Fréttablaðið - 06.06.2003, Síða 4

Fréttablaðið - 06.06.2003, Síða 4
4 6. júní 2003 FÖSTUDAGUR ■ Innlent Á að endurvekja sumarfrí Sjónvarpsins? Spurning dagsins í dag: Hvernig fer landsleikur Íslands og Færeyja? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 51,6% 35,6% Nei 12,8%Alveg sama Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Asía FARALDUR Faraldur bráðalungna- bólgu hefur þegar náð hámarki og er nú í rénun, að sögn Henk Bekedam, talsmanns Alþjóðaheil- brigðisstofnunarinnar. Engin ný tilfelli hafa komið upp í Kína í meira en tvo sólarhringa og lagði Bekedam áherslu á að sjúkdómurinn væri einnig á undan- haldi þar í landi. Engu að síður bað hann heilbrigðisyfirvöld um heim allan að vera á varðbergi. Í því sambandi benti Bekedam á Kanada þar sem HABL tók sig upp að nýju eftir að yfirvöld töldu sig hafa ráðið niðurlögum sjúkdómsins. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin varar almenning enn við því að ferðast til Taívan, Peking og nokk- urra héraða á meginlandi Kína. Stofnunin íhugaði að bæta Toronto aftur á þennan lista en hætti við þar sem svo virtist sem yfirvöld hefðu náð tökum á sjúkdómnum að nýju. Yfir 8.300 manns hafa smitast af bráðalungnabólgu um heim allan og eru að minnsta kosti 772 þeirra látnir. Enn er fjöldi manna í sóttkví í Suðaustur-Asíu og í Kanada. ■ FUNDU MIKIÐ MAGN BARNAKLÁMS Talið er að hluti barnaklámsmynda sem fundust við húsleit hjá rúmlega þrítugum manni í síðustu viku hafi verið framleiddur með íslenskum börn- um. Tugþúsundir barnakláms- mynda fundust hjá manninum. Lögregla hafði fengið ábendingu um að maðurinn reyndi að tæla börn og ungmenni til sín á spjall- rásum. Ríkisútvarpið greindi frá. ÍSLENDINGAR BUÐU BEST Foss- kraft JV, sem er í eigu Ístaks og Íslenskra aðalverktaka, átti lægsta boð í stöðvarhús Kára- hnjúkavirkjunar, stálfóðrun fall- ganga og vél og rafbúnað. Tilboðið var upp á 8,6 milljarða. Impregilo átti hæsta tilboðið, 15,3 milljarða. Ríkisútvarpið greindi frá. BERLUSCONI Silvio Berlusconi er ásakaður um að hafa mútað dómurum á níunda áratugnum, áratug áður en hann hóf stjórnmálaferil sinn. Lög um friðhelgi samþykkt: Berlusconi gæti sloppið RÓM, AP Öldungadeild ítalska þingsins hefur samþykkt lög um friðhelgi sem talið er að muni koma í veg fyrir að réttarhöldum verði haldið áfram yfir Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins, fyrir spillingu. Atkvæðagreiðsla vegna lag- anna verður næst lögð fyrir full- trúadeildina, þar sem talið er full- víst að þau verði einnig samþykkt. Samkvæmt lögunum eiga fimm af háttsettustu aðilum Ítalíu rétt á friðhelgi á meðan þeir eru í opin- beru embætti, þar á meðal forset- inn og forsætisráðherrann. ■ ÍRAK Bæði breska og bandaríska þingið rannsaka nú hvort gögnum um gereyðingarvopnaeign Íraka sem lögð voru fram í aðdraganda innrásarinnar hafi verið breytt til að auka stuðning við innrásina. Gögnin áttu að taka allan vafa af um það að Írakar ættu gereyð- ingarvopn en engin slík hafa fund- ist, né heldur nokkur ummerki um að þeim hafi verið eytt. Til þess að bæta olíu á eldinn hefur Paul Wolfowitz, aðstoðarlandvarnaráð- herra Bandaríkjanna, lýst því op- inberlega yfir að olíuhagsmunir hafi fyrst og fremst ráðið ferðinni og gereyðingarvopnaeign Íraka hefði verið tylliástæða. Þessi yfir- lýsing hefur m.a. grafið verulega undan trausti Tony Blair, forsæt- isráðherra Breta, sem hefur átt mjög undir högg að sækja í sínu heimalandi. „Ég á afskaplega erfitt með að trúa því að Bretar hafi verið að búa til upplýsingar í sambandi við þetta mál,“ segir Halldór Ás- grímsson utanríkisráðherra. „Hins vegar er ljóst að það voru gereyðingarvopn í Írak. Þau hafa ekki fundist en það hafa heldur ekki fundist neinar sannanir fyrir því að þeim hafi verið eytt. Annað hvort hefur þeim verið eytt eða þau hafa ekki fundist. Ég ætla ekki að spá neinu um það hvernig það er. Aðalatriðið er það að mik- ilvægt var að rjúfa það ástand sem var í Írak. Ég fann það á fundi Atlantshafsbandalagsins (í Madríd á þriðjudaginn) að það er mikil samstaða um að einhenda sér í uppbyggingu þar og styðja lýðræðisöfl á svæðinu.