Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 4

Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 4
4 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR Ætlarðu að stunda líkamsrækt í vetur? Spurning dagsins í dag: Hvernig gengur karlaliði KR í fótbolta næsta sumar? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 35,3% 41,2% Nei 23,5%Stundar líkamsrækt Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Níu fórust í Barentshafi: Kjarnorkukafbátur sökk MOSKVA,AP Níu af tíu áhafnar- meðlimum fórust þegar 40 ára gamall rússneskur kjarn- orkukafbátur sökk í Barents- hafi. Til stóð að fjarlægja tvo kjarnaofna sem voru í bátnum, en þeir voru síðast starfræktir árið 1989. Vegna slyssins er ótt- ast að mikið umhverfistjón geti orðið. Þrátt fyrir áhyggjurnar hélst geislavirkni í kafbátnum óbreytt eftir að hann sökk. Mikið óveður var í Barents- hafi þegar atvikið átti sér stað. Vindur reif í burtu flothylki sem voru föst við bátinn. Auk þess hafði turn bátsins verið skilinn eftir opinn. Sergei Ivanov, varn- armálaráðherra Rússlands, hef- ur þegar vikið ofurstanum sem bar ábyrgð á áhöfninni frá störf- um fyrir vanrækslu. Vladimir Putin, forseti Rúss- lands, hefur heitið því að ná- kvæm rannsókn á slysinu muni eiga sér stað. Annar kjarn- orkukafbátur verður sendur á slysstað til að hífa bátinn upp. Þrjú ár eru síðan rússneski kjarnorkukafbáturinn Kúrsk sökk í Barentshafi. 118 áhafnar- meðlimir fórust í því slysi. ■ Öllum sagt upp hjá KÁ Kaupfélag Árnesinga hefur sagt upp öllu starfsfólki á Hótel Selfossi og á skrifstofu kaupfélagsins. Allur rekstur hefur verið seldur eða á að seljast. Stefnt er að uppgjöri við kröfuhafa með nauðasamningum. REKSTRARERFIÐLEIKAR Kaupfélag Ár- nesinga hefur sagt upp öllum 3þrjátíu starfsmönnum Hótels Selfoss og öllum átta stjórnunar- og skrifstofumönnum hjá kaupfé- lagsinu sjálfu. Samhliða þessum aðgerðum hefur Kaupfélag Árnesinga (KÁ) selt rekstur hót- ela sinna á K i r k j u b æ j a r - klaustri og á Flúðum. Einnig mun stefnt að því að koma rekstri Eddu hótelsins í Vík í Mýrdal í hendur annars félags. Starfsmenn þessara þriggja hótela eru fjörutíu nú í ágúst. Áður en til þessara aðgerða kom hafði Olíufélagið hf. (Esso) tekið við rekstri nokkurra sölu- skála kaupfélagsins víðs vegar um Suðurland. Að því er segir í frétt stjórnar KÁ er starfsmönnum Hótels Sel- foss sagt upp til að skapa skilyrði fyrir endurskipulagningu á rek- stri hótelsins. Eigandi hótelbygg- ingarinnar er dótturfélag KÁ, Brú hf. sem freistar þess nú að semja við kröfuhafa um að fá 90 prósent af skuldum felld niður. Brú virðist þó allt eins stefna í gjaldþrot. Stjórn KÁ segir viðræður nú vera í gangi við nokkra aðila um að taka við Hótel Selfossi og halda áfram óbreyttum rekstri. Vonast er með niðurstöðu í þessu viðræð- um á næstu vikum. Samkvæmt yfirlýsingu stjórnar KÁ er ljóst að öll dagleg starfsemi félagsins leggist niður. Við upphaf greiðslustöðvarinnar hafi 185 starfsmenn verið hjá félaginu. Tekist hafi að verja 145 störf auk þess sem reynt sé að tryggja störf- in 30 á Hótel Selfossi. KÁ er í greiðslustöðvun vegna slæmrar fjárhagsstöðu. Við upp- haf greiðslustöðvunarinnar í sum- ar voru skuldir félagsins metnar vera ríflega 300 milljónir króna umfram eignir. Einar Gautur Steingrímsson, umsjónarmaður KÁ í greiðslu- stöðvunartímabilinu, segir endur- skipulagningu félagsins ganga vel. Enn sé þó ekki ljóst hversu mikið takist að greiða af skuldum. Félag- ið eigi enn fasteignir, eins og til dæmis stóru bygginguna á Austur- vegi á Selfossi sem hýsir meðal annars verslun Nóatúns. Þessar eignir verði annað hvort seldar eða tryggt að góður arður fáist af þeim. „Það verður að koma í ljós að þessu loknu hvert verður framtíð- arhlutverk Kaupfélags Árnes- inga,“ segir Einar Gautur. gar@frettabladid.is SPRENGJUHÓTUN Þúsundir farþega urðu fyrir óþægindum vegna sprengjuhótunar í ferjuhöfninni í Dover á Englandi á föstudagskvöld. Sprengjuhótun í Dover Þrír hand- teknir LONDON, AP Ferjuhöfninni í Dover á Suður-Englandi var lokað í fyrrakvöld vegna sprengjuhótun- ar. Torkennilegur pakki fannst á hafnarsvæðinu og var svæðið strax rýmt og ferjum vísað frá höfninni meðan sprengjusérfræð- ingar könnuðu svæðið. Þúsundir farþegar þurftu að bíða í nokkrar klukkustundir um borð í ferjum meðan lokunin varði. Þrír menn voru handteknir inni á hafnar- svæðinu eftir að ólögleg vopn fundust í fórum þeirra. Umferð um