Fréttablaðið - 26.05.2003, Qupperneq 10
SAKAMÁL Þórhallur Ölver Gunn-
laugsson, sem dæmdur var í sext-
án ára fangelsi fyrir að hafa orðið
mannsbani sumarið 1999 hefur
kært Boga Nilsson ríkissaksókn-
ara fyrir meinsæri.
Þórhallur segir gögn sem nú
séu komin fram sýna að hann hafi
verið í haldi lögreglu þegar morð-
ið er sagt hafa
verið framið.
Hann hefur ósk-
að eftir því við
dómstólaráð Ís-
lands að málið
verði tekið upp
að nýju og að
hann verði sýkn-
aður.
Agnar W.
A g n a r s s o n
fannst látinn í
íbúð sinni á
Leifsgötu 14. júlí 1999. Hann hafi
verið stunginn margsinnis með
hnífi í brjóstið. Þórhallur hafði
verið stöðvaður aðfaranótt þess
dags þar sem hann ók um Skúla-
götu. Hann var grunaður um ölv-
un og gisti fangaklefa fram á
næsta dag.
Samkvæmt niðurstöðum ríkis-
saksóknara og dómstóla var Agn-
ar myrtur rétt fyrir klukkan tvö
aðfaranótt 14. júlí. Þórhallur segir
að klukkan hljóti að hafa verið um
20 mínútur í tvö þegar lögregla
stöðvaði hann vegna gruns um
ölvunarakstur. Það megi lesa af
lögregluskýrslum sem hann hafi
loks fengið aðgang að.
Þórhallur telur að Bogi Nilsson
ríkissaksóknari hafi vísvitandi
leynt þeim gögnum sem varpað
gætu nánari ljósi á tímasetningar
um morðnóttina: „Dómsorð
Hæstaréttar var fengið fram með
blekkingum, undanskotum gagna
og rangfærslum,“ segir Þórhallur
í greinargerð sinni til dómstóla-
ráðs.
Sjálfur telur Þórhallur að Agn-
ar hafi verið myrtur klukkutíma
fyrr en dómstólar gengu út frá,
eða á bilinu hálfeitt til eitt. Það
hafi einnig verið upphafleg kenn-
ing lögreglunnar sem fallið hafi
verið frá þar sem Þórhallur hafi
haft óhrekjanlega fjarvistarsönn-
un á því tímabili. Þórhallur segir
eftirlitsmyndavélar sýna að hann
hafi farið úr miðbænum klukkan
1.12. Hann segist hafa ekið heim
til Agnars heitins uppi á Leifsgötu
og komið að honum látnum. Hann
hafi síðan verið stöðvaður á
Skúlagötu við hefðbundið
lögreglueftirlit.
Þórhallur játaði að hafa banað
Agnari við yfirheyrslur hjá lög-
reglu en dró játningu sína til baka.
Hæstarétti þótti skýringar Þór-
halls á breyttum framburði ótrú-
verðugar:
„Sannleikurinn er sá að ég veit
ekki af hverju ég játaði þetta á
mig,“ segir Þórhallur nú í greinar-
gerð sinni.
gar@frettabladid.is
A
U
G
L
Ý
S
I
N
G
A
S
E
T
R
I
Ð
Collector 33
Rafmagnssláttuvél
1000W rafmótor
27 ltr grashirðupoki
Euro 45
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Silent 45 Combi
Bensínsláttuvél
4 hestöfl B&S mótor
55 ltr grashirðupoki
Verð: 17.900 Verð: 34.900 Verð: 44.900
Park Comfort
Bensínsláttuvél
15,5 hestöfl B&S mótor
Slátturbúnaður að framan
Verð: 544.000
Estate President
Bensínsláttuvél, 13,5 hestöfl B&S mótor
250 ltr grashirðupoki
Verð: 354.000
Hágæða sláttuvélar
Vetrarsól - Askalind 4 - Kópavogi - Sími 564 1864
10 26. maí 2003 MÁNUDAGUR
KONUNGLEGUR KAPPAKSTUR
Karl Gústaf XVI Svíakonungur og þýski
aðalsmaðurinn Leopold von Bayer eru
báðir staddir í bænum Brescia á Ítalíu til
þess að taka þátt í Mille Miglia-fornbíla-
kappakstrinum.
Óvissa í ferðaþjónustu:
Fjórar plágur
FERÐAÞJÓNUSTA Samtök ferðaþjón-
ustunnar fagna ákvæðum í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
flokkanna um að íslenskri ferða-
þjónustu verði sköpuð sambæri-
leg rekstrarskilyrði og í sam-
keppnislöndunum.
„Það sem er að fara verst
með ferðaþjónustuna er hátt
gengi krónunnar,“ segir Erna
Hauksdóttir framkvæmdastjóri.
Hún nefnir líka að vextir séu
hér mun hærri en í samkeppnis-
löndunum, sem geri fyrirtækj-
um í ferðaþjónustu erfitt fyrir.
Að sögn Ernu ríkir mikil
óvissa í ferðaþjónustunni um
þessar mundir. „Talað er um
þrjár plágur í ferðaþjónustunni
úti um allan heim,“ segir Erna
og á þar við 11. september, stríð-
ið í Írak og bráðalungnabólgu-
faraldur í Asíu. Fjórða plágan
sem herji á íslenska ferðaþjón-
ustu sé síðan hið háa gengi krón-
unnar. ■
Neskaupstaður:
Ómissandi
sjúkrahús
HEILBRIGÐISMÁL Fjórðungssjúkra-
húsið í Neskaupstað heldur úti
fullri starfsemi yfir sumartím-
ann.
„Við erum algjörlega ómiss-
andi,“ segir Guðrún Sigurðar-
dóttir hjúkrunarforstjóri. „Við
erum eina sjúkrahúsið á Austur-
landi.“
Að sögn Guðrúnar hjúkrunar-
forstjóra er afleysingafólk feng-
ið í stað starfsmanna sem fara í
sumarfrí.
„Við erum mjög heppin og
fáum gjarnan sama fólkið ár eft-
ir ár,“ segir Guðrún. „Það er
traust og gott fólk.“ ■
Kærir meinsæri
í Leifsgötumáli
Þórhallur Ölver Gunnlaugsson, sem dæmdur var fyrir morðið á Agnari
W. Agnarssyni árið 1999, hefur kært ríkissaksóknara fyrir meinsæri með
undanskoti gagna. Þórhallur krefst sýknu og endurupptöku málsins.
ERNA HAUKSDÓTTIR
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónust-
unnar hefur áhyggjur af fjórum plágum
sem herja á ferðaþjónustuna.
LEIFSGATA
Vitni á Leifsgötu heyrðu mikla háreysti frá íbúð Agnars W. Agnarssonar aðfaranótt
14. júlí 1998. Sumir töldu lætin hafa verið um klukkan eitt en aðrir að þau hefðu
verið um klukkustund síðar. Íbúar í húsinu kölluðu til lögreglu daginn eftir vegna
grunsemda um að voveiflegur atburður hefði gerst. Agnar fannst látinn í íbúð sinni
þegar lögregla kom þar að.
„Dómsorð
Hæstaréttar
var fengið
fram með
blekkingum,
undanskotum
gagna og
rangfærslum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T