Fréttablaðið - 06.06.2003, Side 1

Fréttablaðið - 06.06.2003, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Tónlist 20 Leikhús 20 Myndlist 20 Bíó 22 Íþróttir 18 Sjónvarp 24 KVÖLDIÐ Í KVÖLD AFMÆLI Grímuball á næsta ári FÓTBOLTI Vonbrigði að missa af leikjunum FÖSTUDAGUR 6. júní 2003 – 128. tölublað – 3. árgangur bls. 28 bls. 18 INNRÁS Olían skipti mestu máli bls. 4 Þið eruð hérna frumsýnt LEIKHÚS Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir í kvöld nýtt verk eftir Lárus Húnfjörð. Það heitir Þið eruð hérna og var skrifað til að minnast þess að 20 ár eru síðan leikfélagið var endurvakið. Það verður sýnt í húsnæði leikfélagsins að Vestur- götu 4-6 og hefst klukkan 20. DOKTORSVÖRN Birna Bjarnadóttir ver doktorsritgerð sína um fagurfræði í skáldskap Guðbergs Bergssonar í Hátíðasal Háskóla Íslands klukkan 14. Andmælendur eru Álfrún Gunn- laugsdóttir prófessor og Gert Kreutzer prófessor. Dr Anna Agn- arsdóttir, forseti heimspekideildar, stýrir athöfninni. Nýr skóli rís SKÓFLUSTUNGA Þórarinn Árnason borgarstjóri tekur fyrstu skóflu- stunguna að Ingunnarskóla í Graf- arholti með aðstoð nemenda. Þetta er fyrsti skóli sem byggður er í hverfinu. Ingunnarskóli hefur þeg- ar tekið til starfa í bráðabirgðahús- næði, en þar stunda börn í 1. til 10. bekk nám. STA Ð R EY N D UM MEST LESNA DAGBLAÐIÐ Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars/apríl 2003 22,1% 52,3% 61,7% FR ÉT TA B LA Ð IÐ M O R G U N B LA Ð IÐ D V VARNARLIÐIÐ Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segir samninga- viðræðurnar um Varnarliðið fyrst og fremst snúast um öryggis- og varnarmál, en ekki um atvinnumál á Suðurnesjum. „Að sjálfsögðu er það ljóst að sá viðbúnaður sem er hér á landi hef- ur áhrif á mannaflaþörfina,“ segir Halldór. „En þetta er fyrst og fremst öryggis- og varnarmál en ekki atvinnumál, á það vil ég leggja áherslu. Það hefur aldrei verið markmið í sjálfu sér að hafa erlendan her hér á landi. Mark- miðið hefur ávallt verið að tryggja öruggar varnir Íslands og Atlants- hafsbandalagsins.“ Halldór sagði að það yrði mikið áfall ef loftvarnir yrðu ekki tryggðar hér á landi áfram. Ef orr- ustuflugvélarnar yrðu fluttar burt myndu nokkur hundruð manns flytja með þeim. Það myndi einnig hafa áhrif á þjónustustigið á Keflavíkurflugvelli og almennt ör- yggi á Norður-Atlantshaf, þar sem þyrlur varnarliðsins hefðu gegnt mikilvægu hlutverki. sjá nánar bls. 2 Samningar um varnarliðið á Keflavíkurflugvelli: Snýst ekki um atvinnumál REYKJAVÍK Fremur hæg breytileg átt og skýjað. NA 5-10 og fer að rigna ná- lægt hádegi. Hiti 8 til 15 stig. VEÐRIÐ Í DAG + + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 8-13 Skýjað 8 Akureyri 5-10 Skýjað 9 Egilsstaðir 8-13 Rigning 8 Vestmannaeyjar 8-13 Skúrir 11 ➜ ➜ ➜ ➜ + + EFNAHAGSMÁL Ísland er skuld- settasta þróaða ríki heims í kjölfar þess að ofþensla síðustu ára leiddi til mikillar erlendrar skuldasöfn- unar. Þetta kemur fram í áliti sendinefndar Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins sem var hér á landi til að kynna sér ís- lensk efnahags- mál undir lok síðasta mánaðar. Skuldaaukn- ingin er einkum rakin til skuld- setningar einka- geirans. Hrein erlend skulda- staða þjóðarbús- ins nam 80% af vergri landsframleiðslu. Það er hæsta hlutfall sem þekkist meðal þróaðra ríkja. Vergar erlendar skuldir voru um 130% af vergri landsframleiðslu. Þjóðarbúskapur- inn er af þeim sökum viðkvæmari fyrir ytri áföllum, einkum vegna þess hve hagkerfið er opið og smátt. Í skýrslu sendinefndarinnar segir að það hvíli fyrst og fremst á ríkisfjármálum og annarri stefnu stjórnvalda að viðhalda jafnvægi í þjóðarbúskapnum. Í því samhengi er varað við því að hugmyndir stjórnvalda um útlánaaukningu Íbúðalánasjóðs verði að veruleika. Það er sagt geta grafið undan lausafjárstýringu Seðlabankans. „Þetta eru varkárir menn og leggja