Fréttablaðið - 26.05.2003, Side 12

Fréttablaðið - 26.05.2003, Side 12
Fyrir fjórum árum lagði ríkis-stjórn Davíðs Oddssonar af stað með stuðning tveggja af hverjum þremur Íslendingum. Nú segjast rétt rúmlega 54 prósent þeirra sem tóku afstöðu í könn- un Fréttablaðsins styðja stjórnina. Þótt þetta sé meiri- hluti þeirra sem tóku afstöðu er þetta lök útkoma. Vaninn er að nýjar ríkis- stjórnin fái vænan stuðning fyrstu vik- urnar og mánuðina. Rétt rúmlega meirihlutafylgi nú bendir til að fyrsta verk nýrrar ríkisstjóirnar verði að vinna traust þjóðarinnar. Þótt sú tilfinning sé útbreidd meðal þjóðarinnar að stjórnmála- menn kæri sig kollótta um afstöðu almennings milli kosninga skiptir það ríkisstjórnir miklu hversu víð- tækan stuðning þær hafa. Jafnvel stjórnir sem hafa góðan þingmeiri- hluta geta lent í vandræðum ef þær njóta ekki víðtæks stuðnings í sam- félaginu. Góður ásetningur og fín plön geta breyst í tafsaman barning ef jarðvegurinn er ekki frjór. Þetta verður auðséð í kjarasamningum við opinbera starfsmenn og í þátt- töku ríkisvaldsins í samningum á einkamarkaði. En þetta á einnig við um öll önnur mál. Ríkisstjórn Dav- íðs gat til dæmis ekki fengið þjóðina til að mæta á Þingvelli að fagna 1000 ára kristnitökuafmæli þótt hún hafi engu til sparað. Hljómgrunnur hennar meðal þjóðarinnar náði ein- faldlega ekki nægilega djúpt meðal fólks. En hvað hefur breyst frá því fyr- ir fjórum árum? Í fyrsta lagi hafa bæst fjögur ár við aldur þessarar ríkisstjórnar. Fleiri telja sig vita hvers hún er megnug og færri búast við einhverju nýju eða óvæntu úr hennar átt. Það er því eðlilegt að hún njóti ekki sama fylgis í upphafi kosningabaráttu og glæný ríkis- stjórn myndi gera. Stjórnarmynd- unin var líka óvenju átakalítil. Það var líkt því að flokkarnir rynnu mjúklega saman. Engin ríkisstjórn hefur fengið meiri stuðning í upp- hafi síns ferils en ríkisstjórn Gunn- ars Thoroddsen árið 1980. Hún var mynduð í kjölfar margra mánaða stjórnarkreppu og myndun hennar var því lausn; björgun. Sem kunn- ugt er hjálpaði þetta mikla fylgi þessari ríkisstjórn ekki mikið. Allur hennar starfstími var basl og ráða- leysi. Það er því ekki allt fengið með fljúgandi góðu starti. Í þessu sem öðru er sígandi lukka best; að ríkis- stjórn afli sér fylgis fremur en fá það í heimanmund. En fylgi stjórna er eftir sem áður eins konar inneign sem þær hafa úr að spila. Og sú stjórn sem býr að góðri inneign er líklegri að koma miklu í verk en sú sem er nálægt núllpunktinum. Þess vegna þarf hin nýja ríkisstjórn Dav- íðs að afla sér traust á fyrstu starfs- mánuðum sínum. En þar sem hún er ekki ný heldur gömul getur það reynst snúið. Hún þarf að yfirstíga stærri hindranir en ef hún væri splunkuný. Það er freistandi að draga þá ályktun af litlu byrjunarfylgi ríkis- stjórnarinnar að mörgum kjósand- anum finnist hann svikinn. Fyrir kosningar tiltóku báðir ríkisstjórn- arflokkarnir að þeir gengu óbundn- ir til kosninga og eftir því sem leið á kosningabaráttunni virtist þessi yf- irlýsing verða flokkunum nauðsyn- legri. Kosningabaráttan dró fram mikinn leiða með ríkisstjórnina. Þetta var sérstaklega augljóst með Framsóknarflokkinn. Hann fór ekki að auka fylgi sitt fyrr en Halldór Ásgrímsson reyndi að aðgreina flokkinn frá Sjálfstæðisflokknum. En það gerðist ekkert eftir kosning- ar sem bendir til að þessir flokkar hafi talið aðra kosti mögulega en áframhaldandi stjórnarsamstarf. Það hangir því eins konar sviksemi eða óheiðarleiki yfir myndun hinnar nýju stjórnar og það eykur enn á nauðsyn þess að stjórnarflokkarnir leggi sig fram um að byggja upp traust meðal þjóðarnnar. ■ Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON ■ skrifar um meðbyr ríkisstjórnarinnar. 