Fréttablaðið - 26.05.2003, Page 4

Fréttablaðið - 26.05.2003, Page 4
4 26. maí 2003 MÁNUDAGUR Horfðir þú á Eurovision? Spurning dagsins í dag: Hvernig fannst þér sigurlagið í Eurovision? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 22% 78% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is MOSKVA, AP Þúsundir rússneskra áhangenda Paul McCartneys söfn- uðust saman á Rauða torginu á laugardagskvöldið til að hlýða á goðið, en þetta er í fyrsta skipti sem Paul heldur tónleika í Rúss- landi. Paul hóf tónleikana á að tala til mannfjöldans. „Við erum hér í kvöld til að „rokka“ Rauða torg- ið,“ sagði bítillinn fyrrverandi og taldi í hið vinsæla bítlalag All My Loving. Það ætlaði umsvifalaust allt vitlaust að verða, fólk grét og faðmaðist og fjöldi manns hringdi í fjarstadda vini sína til að leyfa þeim að heyra líka. Einn áheyr- andinn, Vladimir Snopov, 52 ára, sagðist hafa beðið þessarar stund- ar allt sitt líf, en hann ferðaðist 900 kílómetra leið til að geta verið viðstaddur atburðinn. Aðgöngu- miðarnir kostuðu 100 dollara, sem eru meðalmánaðarlaun í Rúss- landi. Fyrir tónleikana hittu McCart- ney og Heather kona hans Vladímír Pútín forseta og drukku með honum te. Pútín var njósnari hjá KGB þegar Bítlarnir urðu frægir og viðurkenndi að tónlist Bítlanna hefði verið álitin ógna kommúnistastjórninni. Hann sagði að þó tónlist þeirra hefði ekki verið beinlínis bönnuð í Sov- étríkjunum segði það meira en mörg orð að The Beatles fengu ekki að spila á Rauða torginu árið 1980. McCartney sagðist hafa launað teið með því að syngja Let It Be fyrir Pútín í einrúmi. ■ Tónleikar McCartneys á Rauða torginu: Fólk grét og faðmaðist LÚÐVÍK GEIRSSON Bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir mikið um að vera á Björtum dögum, menningar- og listahátíð Hafnfirðinga. Hafnarfjörður 95 ára: Margt á döfinni AFMÆLI Hafnarfjörður á 95 ára kaupstaðarafmæli þann 1. júní. Að sögn Lúðvíks Geirssonar bæj- arstjóra er margt á döfinni til að halda upp á þann áfanga. „Á fimmtudaginn verður opnuð heil- mikil fyrirtækja- og þjónustusýn- ing í Kaplakrika þar sem verða um 100 fyrirtæki og þjónustuaðil- ar í bænum,“ segir Lúðvík. „Á sunnudaginn verður síðan lista- og menningarhátíð okkar, Bjartir dagar, opnuð.“ Að sögn Lúðvíks verður mikið um að vera í Hafnarfirði á Björt- um dögum, sem standa í þrjár vik- ur. „Það eru yfir fimmtíu uppá- komur og dagskráratriði sem rúmlega 500 listamenn taka þátt í,“ segir hann. ■ FÆREYJAR Samningaviðræðum milli íslenskra og fær- eyska stjórnvalda um sameiginlegt versl- unarsvæði er nú lokið Ísland og Færeyjar: Sameiginlegt verslunar- svæði UTANRÍKISMÁL Samningaviðræðum Íslands og Færeyja um sameigin- legt verslunarsvæði er nú lokið. Samningurinn gerir ráð fyrir frel- si á sviði vöruviðskipta, þjónustu- viðskipta og fjárfestinga, ásamt frjálsri för fólks milli landanna. Einnig er stefnt að því að styrkja samvinnu þjóðanna á öðrum svið- um. Samningurinn er efnislega séð víðtækasti fríverslunarsamning- ur sem Ísland hefur gert. Stefnt er að því að hann verði undirritað- ur í Færeyjum í sumar. ■ PEN HADOW 41 árs gamli Breti, Pen Hadow, varð 19. maí síðastliðinn fyrsti maðurinn til að ljúka göngu einn síns liðs frá Norður-Kanada til Norðurpólsins. Hann er nú sambandslaus á pólnum og bíður björgunar. Pen Hadow á Norðurpólnum: Bíður enn björgunar LONDON, BBC Landkönnuðurinn Pen Hadow, sem fyrstur manna gekk einn frá Norður-Kanada til Norð- urpólsins, samtals 478 mílur, hef- ur beðið björgunar á pólnum í sex daga, gjörsamlega sambandslaus við umheiminn. Veður á pólnum er mjög vont og björgunarmenn ná ekki til hans, né geta sagt honum hvað um er að vera því batteríin í síma Hadows eru ónýt. Hadow hefur vistir fram á miðvikudag. Eginkona Hadows sagði í sam- tali við BBC að hann væri gjör- samlega útkeyrður og svo þreytt- ur að hann gæti varla staðið í fæt- urna. Pen hefur ekki verið í nálægð við menn síðan 17. mars, þegar hann hóf gönguna, en hann var í símasambandi við eiginkonu sína síðastliðinn mánudag. Björgunar- sveitir eru í viðbragðsstöðu á veð- urathugunarstöðinni Eureka á Ellesmere-ey og munu sækja Hadow um leið og veður leyfir. ■ KOSNINGAR Formaður kjördæmis- félags Frjálslynda flokksins í Reykjavíkurkjördæmum norður og suður hefur kært framkvæmd nýliðinna alþingiskosninga til dómsmálaráðuneytisins. Kærandinn, Björgvin