Fréttablaðið - 06.06.2003, Síða 18
REGINA POKORNA
Ein aðalstjarna Hróksins.
Stórmeistarar
til Grænlands
Grænlandsmótið 2003 verður vel
skipað. Frægastur allra er Friðrik Ólafs-
son, sem var einn besti skákmaður
heims og fyrsti stórmeistari Íslendinga.
Stigahæstur er Ivan Sokolov, fyrirliði
Íslandsmeistara Hróksins. Hann er frá
Bosníu en býr í Hollandi og er einn af
bestu skákmönnum heims. Margir spá
því að hann berjist um sigurinn við
Jóhann Hjartarson, sem á árunum fyrir
1990 var með í baráttunni um heims-
meistaratitilinn og er ennþá stigahæsti
skákmaður Norðurlanda. Þá hlýtur
Hannes Hlífar Stefánsson að ætla sér
sigur. En fleiri munu blanda sér í barátt-
una: Luke McShane Englandi er á
hraðri uppleið, Predrag Nikolic Bosníu
er sannkölluð mulningsvél, Nick de
Firmian Bandaríkjunum býr að mikilli
reynslu, Tomas Oral Tékklandi hefur
sýnt að hann getur unnið sterk skákmót
og Henrik Danielsen Danmörku er
öllum skeinuhættur. Allir eru þessir
kappar stórmeistarar og hafa teflt á Ís-
landsmótinu með Hróknum. En á mót-
inu er einn stórmeistari til viðbótar:
Regina Pokorna frá Bratislava í Sló-
vakíu. Hún er 21 árs og er ein efnileg-
asta skákkona heims. Hún hefur unnið
frábært starf með börnum og þjálfað
krakka sem náð hafa langt. ■
Skoðið heimasíðu mótsins:
www.icechess.com/icelandic
A-lið Hróksins sigraði í 1. deild
Íslandsmóts skákfélaga, B-lið Hróksins
sigraði í 2. deild og C-liðið sigraði í 3.
deild. Öll markmið Hróksins náðust, sem
nú hefur unnið tíu deildarmeistaratitla á
fimm árum. Hrókurinn tefldi undir
merkjum Kaupþings hf. á Íslandsmótinu,
og hefur samstarfið verið einstaklega
gott og farsælt.
Hrókurinn var stofnaður 1998 og
fagnar fimm ára afmæli í september.
Félagið byrjaði í 4. deild en fór rakleit á
toppinn og varð Íslandsmeistari í fyrsta
sinn árið 2002.
Sigurlið Hróksins í 1. deild 2003 var
gríðarlega öflugt. Átta liðsmenn tefla
hverju sinni og eru 8 lið í deildinni. Ivan
Sokolov tefldi á 1. borði og leiddi Hróks-
liðið einsog herforingi. Aðrir fastamenn
voru hver öðrum öflugri: Stórmeist-
ararnir Predrag Nikolic frá Bosníu, Luke
McShane frá Englandi, Tomas Oral frá
Tékklandi og Nick de Firmian frá
Bandaríkjunum. Íslenskir liðsmenn A-
liðsins voru Stefán Kristjánsson, efnileg-
asti skákmaður landsins, Páll Þórarins-
son og Ingvar Þór Jóhannesson. Regina
Pokorna, stórmeistari frá Slóvakíu varð
fyrst kvenna til að tefla með A-liði
Hróksins. Sannarlega glæsilegur hópur
og styrktist enn í uppgjöri Hróksins við
Helli. Þá komu Alexei Shirov og Michael
Adams, sem báðir eru á topp tíu í
heiminum, inn í liðið ásamt Evrópu-
meistaranum Bartek Macieja.
Í 2. deild barðist B-lið Hróksins um
sigur við vaska Eyjamenn sem styrktu lið
sitt með erlendum keppendum. Í Hróks-
sveitinni, sem varð langefst að lokum,
tefldu m.a. stórmeistararnir Jan Votava
og Henrik Danielsen, enska stúlkan
Harriet Hunt, og þeir Tómas Björnsson,
Óskar Bjarnason, Halldór Pálsson og
Lárus Knútsson.