12 26. maí 2003 MÁNUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Suðurgötu 10, 101 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands- byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Starfsmenn RÚV virtust viti sínufjær af tilhlökkun og spenningi alla síðustu viku. Júróvision var í nánd: og í hvert sinn sem maður opnaði fyrir rásir þessarar stofn- unar dundu á manni gömul júró- visionlög, upprifjanir gamalla þátttakenda, pistlar sérlegra sendimanna stofnunarinnar á staðnum og almennar bollalegg- ingar um að best færi á því að Birgitta væri bara „hún sjálf“. Meira að segja í Speglinum mátti heyra speki um „nýja sjálfsmynd Evrópu“ eða eitthvað þvíumlíkt: Öllu var tjaldað, þetta er aðalvið- burður ársins hjá þessari stofnun – ef ekki sá eini. forlátið neikvæðnina... Ég bið lesendur að afsaka þenn- an tón: Hann kemur sjálfkrafa. Ég er mótaður af þeim tímum þegar þessi keppni þótti fáfengileg og þótt í lagi væri svo sem að gjóa á hana auga hefði maður ekkert annað við tímann að gera var hún ekki til um- ræðu. Ég er sjálfskipaður menning- arviti og get ekki gert að því að vera alltaf óðara farinn að hugsa í ein- hverjum löngu úreltum skiptingum í háa og lága list, og þegar ég nú á sunnudagsmorgni reyni að hrista það af mér og grafa upp eitthvað já- kvætt til að segja um þessa keppni þá verður það eitt og annað: Birgitta Haukdal er til dæmis þjóðarger- semi. Og það er eitthvað ómótstæði- legt við þetta havarí allt saman; ég lét mig meira að segja hafa það að hringja sérstaklega og greiða at- kvæði laginu Hasta la vista bara til að óhlýðnast fyrirmælum Gísla Marteins Baldurssonar, og skildi ekki hvað væri hallærislegra við þennan vörpulega tenór frá Úkra- ínu en norska ungmennið sem var að reyna að syngja eins og Johnny Logan, og Gísli beitti öllum ráðum til að fá okkur til að kjósa. Eldri heimasætan fékk líka eitt símtal en var því miður önnum kafin við að fara handahlaup á meðan á upprifj- un laganna stóð svo að við þurftum í sameiningu að rifja upp í hvaða lagi hefðu verið svo flottar slæður og ákváðum að það hefði verið gríska lagið – sem var auðvitað tóm vitleysa því að stúlkan hafði meint tyrkneska lagið. Skilaboð frá Evrópu Og gaman að svo þjóðlegt lag skyldi vinna og að í þremur efstu sætunum væru lög með sérstakan karakter – það bar evrópskum al- menningi fagurt vitni. Það var líka eitthvað rétt við það að evrópskur almenningur skyldi kjósa lag með svo austrænum svip á þessum síð- ustu og verstu tímum og senda þar með til dæmis Bandaríkjamönnum ákveðin skilaboð um gildi islamskr- ar menningar en rasismi í garð ar- abískrar menningar tröllríður nú öllu þar vestra. Lagið hljómaði að vísu á köflum eins og eitt af hinum minna þekktu Spilverkslögum – af bláu plötunni minnir mig – en var ekki verra fyrir það og ætti að færa okkur heim sanninn um að næst sendum við kvæðamenn, rappara, Álftagerðisbræður