemmtistaði sína miðað við
hvenær sólarhringsins hann er á
ferðinni.
Morgunn – Hótel KEA
Ég var einu sinni þar að leita eftir
verslun sem seldi morgunverð
fyrir fjölskylduna, rambaði inn á
Hótel KEA með syni mínum, þá
eins árs gömlum, og þetta var
ógleymanleg morgunverðar-
stund. Sonur minn fékk bestu
þjónustu sem hann hefur nokkru
sinni fengið.
Hádegi – Á næstu grösum
Eini græni maturinn sem góður er
á bragðið, hann finnst þar.
Miðdegi – 10-11
Súfistinn í Hafnarfirði
Það sem helst dregur mig þangað
eru Hafnfirðingarnir sem sækja
staðinn. Óborganlegir. En staður-
inn hefur reyndar látið á sjá eftir
að Stefán Karl lét draga sig til
Reykjavíkur.
Kvöldverður – Grillið á Sögu
Það hefur ekki klikkað hingað til,
maturinn alltaf tipp-topp og þjón-
ustan gerist ekki betri á landinu
og þótt víðar væri leitað.
Bar – Vínbarinn
Tiltölulega kúltiveraður drykkju-
staður, til þess að gera, og ágæt
loftræsting. En ekki hægt að vera
mjög lengi því eitís-kynslóðin
sem sækir staðinn verður svo
fljótt full.
Dans – NASA
Þar er Jackson spilaður og þar get-
ur maður hreyft sig með góðu móti.
Dauður maður sem ekki fer í stuð
þegar Jackson er annars vegar.
Staðirnirmínir
verðlaun í anda tónlistarverðlaun-
anna og margt fleira, við höfum
nú þegar mikinn metnað“ segir
Erling að lokum.
Fyrstur til að sýna í Kling og
Bang gallerí er Börkur Jónsson og
er þetta hans fyrsta einkasýning,
en hún samanstendur af þremur
myndbandsverkum. Börkur lýsir
sjálfur verkum sínum sem heim-
ild um gjörninga unnum í miðilinn
vídeó, þar sem áhorfendur eru
laðaðir að verkinu í gengum sjón-
ræna og líkamlega skynjun sína á
hreyfingunni sem fram fer. Börk-
ur Jónsson útskrifaðist með
mastersgráðu frá listaakademí-
unni í Helsinki fyrir um ári og frá
Myndlistar- og handíðaskólanum
árið 1999.
Kling og Bang gallerí er til
húsa að Laugavegi 23 og er opið
miðvikudaga til sunnudaga frá 14-
18. ■
STOFNENDUR KLING OG BANG
Kling og Bang gallerí opnaði á dögunum
við Laugaveg 23. Markmið myndlistar-
mannanna tíu sem að því standa er að
skapa vettvang fyrir framsækna íslenska
list. Börkur Jónsson er nú þar með sína
fyrstu einkasýningu.
Fyrstu tónleikarnir
Kammerkór Reykavíkur er meðyngstu kórum landsins. Hann
var stofnaður í haust sem leið og
heldur fyrstu opinberu tónleika
sína í Laugarneskirkju í kvöld.
Hann hafði þó komið fram á söfn-
unartónleikunum Fíkn er fjötur
síðla vetrar.
„Hugmyndin var sú að stofna
kór sem hefði það á stefnuskrá
sinni að sinna styrktartónleikum,
sem við hyggjumst halda á hverju
ári til stuðnings ýmsum málefnum.
Auk þess er meiningin að kórinn
haldi eigin tónleika,“ segir Sigurð-
ur Bragason, stjórnandi kórsins.
„Á tónleikunum verða sungin
bæði íslensk gullaldarlög og nýrri
verk eftir tónskáld á borð við
Hildigunni Rúnarsdóttur, Hall-
grím Helgason og Hjálmar H.
Ragnarsson.“ ■
KAMMERKÓR REYKJAVÍKUR
Heldur tónleika í Laugarneskirkju klukkan níu í kvöld.
■ TÓNLIST
puma - nike - adidas - hummel
buffalo london - el naturalista
bronx - leqoc sportive
björn borg - face -roots - dna
VERSLUNIN
HÆTTIR
ÚTSALAN
HEFST Á MORGUN
Allt á að seljast
20-50%
afsláttur
Mikið úrval
K R I N G L A N , S . 5 3 3 5 0 5 1
dna
19
Þrefalt AC/DC
Glöggir lesendur sjá eflaust aðástralska rokksveitin AC/DC
á þrjár breiðskífur inni á topp 20
sölulista Skífunnar þessa dagana.
Óþrjótandi vinsældir sveitarinnar
hér á landi hafa meira að segja
hrint af stað þeim orðrómi að hún
sé væntanleg hingað til tónleika-
halds.
Meginástæða þess að plöturnar
„Back in Black“, „Razor’s Edge“
og „Let There Be Rock“ eru á
meðal tuttugustu söluhæstu titla
Skífunnar er sú að þær eru allar
hluti af svokölluðu „2 fyrir 2.200“
tilboði. Svo virðist sem gítarhetju-
rokkið sé aftur á uppleið eftir ára-
langa lægð.
Hæsta íslenska platan á listan-
um er fimmta breiðskífa Botn-
leðju, „Iceland National Park“, en
hún fær keppinaut á næsta lista
þegar plata Mínus, „Halldór Lax-
ness“, stekkur inn á listann. ■
■ PLÖTUSALA
AC/DC
Orðrómur er á kreiki um að ástralska
rokksveitin AC/DC sé á leiðinni til landsins.