Fréttablaðið - 26.05.2003, Síða 18

Fréttablaðið - 26.05.2003, Síða 18
■ ■ FUNDIR  20.30 Þórunn Pétursdóttir, land- fræðingur og meistaranemi við Land- búnaðarháskólann á Hvanneyri, flytur erindi sem hún nefnir „Útbreiðsla Alaskalúpínu í Þjóðgarðinum í Skafta- felli.“ Um síðasta fræðsluerindi HÍN er að ræða og verður það í stofu 101, Lög- bergi, Háskóla Íslands. ■ ■ LEIKHÚS  20.00 Söngvaseiður eftir þá Rich- ard Rodgers og Oscar Hammerstein er sýndur í Þjóðleikhúsinu. Það er Litli leikklúbburinn og Tónlistarskóli Ísa- fjarðar sem setja sýninguna upp í leik- stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. 18 26. maí 2003 MÁNUDAGUR hvað?hvar?hvenær? 23 24 25 26 27 28 29 MAÍ Mánudagur MYNDLIST „Mér finnst stundum eins og steinn sé svolítið eins og skikkja yfir einhverri mynd. Ég fer þá í hlutverk þjónsins og kippi skikkjunni ofan af steininum,“ segir Örn Þorsteinsson myndlist- armaður. Hann er um þessar mundir með sýningu á Kjarvals- stöðum á höggmyndum eftir sig sem unnar eru úr íslensku og grænlensku grjóti. „Hún er oft furðuleg þessi leit að einhverri mynd í hverjum steini. Stundum er ég einhvern veginn alveg vissan um það hvað mér beri að gera og þá get ég geng- ið með miklum vaskleik að ein- hverjum steini. Það er bara örstutt í myndina.“ Örn hefur farið víða til að finna hentuga steina til að vinna úr. Margir þeirra eru frá Skagafirði, aðrir úr Vestmannaeyjum eða Öskjuhlíðinni í Reykjavík. Svo eru þarna steinar frá Grænlandi. „Þyngstu steinarnir á Kjar- valsstöðum eru kannski rétt um tonn að þyngd. Minnstu verkin eru hins vegar unnin í klébergið frá Grænlandi. Það er með alelsta bergi sem fyrirfinnst á jörðinni. Það er um tvö þúsund milljón ára gamalt. Það er svo gamalt að mað- ur bara nær því ekki alveg. Síðan eru minni grásteinsverkin öll unn- in í efni sem kemur úr Öskjuhlíð- inni. Það eru litlir tilhöggnir stein- ar sem hafa verið notaðir í hleðslu í alls konar byggingar. Þeir voru flestir unnir sennilega í atvinnu- bótavinnu milli stríða.“ Örn segir myndefnið gjarnan tengjast einhverjum sögnum eða vættum. „Allar þessar sögur og ævintýri í bókmenntum okkar krauma alltaf og ólga í undirmeð- vitundinni þótt ég sé kannski ekki alltaf með beina tilvísun í það. En það er eitthvað alveg sér- stakt við að vinna í einhvern stein sem hefur verið að velkjast í þúsundir ára í einhverju brim- róti norður í Skagafirði. Maður er sjálfur einhvern veginn alveg reynslulaus miðað við þessa steina.“ gudsteinn@frettabladid.is ■ MYNDLIST Sviptir skikkju af steinum Útimenning í miðbænum Andrúmsloftið breytist meðhækkandi sól í miðbæ Reykja- víkur. Mannfjöldinn eykst í takt við hækkandi hita og léttklæddir borgarbúar flatmaga á Austur- velli. Eitt af því sem ber vott um sumarkomuna er útikaffihúsin. Þeim kaffihúsum sem stilla borð- um og stólum upp undir berum himni fjölgar ár frá ári og sífellt verður vinsælla að sleikja sólina með kaffibolla í hönd. En hvaða kaffihús eru þetta og hvar eru þau? Café París, við Austurvöll, má kalla brautryðjanda útikaffihús- anna. Komist hitinn yfir 10 gráð- urnar á sumrin er nánast öruggt að Kaffi París er þétt