eða Hallbjörn Hjartarson í fullum herklæðum – eitthvað íslenskt. Til hvers ríkissjónvarp? Í neðsta sæti voru Englending- ar sem ekki var að undra því stúlkan að minnsta kosti söng í einhverri allt annarri tóntegund en hljómsveitin lék og allur var flutningur lagsins mjög í skötu- líki. Í Englandi eru höfuðstöðvar popptónlistarinnar í Evrópu og það hversu báglega tókst til hjá ensku flytjendunum sýnir hvaða áherslu Englendingar leggja á þessa keppni. Seinna um kvöldið var hins vegar dæmi um það sem talið er þess vert að setja hugvit og orku og fjármagn í hjá enska ríkisút- varpinu. Það var Baskerville- hundurinn. Þótt Sherlock Holmes væri að vísu fáránlega ofleikinn í þessari mynd eins og furðu oft vill henda þá var unun að fylgjast með myndinni út af þeirri alúð sem sérhver sena vitnaði um, húmor gagnvart sinni menningu sam- hliða virðingu og ást á henni. BBC hefur skapað í sínum myndheimi eitthvert England sem kannski var aldrei til, en er það núna. Þannig gegnir stofnunin mikils- verðu hlutverki við að efla sjálfs- mynd þjóðarinnar, efla tilfinningu fyrir tilteknum arfi sem sé þess verður að halda í, sérkennum – menningu. Eftir skrykkjóttar tilraunir í þessa átt hefur RÚV endanlega gefist upp við að reyna að vera vettvangur sem á þennan hátt endurspegli íslenskt þjóðlíf fyrr og síðar. Á undan Júróvision gat hins vegar að líta afrakstur þess sem íslenskir kvikmyndagerðar- menn fá að fást við á vegum þess- arar stofnunar; það var löng bíla- auglýsing sem þóttist vera sjón- varpsmynd en var kannski fyrst og fremst mjög væmin. Og enn er ekki farið að búa til sjónvarps- seríu úr Dalalífi Guðrúnar frá Lundi, Falsaranum eftir Björn Th., Vesturfarabókum Böðvars, Fjallkirkjunni eftir Gunnar Gunn- arsson, Páls sögu eftir Ólaf Jó- hann, Í Verum eftir Theódór Frið- riksson, Þórubókum Ragnheiðar Jónsdóttur, ævisögu Einar Ben eftir Guðjón Friðriksson, Hrafn- hettu Guðmundar Daníelssonar... Svo gripið sé til íþróttamáls: þeir hjá Sjónvarpinu vaða í fær- um en vita ekki einu sinni af því að þeir séu í fótbolta. ■ Ekki fyrir hægfara ökumenn Pirraður ökumaður skrifar: Með þessum skrifum mínum íFréttablaðið vil ég gjarna koma ábendingu á framfæri til öku- manna sem halda að vinstri vegar- helmingur sé hannaður sérstaklega fyrir þá og sunnudagsrúntinn. Allt of stór hópur ökumanna gerir sér ekki grein fyrir að vinstri vegar- helming á að nota til þess að taka fram úr. Stöðugt verð ég fyrir þeirri leiðinlegu upplifun að keyra á eftir ökumanni sem vogar sér að vera á vinstri vegarhelmingi og keyra hægar en hámarkshraði segir til um. Til að misbjóða ekki lesendum ætla ég ekki að hafa eftir þær for- mælingar sem ég hef yfir lendi ég í þessu. Það fer fátt eins mikið í taug- arnar á mér og ég er þess fullviss að vera ekki ein um þessa skoðun. Ég vil taka það fram að ég hef ekkert á móti þeim ökumönnum sem kjósa að taka því rólega í um- ferðinni. Heldur gagnrýni ég þá ákvörðun þeirra að hanga eilíflega á vinstri vegarhelmingi. Leyfið okkur hinum sem erum alltaf að flýta okkur og kunnum ekki að slappa af að halda óhindrað áfram. Forðumst slysin, haldið ykkur á hægri vegarhelmingi. Með því kom- ið þið í veg fyrir eilífan framúrakst- ur sem, eins og vitað er, eykur slysahættu. ■ Um daginnog veginn GUÐMUNDUR ANDRI THORSSON ■ skrifar