Fréttablaðið - 26.05.2003, Page 8
26. maí 2003 MÁNUDAGUR
Viðskiptalegt virði
kl. 13.15 – 16:30 Hótel Nordica
Aðgangur ókeypis en skráning nauðsynleg
Námstefna 27 maí
epró ehf. – Suðurlandsbraut 4 – sími 568 7568 – www.epro.is
XML
Áhrif XML á rafræna viðskiptahætti fara hratt
vaxandi. Námstefnu epró er ætlað að auka skilning
stjórnenda og sérfræðinga á viðskiptalegu virði
þessarar tækni.
Fyrirlesarar eru frá VISA Íslandi, Software AG,
Opportunity Solutions A/S og epró ehf.
Nánari upplýsingar á www.epro.is.
Handknattleiksdeild Stjörnunnar auglýsir eftir þjálfur-
um til starfa við þjálfun yngri flokka félagsins veturinn
2003-4.
Leitað er eftir reyndum þjálfurum á þessu sviði. Yfir-
þjálfari og umsjónarmaður barna- og unglingaþjálf-
unar félagsins verður Gauti Grétarsson.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Stjörnunnar í síð-
asta lagi fyrir 3. júní 2003.
Umslagið skal merkt þannig:
STJARNAN Handknattleiksdeild,
Stjörnuheimilið við Ásgarð,
210 Garðabæ.
F.h. barna- og unglingaráðs handknattleiksdeildar
Stjörnunnar.
Eyjólfur Bragason
Guðný Svanfríður Stefánsdóttir
Lára Sandholt
Baldur Svavarsson
Handknattleiksdeild
Stjörnunnar
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Þó nokkur
ráðuneyti og stofnanir hafa verið
lögð niður í Írak í kjölfar úrskurð-
ar Sameinuðu þjóðanna um að
Bandaríkjamenn og Bretar
stjórni landinu þar til ný stjórn
hefur verið kjörin.
Á meðal þeirra eru íraski her-
inn, varnarmála-og upplýsinga-
ráðuneyti landsins og Ólympíu-
nefndin.
Hjálparstofnun Sameinuðu
þjóðanna hefur óskað eftir að al-
menningi í Írak verði komið til
hjálpar undir eins, en matarskort-
ur og almenn velferðarþjónusta
hefur verið af skornum skammti í
landinu undanfarin ár. ■
Kvóti sogast að
Akureyri
Aflaheimildir á Norðurlandi jukust um 19,8% á ellefu árum. Akureyring-
ar bættu við sig 24 þúsund þorskígildistonnum en Norðurland sem heild
22 þúsund tonnum. Sum minni byggðarlög hafa misst nær allan kvóta.
SJÁVARÚTVEGUR Norðlendingar hafa á
rúmum áratug aukið aflaheimildir
sínar úr fiskistofnum þjóðarinnar
um fimmtung, talið í
þorskígildistonnum. Mikill sam-
dráttur er þó hjá einstökum byggð-
arlögum á meðan önnur hafa veru-
lega bætt sinn hlut.
Haustið 1991 nam kvóti skipa
með heimahöfn á Norðurlandi tæp-
um 112 þúsund þorskígildistonnum.
Við síðustu úthlutun, haustið 2002,
námu aflaheimildirnar hins vegar
rúmum 134 þúsund tonnum. Aukn-
ingin er 19,8%.
Á sama tíma drógust aflaheim-
ildir í landinu í heild saman um
2,5%; fóru úr 471 þúsund tonnum
árið 1991 í 459 þúsund tonn í fyrra-
haust.
Akureyri ber höfuð og herðar
yfir aðra staði á Norðurlandi í
kvótaaukningu á áðurnefndu ára-
bili. Haustið 1991 fengu skip í bæn-
um úthlutað kvóta upp á tæp 32 þús-
und þorskígildistonn. Eftir úthlut-
unina í fyrra námu aflaheimildirnar
56 þúsund tonnum. Kvótinn hafði
þannig aukist á Akureyri um rúm 24
þúsund tonn, eða 75%, á ellefu
árum.
Flest minni bæjarfélögin við
Eyjafjörð hafa orðið af miklum afla-
heimildum á tímabilinu. Þetta á þó
ekki við um Grenivík þar sem kvót-
inn hátt í þrefaldaðist, óx úr 2.640
tonnum í 7.200 tonn. Í Hrísey er að-
eins 737 tonna kvóti eftir af 5.504
tonnum sem voru á skipum eyjunn-
ar haustið 1991. Handan við sundið,
á Árskógsströnd, eru 96% kvótans
farin; af 1.833 tonnum eru 80 tonn
eftir. Á Árskógssandi eru 58% kvót-
ans farin.