Mest var spennan í 3. deild þar sem
úrslitin réðust ekki fyrr en í síðustu
skákinni í lokaumferðinni. Skæðustu
keppinautar C-liðs Hróksins voru
Selfyssingar, sem stóðu sig feik-
navel. Lykilmenn í sigurliði
Hróksins voru Róbert Harðar-
son, Steingrímur Steinþórs-
son, Kjartan Guðmundsson,
Færeyingarnir Flovin Þór
Næs og Rógvi Rasmussen, að ógleymd-
um feðgunum Ómari Jónssyni og Hjalta
Ómarssyni.
Hrókurinn tefldi líka fram snörpu D-
liði í 4. deild, en þar var keppnin milli
Hauka og KR. Haukar sigruðu en D-lið
Hróksins stóð sig vel og hafnaði í 4. sæti
af 17. Liðsmenn Hróksins voru m.a.
Sveinbjörn Jónsson, Karl Þorsteins,
Böðvar Böðvarsson, Birgir Berndsen,
Páll Gunnarsson, Einar Valdimarsson og
Hrannar Jónsson. ■
2 6. júní 2003 FÖSTUDAGUR
Skáksystkinin
úr Rimaskóla
boðin til
Grænlands
Það verða ekki bara stórmeistarar
meðal keppenda á Grænlandsmótinu.
Meðal keppenda verða systkinin Ingvar,
12 ára, Sverrir, sem er á 11. ári, og
Ingibjörg, sem verður 9 ára í júlí. Öll eru
þau í Rimaskóla og hafa sótt skákskóla
Hróksins í vetur. Þau voru líka í sigur-
sveitum Rimaskóla sem varð Íslands-
meistari drengja- og stúlknasveita í fyrsta
sinn nú í vor. Systkinin fara til Grænlands
ásamt foreldrum sínum, Ásbirni Elíasi
Torfasyni og Rósu Ingvarsdóttur, í boði
mótshaldara. Sannkölluð ævintýraferð
fyrir skáksystkinin úr Grafarvogi! ■
H R Ó K U R N N
Hrókurinn hefur á undanförnum miss-
erum skipulagt marga alþjóðlega við-
burði á Íslandi. Listinn yfir erlenda
stórmeistara á mótum Hróksins 2002-
2003 geymir líka nöfn margra af sterkus-
tu skákmönnum heims. Þessir stórmeist-
arar hafa teflt á Hróksmótunum: Veselin
Topalov Búlgaríu, Michael Adams Eng-
landi, Alexei Shirov Spáni, Viktor Korts-
noj Sviss, Etienne Bacrot Frakklandi,
Joel Lautier Frakklandi, Emil Sutovsky
Ísrael, Predrag Nikolic Bosníu, Mihail
Gurevic Belgíu, Michael Krasenkow
Póllandi, Viktor Bologan Makedóníu,
Bartek Macieja Póllandi, Pavel Tregubov
Rússlandi, Jaan Ehlvest Eistlandi, Igor
A. Nataf Frakklandi, Zbynek Hracek
Tékklandi, Loek van Wely Hollandi, Ivan
Sokolov Bosníu, Vladimir Malakhov
Rússlandi, Konstantin Landa Rússlandi,
Bartek Macieja Póllandi, Michael
Þýskalandi, Jan Timman Hollandi, Jaan
Ehlvest Eistlandi, Tomas Oral Tékk-
landi, Nick de Firmian Bandaríkjunum,
Luke McShane Englandi, Henrik Dan-
ielsen Danmörku, Eric Lobron Þýska-
landi, Jan Votava Tékklandi. Að auki
hafa allir íslensku stórmeistararnir tekið
þátt í skákveislu Hróksins. Þeir eru
Friðrik Ólafsson, Jóhann Hjartarson,
Hannes H. Stefánsson, Margeir Pét-
ursson, Jón L. Árnason, Helgi Ólafsson,
Helgi Á. Grétarsson, Þröstur Þórhalls-
son og Guðmundur Sigurjónsson. Sam-
tals um 40 stórmeistarar, þar af hátt í 20
ofurstórmeistarar, en það orð er notað
yfir þá rétt rúmlega 100 skákmenn sem
náð hafa 2600 Elo-stigum. ■
Margir af bestu skákmönnum
heims á mótum Hróksins
✷
Beint strik á toppinn
Hrókurinn sigraði á Íslandsmóti skákfél-
aga 2002, aðeins fjórum árum eftir að
félagið hóf keppni í 4. deild. Línuritið
talar skýru máli: Sigur í 4. deild 1999,
sigur í 3. deild 2000, sigur í 2. deild
2001 og sigur í 1. deild 2002 og
aftur 2003.
