Fréttablaðið - 06.06.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 06.06.2003, Síða 6
6 6. júní 2003 FÖSTUDAGUR ■ Lögreglufréttir GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 73.18 -0,11% Sterlingspund 119.93 -0,29% Dönsk króna 11.51 -0,35& Evra 85.46 -0,31% Gengisvístala krónu 119,51 -0,44% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 359 Velta 9.016 m ICEX-15 1.466 -0,19% Mestu viðskipti Pharmaco hf. 144.477.005 Íslandsbanki hf. 118.742.400 Össur hf. 66.385.331 Mesta hækkun Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. 20,00% Sölumiðstöð Hraðfrystih. hf. 2,00% Tryggingamiðstöðin hf. 1,90% Mesta lækkun Marel hf. -2,14% Samherji hf. -1,18% Eimskipafélag Íslands hf. -0,79% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8982,1 -0,6% Nasdaq*: 1618,8 -1,0% FTSE: 4088,6 -0,9% NIKKEI: 8657,2 1,2% S&P*: 986,2 0,0% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Hvað heitir heilsuræktarstöðin í mið-bæ Reykjavíkur sem var innsigluð af embætti Tollstjóra á miðvikudaginn vegna vanskila? 2Veitingahús í miðbænum hefur efnt tilmenningarhátíðar þar sem stefnt er saman listafólki á ýmsum sviðum. Hvað heitir veitingahúsið? 3Bandarísk gamanleikkona ætlar aðvera með raunveruleikaþátt á sjón- varpsstöðinni ABC. Hvað heitir konan? Svörin eru á bls. 30 VÍETNAM, AP Alræmdasti mafíufor- ingi Víetnams, Truang Van Cam, var dæmdur til dauða í gær. Hinum 55 ára gamla Van Cam hefur verið líkt við „Guðföðurinn“ úr samnefndum kvikmyndum því hann var einn umsvifamesti glæpamaður Víetnams um 15 ára skeið. Réttarhöldin yfir Van Cam, sem barðist við hlið Bandaríkja- manna í Víetnamstríðinu áður en hann leiddist út í glæpi, eru ein þau stærstu og umtöluðustu í sögu Víetnams. Um 150 manns voru ákærðir í kjölfarið á handtöku hans. Árið 2001 ákváðu stjórnvöld í Víetnam að fara í herferð gegn spillingu í landinu. Vegna tengsla Van Cam við lögregluna í Ho Chi Minh-borg þurfti að leita út fyrir borgina til þess að finna lögreglu- menn til að handtaka hann. Van Cam var m.a. dæmdur fyr- ir fjölda morða, líkamsárásir, ólögleg veðmál, mútur, mansal o.fl. Aftökusveit mun taka hann af lífi. ■ VAN CAM LEIDDUR ÚT ÚR RÉTTARSALNUM Van Cam var m.a. dæmdur fyrir fjölda morða, líkamsárásir, ólögleg veðmál, mútur, mansal o.fl. Stærstu réttarhöldum í sögu Víetnams lokið: „Guðfaðir“ Víetnams dæmdur til dauða Fundur í Downing- stræti 10: Blair tók á móti Karzai LUNDÚNIR, AP Hamid Karzai, for- seti Afganistans, heimsótti Tony Blair, forsætisráðherra Bret- lands, í Downing-stræti 10 í gær. Leiðtogarnir ræddu um upp- byggingu í Afganistan, nýja stjórnarskrá og leiðir til að draga úr heróínframleiðslu í landinu. Áður en Karzai hitt Blair átti hann fund með David Blunkett, innanríkisráðherra Bretlands. Ræddu þeir m.a. um flutning afg- anskra flóttamanna frá Bretlandi aftur til Afganistans. Karzai lýkur þriggja daga heim- sókn sinni um Bretland í dag. ■ Dæmdur í Héraðsdómi fyrir kynferðisbrot: Sex mánaða fangavist DÓMSMÁL Unglingspiltur var dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára. Hann var ákærður fyrir að hafa með ofbeldi þröngvað til samræð- is við sig stúlku sem ekki gat spornað við sökum ölvunar. Ekki er talið fullsannað að hann hafi þröngvað henni til samræðisins. Tillit var tekið til þess að hann var fimmtán ára þegar hann framdi brotið og hafði ekki sætt refsingu áður. ■ NABLUS, VESTURBAKKANUM, AP Ísra- elskir hermenn þurfu að beita táragási gegn um 200 Palestínu- mönnum sem mótmæltu veru Ísraela á Vesturbakkanum í gær. Mótmælin voru einnig höfð uppi í tilefni þess að í gær voru 36 ár liðin frá því Sex daga stríðið hófst fyrir botni Miðjarðarhafs. Ísraelsmenn sigruðu herlið araba í stríðinu og náðu þar með stjórn á svæðum araba á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. Ísraelar náðu Sinai- og Gaza-svæðinu af Egypt- um, Gólanhæðum af Sýrlending- um og Vesturbakkanum og Jer- úsalem af Jórdaníu. Yasser Arafat, leiðtogi Palest- ínumanna, hefur gagnrýnt harð- lega niðurstöðu friðarfundarins sem var haldinn í Jórdaníu á milli Ísraels og Palestínu fyrir tilstuðl- an Bandaríkjamanna. Þar var rætt um Vegvísinn til friðar sem miðar að því að stofnað verði palestínskt ríki fyrir árið 2005. Arafat, sem var ekki boðið til fundarins, sagði að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, hefði ekki haft neitt áþreifanlegt fram að færa. „Hver er tilgangurinn í því að færa nokkrar manneskjur frá einum stað og segjast þá hafa fært heila landnemabyggð?