“ Um yfirlýsingu Wolfowitz seg- ir Halldór: „Ég tel að það sé alveg rétt að olía í Mið-Austurlöndum hefur áhrif á allt þetta mál. Olían í Mið-Austurlöndum er eitt af því sem knýr áfram efnahagsstarfs- semi í heiminum öllum, en olían í Írak skiptir þar ekki eingöngu sköpum. Bandaríkjamenn hafa ekki verið sérstaklega háðir olíu í Írak, hins vegar er allur hinn vestræni heimur háður olíu frá Mið-Austurlöndum.“ Aðspurður hvort það væri ekki áfall fyrir íslensku ríkisstjórnina að hafa stutt innrásina ef olíuhags- munir hafi einungis ráðið ferðinni svaraði Halldór: „Ísland tók ákveð- na afstöðu í þessu máli. Við tókum þá afstöðu, sem var einföld, að við teldum að það ætti að afvopna Saddam Hussein og við lofuðum því að vera með í uppbyggingu í Írak. Að öðru leyti tókum við ekki afstöðu til málsins.“ trausti@frettabladid.is BUSH George W. Bush ræðir við þjóðhöfðingjann í Katar, Sheik Hamad bin Khalifa Al Thani. „Þú hefur verið mikill vinur Bandaríkjanna og fyrir það erum við þakklát,“ sagði Bush. George W. Bush í Katar: Sannleikurinn kemur í ljós KATAR, AP George W. Bush Banda- ríkjaforseti segir að innrás Bandaríkjamanna í Írak hafi ver- ið réttlætanleg og heitir því að sannleikurinn eigi eftir að koma í ljós varðandi gjöreyðingarvopn Saddams Husseins. „Við erum á varðbergi. Við munum afhjúpa sannleikann,“ sagði Bush er hann heimsótti arabaríkið Katar í gær. Heim- sóknin var sú síðasta í utanlands- reisu hans sem hefur staðið yfir í viku. „Eitt er víst: engin hryðju- verkasamtök munu komast yfir gjöreyðingarvopn með hjálp Íraksstjórnar vegna þess að Íraksstjórn er ekki lengur til,“ sagði Bush. ■ DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Héraðsdóms Reykja- víkur í máli sem einkahlutafélag Ágústar Einarssonar hagfræði- prófessors höfðaði til riftunar á kaupum hlutabréfa í Frjálsri Fjöl- miðlun hf. Félag Ágústar, Haf ehf., keypti í desember 2001 hlutafé í Frjálsri fjölmiðlun fyrir 70 milljónir króna. Seljandinn var Hilmir ehf., félag í eigu feðganna Sveins R. Eyjólfssonar og Eyjólfs Sveins- sonar. Frjáls fjölmiðlun er gjaldþrota. Hæstiréttur segir héraðsdóm hafa látið undir höfuð leggjast að meta þau rök Ágústar að hann hafi keypt bréfin í félaginu til að liðka fyrir kaupum félagsins ESÓB ehf., sem Ágúst er hluthafi í, á 40% hlut í Útgáfufélaginu DV ehf. Hann kynni að eiga rétt á af- slætti vegna þessarar tengingar. Ágúst krafðist þess að fá allt kaupverðið greitt til baka eða þá að hann fengi að minnsta kosti 66 milljónir sem afslátt af kaupverð- inu. Héraðsdómur hafnaði báðum kröfunum. Hæstiréttur hefur nú vísað málinu til meðferðar í hér- aðsdómi að nýju á áðurnefndum forsendum. ■ EITURLYFJAHRINGUR UPPRÆTT- UR Kínverska lögreglan lagði hald á fjögur tonn af metam- fetamíni og handtók tíu manns sem taldir eru tilheyra glæpa- gengi sem stundað hefur ólögleg- an útflutning á lyfinu. Kína er eitt af helstu útflutningslöndum metamfetamíns og er það fram- leitt er á leynilegum rannsóknar- stofum í suðurhéruðum landsins. HITABYLGJAN SENN Á ENDA Hita- bylgja á Indlandi hefur kostað yfir 1.300 manns lífið á undan- förnum vikum. Þúsundir manna hafa verið lagðar inn á sjúkrahús vegna vökvaskorts og sólstings. Hitastigið hefur verið á bilinu 45 til 49 gráður, sem er um tíu gráð- um meira en í venjulegu árferði. Búist er við rigningu og lækkandi hitastigi um helgina. Árið 1998 létust yfir 2.500 manns í hita- bylgju á Indlandi. AP /M YN D AP /M YN D DÝRAGARÐUR SÓTTHREINSAÐUR Forvitið tígrisdýr fylgist með þegar sótthreinsunarefni er sprautað á götur dýragarðsins í Heilongjiang-héraði í Kína. Garðurinn hefur verið sótthreinsaður daglega síðan bráðalungnabólgan tók að breiðast út á svæðinu. Bráðalungnabólgan hefur þegar náð hámarki: Faraldurinn er í rénun DV-HÚSIÐ Ágúst Einarsson keypti 40% hlut í Útgáfu- félagi DV og 70 milljóna króna hlut í Frjálsri fjölmiðlun sama daginn. Hæstirétt- ur segir að héraðsdómur eigi að meta hvort Ágúst eigi ekki að fá afslátt vegna kaupanna í FF. Dómur ómerktur um kaup prófessors á hlut í Frjálsri Fjölmiðlun: Héraðsdómur meti afsláttarkröfu Blekkt til stuðnings? Paul Wolfowitz segir olíuhagsmuni hafa ráðið innrás í Írak. Stuðningur Íslands við innrásina var réttlættur með mikilvægi þess að afvopna Íraka. Wolfowitz segir meinta vopnaeign Íraka hafa verið tylliástæðu. AÐSTOÐARLANDVARNARÁÐHERRA BANDARÍKJANNA Paul Wolfowitz hefur lýst því opinberlega yfir að olíuhagsmunir hafi fyrst og fremst ráðið innrásinni í Írak.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.