Fréttablaðið - 21.05.2003, Side 32

Fréttablaðið - 21.05.2003, Side 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Nýr atvinnuvegur virðist vera aðryðja sér til rúms hér á landi, en það eru bankarán. Langur tími leið frá því að bankastarfsemi hófst á Íslandi og þar til metnaðarfullir ræningjar létu sér það til hugar koma að ræna banka. Þess í stað sérhæfðu þeir sig í fjárvana fyrir- tækjum og lögðu sérstaka rækt við sjoppur og vídeóleigur. En nú er öld- in önnur og það er að verða daglegt brauð að ungmenni hoppi framfyrir alla í biðröðinni og yfir afgreiðslu- borðið í bankanum til þess að krækja í nokkra þúsundkalla. ÞÓTT EF TIL VILL megi kalla það framför hjá þjófum að ræna frekar banka en pylsusölustaði er engu að síður ekki allt sem sýnist. Því miður virðist helsti metnaður hinnar nýju kynslóðar af bankaræningjum eink- um beinast að því að komast sem fyrst í hendur lögreglunnar. Tískan er sú að grípa handfylli af seðlum úr gjaldkerahólfinu og doka við nógu lengi til að eftirlitsmyndavél- arnar nái góðri andlitsmynd, hlaupa síðan út með peningana í hendinni og heim til handrukkarans og af- henda honum ránsfenginn. Síðan fer bankaræninginn heim til sín og fer í tölvuleik þangað til löggan kemur. BANKARÁNIN eru upplýst á nokkrum klukkutímum. Bankaræn- inginn tryggir sér hálfs árs dvöl í fangelsi með því að nappa hálfum mánaðarlaunum hæstaréttardóm- ara. Og peningarnir finnast aldrei af því að bankaræningjanum stendur meiri stuggur af handrukkaranum sem hann var að friða heldur en landslögum, lögreglu og dómskerfi Íslenska lýðveldisins. HANDRUKKARALÝÐURINN sem veður um og ógnar ungum eit- urlyfjaneytendum, foreldrum þeir- ra og aðstandendum er plága sem kominn er tími til að uppræta. Eit- urlyfjaneysla hefur nógu alvarleg- ar afleiðingar fyrir íslensk ung- menni, þótt ekki séu starfandi í þjóðfélaginu sérstakir tuddar til að misþyrma þeim. Þótt bankaránafaraldurinn hérna á litla landinu sé fáránlegur og hlægileg- ur er engin framtíð í því að unglin- garnir okkar þurfi að ræna banka til að komast í skjól fyrir hrottafengnum handrukkurum. ■ Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Börn ræna banka Fjölskylduhagir eru með ýmsu móti en allir eiga það þó sameiginlegt að þurfa tryggingu við hæfi. Til að koma til móts við mismunandi þarfir býður VÍS mjög breitt úrval trygginga fyrir fjölskyldur og heimili, því ætti enginn að vera ótryggður. Nýjasta afurðin í þessum flokki er Festa, sem veitir víðtæka vernd á hagstæðum kjörum. Það gildir einu hvort heimilið er lítið eða stórt, einfalt eða ríkulega búið. Í því eru fólgin verðmæti fyrir hvern og einn ef til tjóns kemur. F plús, Festa, Kjarni, Heimilistrygging og Innbústrygging eru tryggingar ætlaðar einstaklingum og fjölskyldum. Bótasvið hverrar tryggingar og iðgjöld eru mismunandi þannig að allir ættu að geta fundið tryggingu við sitt hæfi. Hafðu samband við VÍS og við metum með þér hvað hentar í þínu tilviki. Nánari upplýsingar um tryggingarnar er að finna í skilmálum þeirra. Þjónustuver VÍS svarar fyrirspurnum í síma 560 5000 eða á upplysingar@vis.is. Vátryggingafélag Íslands, Ármúla 3, 108 Reykjavík, www.vis.is þar sem tryggingar snúast um fólk VÍS fjölskylduvernd *Iðgjöld með afslætti vegna eins bíls þar sem það á við, með opinberum gjöldum án stimpilgjalds, í maí 2003. Vátryggingarverðmæti innbús kr. 4.500.000. Bótasvið og bótafjárhæðir eru mismunandi eftir tryggingum. InnbústryggingHeimilistrygging Sjúkrakostnaðar- og ferðarofstrygging á ferðalögum erlendis Trygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings Málskostnaðartrygging Frítímaslysatrygging Farangurstrygging erlendis Umönnunartrygging barna Sjúkrakostnaðar- og ferðarofstrygging á ferðalögum erlendis Verð 13.406 kr. á ári eða 1.117 kr. á mánuði* Farangurstrygging erlendis Verð 8.825 kr. á ári eða 735 kr. á mánuði* Frítímaslysatrygging Málskostnaðartrygging Verð 6.492 kr. á ári eða 541 kr. á mánuði* Ábyrgðartrygging einstaklings Innbústrygging Verð 6.053 kr. á ári eða 504 kr. á mánuði* Trygging á innbúiTrygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings Trygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings Málskostnaðartrygging Frítímaslysatrygging Verð kr. 17.943 á ári eða 1.495 kr. á mánuði* Hvernig röðum við saman tryggingunum okkar? Mars 2003 Fjölskylduvernd VÍS Hringdu í síma 560 5000 og fáðu sendan bækling um fjölskylduvernd VÍS. F í t o n / S Í A F I 0 0 6 3 6 2 VÍS býður nú fjölbreyttari tryggingar fyrir fjölskyldur og heimili – og veitir þér alla afslætti strax Lítið eða stórt, einfalt eða margbrotið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.