E. Vídalín, telur mjög mikinn vafa leika á því hvort niðurstöður kosninganna séu réttar, þar sem miklar brotalamir hafi verið á framkvæmd þeirra og talningu at- kvæða. Hann telur mjög tvísýnt hvort Árni Magnússon félags- málaráðherra eigi yfir höfuð rétt á því að sitja á Alþingi vegna þessa, því sennilega skorti hann umboð kjósenda til þess. Kæran var send ráðuneytinu á föstudaginn, en samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis er kærufrestur fjórar vikur frá því kosningaúrslit voru auglýst. Kær- an verður þó að berast áður en Al- þingi kemur fyrst saman, en það er í dag. Í kærunni er farið fram á að öll greidd atkvæði í kosningunum verði, að viðstöddum umboðs- mönnum flokkanna, endurtalin og að endurúrskurðað verði um þau atkvæði sem úrskurðuð voru ógild af yfirkjörstjórnum við taln- ingu. Í greinargerð með kærunni segir að aðeins 13 atkvæðum af samtals 185.398 hafi munað á Árna og oddvita Frjálslyndra í Reykjavík norður. Þetta sé aðeins 0,007% munur og af öryggis- ástæðum verði að endurtelja. Björgvin telur það umhugsun- arefni að ríkisstjórn sem kapp- kosti að senda fulltrúa til annarra ríkja til að fylgjast með því að lýð- ræðislegar kosningar fari rétt fram, skuli framkvæma kosning- ar í eigin landi með þvílíkri hand- vömm og nú hafi komið í ljós. Mikilvægt sé að eyða allri óvissu um að rétt hafi verið staðið að framkvæmd kosninganna. Það verði hins vegar aðeins gert með endurtalningu atkvæða. Dómstólar úrskurða ekki held- ur um endurtalningu, heldur er valdið í höndum nýkjörinna al- þingismanna. Alþingi hefur að- eins heimild til að ákvarða um endurtalningu. trausti@frettabladid.is AKUREYRI Tveggja hæða strætis- vagn í eigu KFUM og K skemmd- ist mikið á Akureyri er hann keyrði á þakskýli við bensínstöð. Haraldur Guðjónsson, umsjón- armaður vagnsins, var nýkominn frá Hvammstanga og hugðist taka bensín við komuna til Akureyrar. „Ég er vanur því að keyra und- ir öll skýli í Reykjavík og gáði því ekki að mér,“ segir Haraldur. Einn og hálfur metri rifnaði af þaki vagnsins og stórt sjónvarp sem þar var flaug niður stigann. „Ég gerði mér ekki grein fyrir því sem gerðist en stoppaði við lætin, þá heyrði ég enn meiri skruðninga og sá þá sjónvarpið koma fljúgandi niður stigann. Það er mikið lán að ég sat kyrr því annars hefði ég fengið það í haus- inn.“ Strætisvagninn sér um barna- og unglingastarf í Reykjavík á veturna og var ætlunin að vera með dagskrá á Akureyri næstu daga. Búið er að aflýsa öllum at- burðum fyrir norðan. ■ SKORTIR FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA UMBOÐ KJÓSENDA? Frjálslyndir telja líklegt að Árna Magnússon skorti umboð kjósenda til að sitja á þingi. Aðeins 13 atkvæðum af samtals 185.398 hafi munað á honum og oddvita Frjálslyndra í Reykjavík norður. Þetta sé aðeins 0,007% munur og af öryggisástæðum verði að endurtelja. PAUL MCCARTNEY Bítillinn kom í fyrsta skipti fram í Moskvu á laugardagskvöldið. Nokkrir mótmælendur vildu láta flytja tónleikana og fannst Rauða torgið of heilagur staður fyrir slíka uppá- komu. Tveggja hæða strætisvagn skemmdist á Akureyri: Ók á þakskýli bensínstöðvar Frjálslyndir kæra kosningarnar Frjálslyndir fara fram á endurtalningu atkvæða. Þeir telja tvísýnt hvort Árni Magnússon félagsmálaráðherra eigi rétt á að sitja á Alþingi. Hann hafi aðeins fengið 13 atkvæðum meira en næsti maður. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M ■ Lögreglufréttir ÖLVAÐUR MEÐ FÍKNIEFNI Lög- reglan í Borgarnesi fann fíkni- efni í bifreið sem stöðvuð var við hefðbundið eftirlit. Fólkið var á leið í sumarbústað í nágrenninu. Ökumaðurinn var færður á lög- reglustöð vegna gruns um ölvun við akstur. ERILL Á SUÐURNESJUM Mikið var um útköll á Suðurnesjum um helgina. Mikið var kvartað vegna hávaða í heimahúsum og voru þrír teknir grunaðir um ölvun við akstur. Mikið var um ölvun í bænum. ÓLÆTI Í SUMARBÚSTÖÐUM Mikið var um útköll í sumarbústaði í umdæmi Selfosslögreglunnar. Að sögn lögreglunnar er sumarbú- staðavertíðin snemma á ferð þetta árið. Útköllin voru flest vegna minniháttar ryskinga, óláta og ölvunar. ÖLVUN Á AKRANESI Ölvun var í meira lagi á Akranesi um helg- ina. Þó nokkuð var kvartað vegna hávaða í heimahúsum og mann- söfnuður var í bænum. Einn var tekinn grunaður um ölvun við akstur og þurfti einn að gista fangageymslur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.