Fréttablaðið - 21.05.2003, Page 31
31MIÐVIKUDAGUR 21. maí 2003
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Einar Benediktsson.
Austur-Tímor.
Sjón.
Collector 33
Rafmagnssláttuvél
1000W rafmótor
27 ltr grashirðupoki
Euro 45
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Silent 45 Combi
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Verð: 17.900 Verð: 34.900 Verð: 44.900
Hágæða sláttuvélar
Vetrarsól - Askalind 4 - Kópavogi - Sími 564 1864
A
U
G
L
Ý
S
I
N
G
A
S
E
T
R
I
Ð
BÆJARHLIÐ Í MÓTUN
Nýtt bæjarhlið Seltirninga er óðum að taka
á sig mynd. Þessa dagana vinna steinsmið-
ir hörðum höndum að því að snyrta til
bríkur og kanta á neðri hluta þess áður en
lagt verður í toppstykkið. Hliðið verður hið
myndarlegasta, mannhæðarhátt og upplýst
frá öllum hliðum. Mun það setja afar
skemmtilegan svip á strandlengjuna og
fegra umhverfið til muna.
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að hvalurinn
Keikó er í Noregi, storkurinn Styrmir á leið til
Svíþjóðar og Bryndís Schram enn í Finnlandi.
FYRIRTÆKJAKAUP Gísli Baldur Garð-
arsson hæstaréttarlögmaður rek-
ur lögmannsstofu sína ásamt öðr-
um við Austurvöll í Reykjavík og
unir hag sínum vel. Hann lét þó
verða af því á dögunum að kaupa
meirihlutann í Olís ásamt for-
stjóra fyrirtækisins og nokkrum
stjórnendum þess. Gísli Baldur
hefur verið í stjórn Olís frá árinu
1990 og stjórnarformaður frá
1993. Hann er 52 ára og hefur
starfað sem lögmaður í rúman
aldarfjórðung.
„Ég ætla að halda því áfram.
Lögmennskan er mitt starf en
verið getur að stjórnarfor-
mennskan í Olís verði ef til vill
tímafrekari nú en áður þó ég viti
það ekki,“ segir Gísli Baldur, sem
er ánægður með kaupin á olíufé-
laginu en þau bar brátt að þó
menn hafi lengi gælt við hug-
myndina. „Annars er ég margra
barna faðir og afi og reyni að
sinna fjölskyldunni eins mikið og
ég get. Þess utan er ég áhugamað-
ur um bæði stangveiði og skot-
veiði og stunda veiðar mér til
ánægju,“ segir hann.
Á námsárum sínum í Háskólan-
um starfaði Gísli Baldur sem þul-
ur við Ríkissjónvarpið og varð þá
heimilisvinur allra landsmanna.
Samhliða þularstöfunum vann
hann sem blaðamaður á Morgun-
blaðinu og er ekki alveg laus við
þá bakteríu: „Ég skrifa stundum
hjá mér ýmislegt sem mér finnst
merkilegt en varla er orð á því
hafandi. Á sínum tíma var ég í
þessu til að hafa í mig og á,“ segir
Gísli Baldur Garðarsson. ■
GÍSLI BALDUR GARÐASSON
Varð heimilisvinur allra lands-
manna á námsárunum sínum
þegar hann var þulur í Ríkissjón-
varpinu. Nú er hann búinn að
kaupa olíufélag.
Lögmaðurinn í Olís
Persónan
GÍSLI BALDUR GARÐARSSON
■ hæstaréttarlögmaður og stjórnarfor-
maður Olís hefur keypt meirihluta í fyrir-
tækinu ásamt forstjóra þess og nokkrum
stjórnendum. Hann ætlar þó að halda
áfram í lögmennskunni eftir sem áður.
Segir það sitt starf.
Við Hverfisgötu 21 stendurvirðulegt steinhús, hvítmálað
með rauðu þaki. Hús þetta lét Jón
Magnússon, síðar forsætisráð-
herra, reisa árið 1912. Þegar
Kristján X Danakonungur kom í
opinbera heimsókn til Íslands árið
1926 var honum og konu hans
fenginn bústaður í húsinu. Áður
hafði tíðkast að hýsa erlenda þjóð-
höfðingja í Menntaskólanum en
það þótti ekki við hæfi við þetta
tækifæri. Ekki voru þó allir sáttir
við það að konungshjónunum
skyldi boðið að gista á heimili for-
sætisráðherrans. Í grein sem birt-
ist í Tímanum kom fram tillaga
um að reisa sérstakt hús fyrir
konung á Íslandi. Olli tillagan
töluverðu fjaðrafoki og aldrei
varð af byggingu konungsgarðs
hér á landi.
Árið 1940 eignaðist Hið ís-
lenska prentarafélag húsið. Félag
bókagerðarmanna hefur nú aðset-
ur í húsinu.
Albert E. Goldstein, Miami, Flórída, lést
18. maí.
Áslaug Svala Ingimundardóttir, Heiðar-
gerði 29, lést 18. maí.
Halldór G. Steinsson, Austurbrún 2,
Reykjavík, lést 18. maí.
Njörður H. Snæhólm, fyrrverandi yfir-
rannsóknarlögregluþjónn, lést 18. maí.
Jóhanna Katrín Pálsdóttir, Hólabraut 3,
lést 17. maí.
Hilmar Gylfi Guðjónsson, Hlíðarhjalla
6, Kópavogi, lést 16. maí.
Sigríður Ingvarsdóttir, Brekkulæk 1,
Reykjavík, lést 16. maí.
Vilborg Þórisdóttir frá Flögu í Þistilfirði
lést 16. maí.
Þrúður Guðrún Óskarsdóttir, Krumma-
hólum 10, Reykjavík, er látin.
Pétur Aðalsteinsson frá Stóru Borg lést
9. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
■ Andlát■ Húsið
Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins* og prentað í 92.000 eintökum.**
*samkv Fjölmiðlakönnun Samtaka íslenskra auglýsingastofa, Samtaka auglýsenda og fjölmiðlanna.
**Fréttablaðið er aðili að upplagseftirliti Verslunarráðs Íslands.
Auglýsendur athugið:
Dreift með Fréttablaðinu, mest lesna dagblaði landsins, í 92.000 eintökum.
Hafið samband við auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 515 7584 eða 515 7500
fyrir 2. júní eða með tölvupósti: petrina@frettabladid.is.
Fylgir Fréttablaðinu 4. júní.
Hagnýtar upplýsingar fyrir þá sem ætla að ferðast
innanlands í sumar. Gisting, matur, afþreying, fróðleikur
og skemmtun um land allt.
Ferðir innanlands 2003