Dover komst í samt lag í gær- morgun. ■ STURLA BÖÐVARSSON Samgönguráðherra sendi aðstoðarmann- inn til Brussel en auglýst ekki starfið. Háskólamenn: Ríkið van- rækir auglýs- ingaskyldu STJÓRNSÝSLA Bandalag háskóla- manna (BHM) segir ráðuneyti ekki virða þá skyldu að auglýsa laus störf. Á heimasíðu BHM segir að framkvæmdarstjóri BHM, hafi sent félagsmálaráðuneytinu og samgönguráðuneytinu fyrir- spurnir um tvær ráðningar án auglýsingar; um setningu Her- manns Sæmundssonar í embætti ráðuneytisstjóra félagsmálaráðu- neytis og ráðningu aðstoðar- manns samgönguráðherra, Jakobs Fals Garðarssonar, sem fasts starfsmanns í Brussel. Ráðuneytið sagði starf Jakobs hafa verið auglýst en BHM segir það hafa verið eftir að hann var ráðinn. ■ SMÁRALIND Sumarútsölur Smáralindar hafa verið vel sóttar því verslun í Smáralind hefur vaxið um 20% undanfarna mánuði samanborið við sömu mánuði í fyrra. Aukning í Smáralind: Átta milljón heimsóknir VERSLUN Tæplega átta milljónir gesta hafa heimsótt verslunar- miðstöðina Smáralind frá opnun hennar. Rúmlega 70 milljón króna tap varð af rekstrinum fyrstu sex mánuði ársins samanborið við ríf- lega 380 milljón króna hagnað sama tímabil í fyrra. Viðsnúning- ur fjármagnsliða skýrir að mestu afkomubreytinguna. Tekjur dróg- ust saman um rúmar 30 milljónir króna. Töluverð fjölgun gesta hefur verið í Smáralind í júlí og einkum ágúst miðað við sömu mánuði í fyrra. Heildarsala í Smáralind hefur vaxið um 20% á undanförn- um mánuðum miðað við sama tíma í fyrra. Átta af upphaflegum leigjend- um í Smáralind hafa hætt starf- semi. Útleiga hefur aukist og á fé- lagið í viðræðum við nýja leigu- taka. Stefnt er að því að 95 til 97% húsnæðis verði leigt í árslok. ■ Sjúkdómahætta í Sundahöfn: Óhreinsaður svínaflutningabíll til Íslands LANDBÚNAÐUR Notaður gripaflutn- ingabíll sem ekki uppfyllir skil- yrði yfirdýralæknis um skoðun og hreinsun erlendis fyrir flutningi til Íslands stendur nú á hafnar- bakkanum í Sundahöfn. Bíllin var keyptur í Þýskalandi þar sem hann mun hafa verið not- aður í svínaflutninga. Bíllinn var sendur með skipi frá Hamborg fyrir um þremur vikum. Innflytj- andi bílsins mun ekki hafa beðið eftir fyrirmælum yfirdýralæknis um það hvernig staðið skyldi að málinu. Meðal þess sem er krafist er í slíkum tilvikum er að dýra- læknir frá embætti yfirdýralækn- is fari utan og sjái til þess að bíl- inn sé rækilega hreinsaður til að fyrirbyggja að sjúkdómasmit ber- ist til landsins. Þetta var ekki gert. Kostnaður við slíka utanför er mismunandi eftir aðstæðum. Þrátt fyrir þennan mikilvæga agnúa er nú verið að kanna hvort landbúnaðarráðuneytinu sé engu að síður stætt á að heimila inn- flutning bílsins að undangenginni heimsókn í hreinsunarstöð. Sam- kvæmt upplýsingum frá ráðuneyt- inu var bílinn skoðaður á fimmtu- dag af héraðsdýralækni og á föstu- dag af yfirdýralækni. Ákvörðun verður tekin í ráðuneytinu þegar niðurstaða þeirra liggur fyrir. ■ RÚSSNESKUR KAFBÁTUR Þessi mynd var tekin af rússneskum kaf- báti á sjöunda áratug síðustu aldar, Hann er sömu gerðar og sá sem sökk í Barent- hafi seint á föstudagskvöld. AP /M YN D Eyðing ólöglegs lyfjagrunns: Löng aðlögun LYF Lyfjastofnun má halda ólögleg- um gagnagrunni með upplýsingum um lyfjaneyslu einstaklinga í 15 mánuði til viðbótar samkvæmt úr- skurði Persónuverndar. Fresturinn til 1. janúar 2005 til eyðingu gagna- grunnsins er meðal annars veittur af tæknilegum ástæðum að sögn Valtýs Sigurðssonar, héraðsdómara og formanns stjórnar Persónu- verndar. „Það geta til dæmis verið önnur gögn inn í grunninum sem þarf að flokka og aðskilja,“ segir Valtýr. Ekki náðist í gær í forstjóra Lyfjastofnunar. ■ HÓTEL SELFOSS Öllum starfsmönnum á skrifstofu Kaupfélags Árnesinga og á Hótel Selfossi hefur verið sagt upp. Einar Gautur Steingrímsson, umsjónarmaður félagsins á greiðslustöðvunartíma- bili segir að koma muni í ljós eftir endurskipulagningu og nauðasamninga hvaða hlutverk félagsmenn velja félaginu. „Það verður að koma í ljós að þessu loknu hvert verður fram- tíðarhlutverk Kaupfélags Árnesinga.“ ÞÝSKI GRIPAFLUTNINGABÍLLINN Í SUNDAHÖFN Þýskur notaður gripaflutningabíll er orðinn að vandræðamáli í landbúnaðarráðuneyt- inu eftir að eigandi bílsins flutti hann til landsins án þess uppfylla skilyrði um hreinsun fyrir uppskipun erlendis. Tengi- vagn sem fylgir bílnum stendur annars staðar á lóð Sundahafnar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.