Stóru bæirnir við utanverðan
Eyjafjörð, Ólafsfjörður og Siglu-
fjörður, hafa bætt við sig kvóta.
Ólafsfjörður hefur styrkt stöðuna
um rúm 3.000 tonn og Siglufjörður
um meira en 1.700 tonn. Í útgerðar-
bænum Skagaströnd jókst kvótinn
um 12%. Á Blönduósi og á Hvamms-
tanga hefur kvótinn minnkað um 73
til 77%.
Grímseyingar bættu við sig rúm-
lega 500 tonna kvóta og hafa nú
1.517 tonnum úr að spila. Húsvík-
ingar misstu aftur á móti rúm 3.000
tonn og hafa nú um 7.800 tonn.
Litlu kauptúnin á Norðaustur-
landi hafa í heildina séð misst mikl-
ar aflaheimildir. Nærri helmingur
af ríflega 3.100 tonna kvóta á Rauf-
arhöfn er farinn. Hins vegar hefur
kvótinn á Kópaskeri nær fimmfald-
ast þó lítill sé og á Þórshöfn hefur
kvótinn aukist lítillega.
gar@frettabladid.is
Kynningarfundur
um Skuggahverfið:
Sala íbúða
hafin
FASTEIGNIR Sala á íbúðum í Skugga-
hverfi er hafin. Opinn kynningar-
fundur verður haldinn í Listasafni
Íslands í dag klukkan 17:30 þar
sem arkítektar og fasteignasalar
kynna íbúðirnar.
„Það hefur frá upphafi verið
mikill áhugi fyrir þessu,“ segir
Einar I. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri 101 Skuggahverfis.
„Það er alltaf eftirspurn eftir ný-
tísku íbúðum í miðbæ Reykjavík-
ur.“
Íbúðirnar verða alls 250, en í
þeim áfanga sem nú er hafinn verða
byggðar fjórir turnar og lægri
byggingar inn á milli, samtals 93
íbúðir. Heildarkostnaður vegna
byggingaframkvæmdanna er áætl-
aður á sjötta milljarð króna. Helstu
kennileiti húsaþyrpingarinnar í
Skuggahverfinu verða þrjár sextán
hæða byggingar við Skúlagötuna. ■
FEÐGAR
Íraskur karlmaður situr við aðalgötu bæjarins Umm Qasr ásamt tveimur sonum sínum.
Þar selja þeir feðgar sígarettur gestum og gangandi. Fátækt í Írak hefur verið mikil
undanfarin ár.
AP
/M
YN
D
Breytingar í Írak:
Ráðuneyti lögð niður
SKUGGAHVERFIÐ
Íbúðir Skuggahverfis verða kynntar í Listasafni Íslands í dag klukkan 17:30.
AFLAHEIMILDIR Á NORÐURLANDI
Breytingar á kvótastöðu einstakra hafna frá austanverðum Húnaflóa að Langanesi á árunum 1991
til 2002. Á sama tíma og aflaheimildir á landinu í heild minnkuðu um 2,5% jókst kvótinn á Norð-
urlandi um 19,8%. Afar mikill munur er þó á þróun kvótans eftir einstökum byggðarlögum.
1991 2002
HVAMMSTANGI
BLÖNDUÓS
SKAGA-
STRÖND
SAUÐÁR-
KRÓKUR
HOFSÓS
ÓLAFS-
FJÖRÐUR
GRÍMSEY
HRÍSEY
DALVÍK
ÁRSKÓGSSANDUR
ÁRSKÓGSSTRÖND
HAUGANES
HJALTEYRI
HAGANESVÍK
SVALBARÐSSTRÖND
HÚSAVÍKGRENIVÍK
KÓPASKER
+368%
RAUFARHÖFN
ÞÓRSHÖFN
AKUREYRI
SIGLU-
FJÖRÐUR
611
-45%
011
-100%
13
4.
06
3
11
1.
89
3
NORÐURLAND ALLS:
+20%
56
.0
61
31
.8
60
+75%
22
0
97
1
-77%
801.
83
3
-96%
22
2
52
9
-58%
19
2
82
1
-77%
70
32.
56
1
-73%
8.
08
7
7.
17
8
+13%
23
2
65
8
-65%
12
.3
23
8.
64
5
+43%
+21%
10
.1
97
8.
45
3
14
.6
42
11
.5
88
+26%
73
7
5.
50
4
-87%
1.
51
7
99
9
+52%
7.
20
0
2.
64
0
+173%
7.
80
7
10
.8
58
-28%
1.
66
4
3.
12
4
-47%
30
77
2.
86
2
+8%
360
7.
85
8
10
.6
84
-26.5
48
3
10
3