Fréttablaðið - 26.05.2003, Síða 11

Fréttablaðið - 26.05.2003, Síða 11
11MÁNUDAGUR 26. maí 2003 Skráðu þig í tilboðsklúbb Iceland Express á Netinu Og njóttu þess að fá reglulega send til þín frábær tilboð sem eingöngu eru veitt félögum í tilboðsklúbbi Iceland Express. Skráðu þig á www.IcelandExpress.is núna! Daglegt flug til Kaupmannahafnar og London. Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl. Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Pólverjar kjósa um inngöngu í ESB: Vilja frekar kjósa í íslenskum kosningum NÝBÚAR Tilkynning til pólskra ríkisborgara sem dvelja hér á landi birtist í Fréttablaðinu í gær. Tilkynningin tengdist þjóð- aratkvæðagreiðslu um inngöngu Póllands í Evrópusambandið og birtist bæði á íslensku og pól- sku. Kosningarnar fara fram 7. og 8. júní og byrjar kjörfundur samkvæmt venju við sólarupp- rás. Að sögn Friðriks Gunnars- sonar, kjörræðismanni Pólverja, búa rúmlega 2.000 pólskir ríkis- borgarar hér á landi, en áhugi fyrir kosningunum er ekki mik- ill. „Þegar Pólverjar eru komnir hingað hafa þeir meiri áhuga á að kjósa í íslenskum kosning- um,“ segir Friðrik. „Þeir telja sig hingað komna til þess að vera.“ ■ Félag bókaútgefenda: Vilja niðurfellingu virðisaukaskatts BÓKAÚTGEFENDUR Félag íslenskra bókaútgefenda fagnar hugmynd- um sem fram komu í aðdraganda kosninganna um lækkun eða nið- urfellingu virðisaukaskatts á bók- um. Þetta kom fram á aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 22. maí. „Við gerum ráð fyrir að loforð- in verði efnd,“ segir Sigurður Svavarsson, sem var endurkjör- inn formaður félagsins. Hann nefnir að í aðdraganda kosning- anna hafi báðir ríkisstjórnar- flokkarnir talað um lækkun virð- isaukaskatts á bókum. „Við von- um að virðisaukaskatturinn verði afnuminn,“ segir Sigurður. ■ FRIÐRIK GUNNARSSON Kjörræðismaður Pólverja á Íslandi. BÆKUR Félag íslenskra bókaútgefenda hélt aðalfund sinn á fimmtudag. Colin Powell: Frökkum ekki refsað PARÍS, AP Bandaríkjamenn hafa ekki í huga að refsa Frökkum fyrir andstöðu sína gegn innrásinni í Írak, að sögn Colin Powell, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna. Powell viðurkennir þó að verið sé að end- urskoða samvinnu landanna tveggja „í ljósi nýrra aðstæðna“. Powell átti einkafund í París með utanríkisráðherra Frakka, Dominique de Villepin. Að loknum fundi sögðust ráðherrarnir sam- mála um að þjóðirnar yrðu að horfa fram á veginn og vinna að því að bæta samband sitt þrátt fyrir ýmis ágreiningsmál. ■ SVERÐIN SLÍÐRUÐ Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddi við kollega sinn í Frakklandi, Domin- ique de Villepin, fyrir fund utanríkisráðherra átta helstu iðnríkja heims.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.