19
99
1. deild
2. deild
3. deild
4. deild 20
00
20
01
20
02
20
03
SAMSTARFSSAMNINGUR
Hafliði Kristjánsson frá Kaupþingi og Ivan
Sokolov frá Hróknum, þegar skrifað var
undir samstarfssamning.
SIGURGLEÐI
Bandaríski stórmeistarinn Nick de
Firmian er fastamaður í
Hróksliðinu. Hér kemur hann inn í
liðsherbergi Hróksins. Að baki
Nicks er Róbert Harðarson.
Hrókurinn undir merkjum Kaupþings
Þrenna
Hróksins
2003!
Árni Höskuldsson sérlegur
gullsmiður Hróksins
Yfir 200
verðlauna-
peningar á
Barnaskák-
móti Nb.is
Það er um hálf öld síðan Árni Hösk-
uldsson fór í nám í gullsmíði. Hann hefur
starfað við greinina allt frá því hann lauk
námi og rekur gullsmíðastofu á Berg-
staðarstræti. Þegar hann er spurður hvort
starfið sé ekki stundum leiðinlegt og ein-
hæft svarar hann snöggur upp á lagið:
„Það fer eftir viðskiptavinunum og
blaðamönnunum sem koma í heimsókn.“
Árni valdi starfið snemma. „Pabbi
starfaði sem gullsmiður á Ísafirði og karl-
arnir úr Djúpinu komu til hans á vorin og
keyptu þá eitthvað handa konunni í
jólagjöf. Nútímakarlmenn eru ekki nógu
góðir við konurnar sínar, þeir voru miklu
betri hérna áður fyrr þótt þeir ættu
minna af aurum.“
Árni hefur hannað marga verðlauna-
gripi fyrir Hrókinn. Nýjasta verkefni
hans er vegna Barnaskákmóts Nb.is, en
þar fá allir keppendurnir – yfir 200 –
verðlaunapening og sigurvegarnir í
hverjum flokki fá veglegan bikar.■
Einn besti vinur
Íslendinga
Grænlandsmótið er tileinkað merki-
legum manni sem hét Daniel Willard
Fiske og fæddist árið 1831. Hann var
bandarískur en fékk ungur áhuga á sögu
og bókmennt-
um norrænna
manna. Hann
talaði og skrif-
aði íslensku,
kom einu sinni
til landsins og
varð vinur Ein-
ars Benedikts-
sonar skálds,
Jóns Sigurðs-
sonar frelsis-
hetju og fleiri
góðra manna.
Fiske gaf Ís-
l e n d i n g u m
gjafir sem
metnar eru á
mörg hundruð
milljónir, m.a.
m e r k i l e g
bókasöfn enda
hafði hann
mikinn áhuga á menntun og framförum.
En Fiske lagði líka grunninn að því að
Íslendingar urðu skákþjóð á 20. öld.
Hann dó 1904 í Þýskalandi eftir langa og
gifturíka ævi. Hægt er að fræðast betur
um þennan einstaka mann á heimasíðu
Grænlandsmótsins, www.icechess.com/
icelandic ■
Hrókurinnmælirmeð
Leigubílum
Það er gaman að skoða borgina á
fallegum degi (eða kvöldi) útum
afturrúðu glæsilegrar bifreiðar. Við
mælum með Hreyfli, bæði af því
þeir eru flottastir og líka af því
þeir styðja skákina!
DANIEL WILLARD
FISKE
Gaf Íslendingum gjafir
sem metnar eru á mörg
hundruð milljónir og
lagði grunn að skáklífi á
Íslandi.
INGVAR ÁSBJÖRNSSON
Einn efnilegasti Hróksmaðurinn er á leið til
Grænlands.
HRÓKURINN Skák er skemmtileg
Útgefandi Skákfélagið Hrókurinn www.hrokurinn.is
Ritstjórar Kristjón K. Guðjónsson og Kolbrún Bergþórsdóttir
Umbrot og hönnun Jón Óskar/Birtingaholt www.birtingaholt.is
Hróknum er dreift í 92.000 eintökum með Fréttablaðinu, 6. júní 2003.
Grái kötturinn
morgunverðarstaður á Hverfisgötu