Fréttablaðið - 06.06.2003, Síða 40

Fréttablaðið - 06.06.2003, Síða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR Afgreiðslutími allra verslana Hörpu Sjafnar! Alla virka daga kl. 8–18 og laugardaga kl. 11–15. Helgarvakt í Skeifunni 4. Opið laugardaga kl. 11–18 og sunnudaga kl. 13–18. Skeifan 4 Reykjavík Sími 568 7878 Snorrabraut 56 Reykjavík Sími 561 6132 Stórhöfði 44 Reykjavík Sími 567 4400 Austursíða 2 Akureyri Sími 461 3100 Hafnargata 90 Keflavík Sími 421 4790 Dalshraun 13 Hafnarfirði Sími 544 4414 Austurvegur 69 Selfossi Sími 482 3767 Bæjarlind 6 Kópavogi Sími 544 4411 599kr. lítrinnm.v.10 lítra dós 672kr . lítrinn 789 kr. lítrinn 399kr. lítrinn Stórafsláttur af útimálningu og viðarvörn SUMARTILBOÐ Alltaf er það nú jafn gaman og gottfyrir íslensku sveitasálina að komast aðeins til útlanda. Að fara til útlanda hefur raunar alla tíð verið talið til mikils munaðar á Íslandi, þó svo að það hafi reyndar færst í vöxt á undanförnum árum að fólk sleppi tímabundið af skerinu. Fólk þarf því ekki að finna til jafn mikillar sektar- kenndar núorðið gagnvart náungan- um fyrir að hafa laumað sér burt. En slíkt var nefnilega algengt áður. Ann- að hvort grobbaði fólk sig af því að fara til útlanda eða fór leynt með það. ALLTAF VEKUR það jafn mikla at- hygli í útlöndum að maður skuli vera frá Íslandi. „Are you from Iceland!?“ hrópaði afgreiðslustúlkan á pizza- staðnum í London sem ég fór á í gær til þess að fá mér eina með pepper- oni. Stúlkan sagðist aldrei hafa séð Íslending áður. Mér leið dálítið eins og ég þyrfti þar með að vera ákaflega spes fyrir hana og gera eitthvað stórfurðulegt. Fara með rímu eða gleypa eld. Hún hlustaði á Björk, sagði hún, og líkaði vel. ÞAÐ BÚA ofsalega margir í útlönd- um. Göturnar eru fullar af fólki og strætin af bílum. Í neðanjarðarlest- inni er alltaf troðið milli fimm og sex og þeir sem eru með gleraugu sjá ekki neitt vegna móðunnar sem sest á glerið út af andardrætti náungans. En fjölmennið hefur ekki bara svo hvim- leiða ókosti í för með sér. Af því má hafa nokkuð gaman. Meira gerist, og fjölbreytnin er meiri, þó svo London sé reyndar dálítið sér á báti. Þar er ekki hægt að sitja á pöbb eftir klukk- an 11. Mér finnst það vera svipuð sérviska og þegar við leyfðum ekki bjór. Eitthvað sem mun áreiðanlega breytast. EN ÞAÐ ER ÞETTA með fjölmenn- ið. Ég hef aldrei skilið almennilega af hverju Íslendingar eru svona fáir. Þetta er í raun dálítið pínlegt. Maður er kannski að halda því fram við út- lending að Ísland sé æðislegt og svo er maður spurður að því í miðri sam- ræðunni hversu margir búa þar og maður segir þessa eitruðu tölu „two hundred and eighty thousand“. Þá gapa menn bara. Mótsögnin er æp- andi. Ef þetta er svona æðislegt land, af hverju búa þá ekki fleiri þar? Ég veit það ekki. Ég verð alltaf jafn hissa. Að hluta til má rekja þetta til klúðurs í upphafi. Víkingarnir sem fluttu til Íslands voru bara ekki fleiri en þetta og síðan þeir komu hafa af- skaplega fáir aðrir mátt koma. Í útlöndum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.