setið. Það má segja að útistemningin sé eitt af aðalsmerkjum staðarins. Kaffibrennslan hefur einnig við sérstök tækifæri og í mjög góðu veðri skellt borðum út á stétt. Kaffihúsið geldur þó fyrir lítið pláss á stéttinni en er þekkt fyrir sumardrykkinn ískaffi. Thorvaldsen bar er eins og Kaffi París duglegt að þjóna til borðs undir berum himni. Thorvaldsen hefur skipað sér sess sem hádeg- isverðarstaður og er vinsæll sem slíkur, staðurinn er við Austur- völl. Apótekið er fjórða kaffihúsið við Austurvöll sem nýtir góða veðrið til að bera borðin út á stétt. Stað- urinn sker sig þó úr að því leyti að hann býður upp á teppi sé hita- stigið í lægri kantinum. Vegamót eru eina kaffihúsið á Laugavegssvæðinu sem hefur að- stöðu til að þjóna úti í góða veðr- inu. Staðurinn nýtur stöðugra vin- sælda og er ávallt þétt setinn í há- deginu. Vegamót eru við Vega- mótastíg. Café Victor hefur undanfarin sumur notað tækifærið í góða veðrinu og raðað borðum við Hafnarstræti. Victor er á móts við Ingólfstorg og því tilvalið að tylla sér niður og fylgjast með hjóla- brettakrökkunum.  Sýningin “Afbrigði af fegurð“ á Prikinu. Það er Femínistafélag Íslands sem stendur fyrir henni.  Ljósmyndasýningin Myndaðir máls- hættir stendur nú yfir í Caffé Kúlture í Alþjóðahúsinu við Hverfisgötu, gegnt Þjóðleikhúsinu. Þetta er sýning á loka- verkefnum útskriftarnema í ljósmyndun við Iðnskólann í Reykjavík. Sýningin stendur til 6. júní og er hún opin á af- greiðslutíma kaffihússins.  Björg Guðmundsdóttir er með sína fyrstu einkasýningu í Gallerí Tukt, Hinu Húsinu, Pósthússtræti 3-4. Björg tileink- ar börnum leikskólans Laufásborgar verkin, sem eru innblásin af litum og leikjum þeirra.  Yfirlitssýning á rússneskri ljósmynd- un stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Verk- in eru frá miðri nítjándu öld til dagsins í dag og bera glöggt vitni um þær breyt- ingar sem hafa átt sér stað í rússneskri ljósmyndun.  Sýning á höggmyndum eftir Örn Þorsteinsson stendur yfir á Kjarvals- stöðum. Sýningin teygir sig um ganga Kjarvalsstaða og umhverfis húsið.  Veronica Österman frá Finnlandi er með málverkasýningu í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5. Sýningin er opin virka daga 10-18 og laugardaga 11-16. 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Topp 20tölvuleikir ■ KAFFIHÚS 0ÖRN ÞORSTEINSSON Sýnir höggmyndir úr íslensku og grænlensku grjóti á Kjarvalsstöðum. Eve Online / PC Primal / PS2 Championship Manager 4 / PC Grand Theft Auto Vice City / PC & PS2 NBA Street 2 / ALLAR TÖLVUR Midnight Club 2 / PS2 Jurassic Park Operation Genesis / ALLAR TÖLVUR Battlefield 1942 / PC Viking Invasion: Medieval War / PC NBA Live 2003 / ALLAR TÖLVUR C&C Generals / PC Delta Force Black Hawk Down / PC Mortal Kombat Deadly Alliance / ALLAR TÖLVUR Tom Clancy’s Splinter Cell / ALLAR TÖLVUR Tekken 4 / PS2 Spyro Enter the Dragonfly / ALLAR TÖLVUR Battlefield 1942: Road to Rome / PC Half-Life Generation 3 / PC Harry Potter & The Chamber... / ALLAR TÖLVUR Tenchu: Wrath of Heaven / PS2 SÖLUHÆSTU TÖLVULEIKIR SKÍFUNNAR - VIKA 20

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.