áherslu á að þetta verði inn- an strangra marka,“ segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra, sem telur að hægt sé að auka hús- næðislán og viðhalda stöðugleika á sama tíma. „Markmið ríkisstjórn- arinnar er 90% húsnæðislán í al- menna kerfinu þannig að þetta ógni ekki stöðugleika. Þannig verð- ur unnið áfram að þessu,“ segir Árni. Í áliti sendinefndarinnar segir að ójafnvægið sem myndaðist í uppsveiflunni undir lok síðasta áratugar sé að baki og útlit fyrir nýtt hagvaxtarskeið. „Stjórnvöld eiga hrós skilið fyrir vel heppnaða aðlögun efnahagslífsins. Hún er ekki síst að þakka framsýnni hag- stjórn yfir nokkurra ára skeið sem miðaði að stöðugleika og ýtti undir hagvöxt,“ segja skýrsluhöf- undar. brynjolfur@frettabladid.is Skuldsettastir þróaðra þjóða LÖGREGLAN VIÐ RÁNSSTAÐINN Maður vopnaður hnífi framdi bankarán í Landsbankanum í Grindavík um hádegisbilið í gær. Enginn skaðaðist vegna ránsins. Hann var klæddur samfestingi og með lambhúshettu. Einn maður er í haldi lögreglunnar grunaður um verknað- inn. Lögreglan stöðvaði alla bíla sem voru á leið úr bænum og fannst hann í einum þeirra. Hann var ekki í bílnum sem sést á myndinni. VÍ KU R FR ÉT TI R/ H IL M AR B R AG I „Þetta eru varkárir menn og leggja áherslu á að þetta verði innan strang- ra marka. VARNARLIÐIÐ Innkaupastjórinn seldi bíla til fyrirtækis í Keflavík. Sölunefndin: Fleiri nöfn á kvittunum VIÐSKIPTI Innkaupastjóri Sölu- nefndar Varnarliðseigna sem upp- vís varð að því að selja vörur framhjá sölukerfi stofnunarinnar seldi stóran hluta af vörunum í gegnum fyrirtækið Verktakasam- bandið ehf. í Reykjanesbæ. For- svarsmenn fyrirtækisins voru yf- irheyrðir í tengslum við rannsókn á máli innkaupastjórans um miðj- an nóvember. Þeir gátu sýnt fram á kvittanir frá Sölunefndinni fyrir öllu því sem keypt var. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins voru þeir með pappíra undir höndum vegna bifreiða- kaupa sem undirritaðir eru af fleirum innan Sölunefndarinnar en innkaupastjóranum, sem átt hafði viðskipti við þá í hálft annað ár. Sjá fréttaskýringu á bls. 16 og 17 Hlutfall erlendra skulda er hærra hér en hjá nokkru öðru þróuðu landi. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að fara verði varlega á næstu árum og varar við hugmyndum um að auka húsnæðislán upp í 90%. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON UTANRÍKISRÁÐHERRA Halldór sagði að það yrði mikið áfall ef loftvarnir yrðu ekki tryggðar hér á landi áfram. Bankarán í Grindavík: Tekinn á leið út úr bænum BANKARÁN Ungur maður var hand- tekinn síðdegis í gær vegna vopnaðs bankaráns í Landsbank- anum í Grindavík. Lögregla stöðvaði hann þar sem hann var á leið út úr Grindavík eftir ránið og tók hann til yfirheyrslu. Útak- sturleiðum úr bænum var lokað eftir ránið, bílar á útleið stöð- vaðir og engum hleypt út fyrr en lögreglan hafði fullvissað sig um að bankaræninginn væri ekki á ferli með feng sinn. Bankaránið var framið rétt eftir hádegi í gær. Tveir starfs- menn voru í afgreiðslu og einn viðskiptavinur inni í bankanum þegar maður vopnaði hnífi kom inn í bankann og rændi hann. ■ Heilbrigði: Dáleiðsla á spítala GEÐHEILSA Sex manna starfs- mannahópur á Landspítalanum vinnur nú við dáleiðslu sjúklinga á göngudeild geðdeildar spítalans. Ingibjörg Jakobsdóttir geðhjúkr- unarfræðingur segir að dáleiðslan gagnist vel því hana megi nota sem tæki á hvaða ástand þar sem hugurinn spilar inn í vandamál einstaklingsins. Ingibjörg segir dáleiðslu- meðferðina hafa gefið góða raun og þegar skilað árangri. Sjá nánar bls. 38 Holdið hemur andann FÓTBOLTI Breiðablik tekur á móti Haukum í 4. umferð 1. deildar karla klukkan 20 í kvöld. Á sama tíma sækir Njarðvík Þór heim á Akureyri og Stjarnan fær Leift- ur/Dalvík í heimsókn. Þrjár viðureignir í fyrstu deild

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.