um Sjónvarpið. Til hvers er ríkissjónvarp? ■ Bréf til blaðsins Lítil inneign hjá þjóðinni Íslenska alþjóðabjörgunar-sveitin er nú að störfum á hamfarasvæðinu í Alsír sem myndaðist eftir að öflugur jarð- skjálfti reið yfir á fimmtudag. Árið 1999 sendi Slysavarnar- sveit Landsbjargar í fyrsta sinn björgunarsveit frá Íslandi til hamfarasvæðis erlendis. Stór jarðskjálfti hafði riðið yfir Tyrkland og í kjölfarið sendu tyrknesk yfirvöld neyðarkall til alþjóðasamfélagsins. Björgun- arsveitir fóru frá allmörgum löndum, þar með talið Íslandi. Björgunarsveitin sem fór á vett- vang var skipuð tíu sérþjálfuð- um og þrautreyndum björgun- arsveitarmönnum. Er það mál manna að þessi mikla reynsla hafi nýst vel við þessar hörmu- legu hamfarir sem urðu til þess að 18.000 manns létu lífið. Reynslan sem fékkst í Tyrk- landi varð til þess að hvetja íslenska björgunarsveitarmenn og ráðamenn þjóðarinnar til að halda áfram uppbyggingu alþjóðasveitar. 2. október árið 1999 var svo skrifað undir sam- komulag milli Slysavarna- félagsins Landsbjargar, utanrík- is- og dómsmálaráðuneytisins um stofnun alþjóðlegrar björg- unarsveitar. Starf sveitarinnar, sem skipuð er sjálfboðaliðum, hefur verið í örum vexti síðan. Hefur sveitin tekið þátt í um- fangsmiklum æfingum bæði í Bandaríkjunum og síðast í Rúss- landi. Björgunaraðgerðirnar sem nú standa yfir í Alsír eru fyrsta verkefni alþjóðasveitar- innar. ■ ■ Af Netinu Já, ráðherra „Við höfum séð það í kvikmynd- um á borð við Yes, Minister! að við stjórnarmyndun í Bretlandi sitja þingmenn við símann og naga neglurnar í taugaspennu í væntingu eftir því að forsætis- ráðherrann hringi í þá og bjóði þeim ráðherraembætti. Hér ger- ist þetta ekki á þann veg...“ BJÖRN BJARNASON Á VEF SÍNUM BJORN.IS. Sólsetursafdrep „Ljóst er að valdhafar líta svo á að sendiherrastöður séu ekki lengur embætti sem krefjast ákveðinnar hæfni eða reynslu úr utanríkisþjónustu. Ljóst er að þessar stöður eru að verða sól- setursafdrep fyrir ónothæfa stjórnmálamenn.“ HREINN HREINSSON Á VEFNUM KREML.IS. Á eftir bolta kemur barn ! styrkir knattspyrnu barna Þjálfun barna í knattspyrnu Stefna fyrir þjálfun barna í knattspyrnu Knattspyrna og barnið mitt Sjónarmið styrktaraðila Knattspyrna - Leikur án fordóma Góð ráð í þjálfun barna Hvað á þjálfarinn að kenna börnunum? Mín skoðun á þjálfun yngri flokka Hvað segja stjörnurnar? Sameiginleg ráðstefna KSÍ og ÍSÍ um þjálfun barna í knattspyrnu Hótel Loftleiðir, laugardaginn 31. maí 2003 frá kl. 13:00 til 17:00 Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis – skráningar þurfa að berast á netfangið andri@isisport.is í síðasta lagi föstudaginn 30. maí. Frekari upplýsingar má finna á www.ksi.is og www.isisport.is Logi Ólafsson Naysaa Adomako Þorlákur Árnason Rúnar Kristinsson Arnór Guðjohnsen Eggert Magnússon Sigríður Jónsdóttir Janus Guðlaugsson Jóhann Þór Jónsson Ásthildur Helgadóttir Ásta Guðmundsdóttir Sigurður Ragnar Eyjólfsson Skattar og stöðugleiki E.G. skrifar: Ekki skal stjórn okkar skeika, skatta sem mest henti henni. Að drepa á stöðugleika, öryrkja og gamalmenni. Baksviðs Íslenska alþjóða- björgunarsveitin ■ Rétt rúmlega meirihlutafylgi nú bendir til að fyrsta verk nýrrar ríkis- stjórnar verði að vinna traust þjóðarinnar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.