“ sagði Arafat. Um 40 þúsund manns söfnuðust saman í Jerúsalem í gær til að mót- mæla harðlega tilslökunum Shar- ons varðandi landnemabyggðirnar og framkvæmd Vegvísisins. Ör- yggisgæsla í kringum Sharon hef- ur nú verið aukin vegna hugsan- legra árása öfgafullra gyðinga. Öfgafullir Palestínumenn hafa einnig gagnrýnt Mahmoud Abbas, forsætisráðherra Palest- ínu, fyrir að heita því að binda enda á heilagt stríð Palestínu- manna gegn Ísraelum. ■ 36 ár frá Sex daga stríðinu Palestínumenn höfðu uppi áköf mótmæli vegna veru Ísraela á Vesturbakkanum. Mun fleiri mótmæltu tilslökunum Ariel Sharon varðandi landemabyggðir á svæðum Palestínumanna. VEGVÍSIR TIL FRIÐAR: MEGINATRIÐI 1. stig (maí 2003) Árásir Palestínumanna á Ísraela hætti. Stjórnarfarsbreytingar hefjist í Palestínu. Ísraelar dragi heri sína til baka frá svæð- um Palestínumanna. Kosningar í Palest- ínu. 2. stig (júní-des. 2003) Stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu. Al- þjóðlegur fundur um málefni Íraels og Palestínu. Alþjóðlegt eftirlit með því að Vegvísinum verði framfylgt. 3. stig (2004-2005) Annar alþjóðlegur fundur. Öllum átökum lokið. Landamæradeilur og málefni flóttamanna úr sögunni. Arabaríki sam- þykki friðarsamninga við Ísrael. MÓTMÆLI Palestínumaður hrópar ókvæðisorð að Ísraelum á mótmælafundinum á Vesturbakkanum í gær. AP /M YN D HNÍFSTUNGUR „Einn hefur játað að hafa beitt hnífi í þessum átökum í Hafnarstrætinu. Maðurinn sem var stunginn er kominn úr lífs- hættu og er að jafna sig. Við höf- um spjallað við hann og þurfum að gera það aftur,“ segir Hörður Jóhannesson hjá Lögreglunni í Reykjavík. Stympingar urðu milli liðs- manna Varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli og Íslendinga. „Eftir að þeim lauk voru tveir eftir, sá með stungusárin og sá sem við höfum handtekið og er í haldi. Hann hefur játað að hafa notað hníf í átökunum.“ Hörður segir að rannsókn málsins beinist að því hvort Bandaríkjamðurinn beri einn ábyrgð á öllum þessum stungum eða hvort fleiri hafi hugsanlega verið að verki. „Við höfðum uppi á honum með aðstoð rannsóknar- lögregluflotans á Vellinum og lög- reglunnar á Keflavíkurflugvelli.“ Hörður vildi ekki tjá sig um hvort sá sem hefur játað hafi bent á fleiri sem hefðu notað hníf. Hörð- ur segir að erfitt sé að fá skyn- samlega skýringu á því af hverju menn séu yfirleitt að slást. Málið sé komið nokkuð langt en ýmis- legt sé þó enn óljóst. ■ HAFNARSTRÆTI Rannsakað er hvort fleiri hafi beitt hnífi í átökunum. Hnífstungumálið: Kominn úr lífshættu FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T SUBWAY Stúlkurnar hafa játað og telst málið upp- lýst. Önnur af ránsstúlkum: Vann áður á Subway RÁN Önnur stelpnanna sem rændu Subway-veitingastaðinn í Grafar- vogi hafði áður verið starfsmað- ur þar. Stelpurnar, sem eru sautján og átján ára, komu inn á staðinn vopnaðar hnífi og hröktu starfsfólkið inn í kæli. Að því loknu tóku þær peninga og hlupu út. Vitað var í upphafi hverjar þær voru. „Lögreglumennirnir á vaktinni stóðu sig vel og höfðu uppi á þeim seinna um nóttina. Stelpurnar hafa gengist við öllu og telst málið upplýst,“ segir Hörður Jóhannesson hjá lögregl- unni í Reykjavík. ■ INNBROT Í SUMARBÚSTAÐ Brotist var inn í sumarbústað í Þingvallasveit. Innanstokksmunir voru teknir, m.a. handunnið teppi og útskorin hilla eftir Ríkharð Jónsson. Innbrotsins varð vart í gær. Eigendur komu að dyrunum opnum og þá var búið að hella niður steinolíu á golfteppið. Mál- ið er í rannsókn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.