Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 6
6 31. ágúst 2003 SUNNUDAGURVeistusvarið? 1Rússneskur kafbátur sökk í Barents-hafi. Hve margir fórust? 2Frækinn sundgarpur á afmæli í dag.Hversu gamall er hann? 318 ára gamall piltur var handtekinn íBandaríkjunum. Hvað gerði hann af sér? Svörin eru á bls. 39 Íbúðalánasjóður unir ekki úrskurði: Stefnir hlunnförnum íbúðarsala FASTEIGNIR Íbúðalánasjóður hefur stefnt fyrir Héraðsdóm Reykja- víkur manni sem Úrskurðar- nefnd húsnæðismála hafði dæmt 3,9 milljóna króna bætur frá sjóðnum. Maðurinn var eitt margra fórnarlamba eiganda fasteigna- sölunnar Holts sem játaði að hafa falsað framsal fasteigna- bréfs til að sölsa undir sig 3,9 milljónir króna. Maðurinn hafði falið fasteignasalanum sölu íbúðar og var fasteignabréfið hluti greiðslunnar fyrir íbúðina. Íbúðalánasjóður hafði fallist á að greiða nokkrum fórnar- lambanna bætur, en taldi þenn- an tiltekna manna sjálfan bera ábyrgð á sínum málum. Úr- skurðarnefndin reyndist ósam- mála. Sigurður Georgsson, lögmað- ur íbúðasalans, segist aðspurður vera undrandi á málshöfðun Íbúðalánasjóðs: „Það er spurning hvort Íbúða- lánasjóður hefur réttarstöðu til að höfða þetta mál. Einstakling- ar geta farið í mál sem eru óá- nægðir með úrskurði úrskurða- nefnda. Ég álít að þarna séu árekstrar innan stjórnvaldsins; að stjórn Íbúðalánasjóðs sé und- ir Úrskurðarnefnd húsnæðis- mála,“ segir Sigurður. ■ Gögn teppt hjá skrifstofustjóra Svar við fyrirspurn um greiðslur Reykjavíkurborgar til Stefáns Ólafssonar prófessor dagaði uppi hjá skrifstofustjóra borgarstjórnar um miðjan maí. Kjartan Magnússon borgarfulltrú fékk svarið loksins á föstudag. Svar borgarbókara um greiðslurReykjavíkurborgar og borgar- fyrirtækja til Stefáns Ólafssonar prófessors strönduðu í vor hjá skrifstofustjóra borgarstjórnar. Kjartan Magnússon, borgar- fulltrúi Sjálf- stæðisflokks, óskaði 30. apríl eftir upplýsing- um um greiðsl- ur til Stefáns á árunum 1994 til 2003. Beiðnin var send skrif- stofu borgar- stjórnar sem framsendi hana til borgarbók- ara. Svar Guðrúnar Torfhildar Gísladóttur borgarbókara var sent sömu leið til baka 12. maí. Ólafur Hjörleifsson, staðgeng- ill Gunnars Eydals, skrifstofu- stjóra borgarstjórnar, segir Gunn- ar hafa talið að borgarbókari hafi jafnframt sent Kjartani svarið beint, þó það sé ekki hefðbundin boðleið: „Gunnar gaf sér einfald- lega að pósturinn hefði verið sendur til Kjartans um leið og honum. Það er ekki við borgar- bókara að sakast.“ Kjartan óskaði á þriðjudag eft- ir atbeina borgarráðs við að fá umbeðnar upplýsingar. Að sögn Guðrúnar borgarbókara var haft samband við hana frá borgarrit- ara eftir fundinn. Hún hafi þá skýrt frá hinu rétta. Þrátt fyrir þetta hafði Kjartani enn ekki ver- ið kynnt raunveruleg staða máls- ins í hádeginu á föstudag eða honum sent svarið við fyrirspurn- inni. Úr þessu var bætt síðdegis á föstudaginn. „Skrifstofustjórinn er í fríi núna og við vildum kom- ast til botns í hvernig stæði á þessu áður en við sendum svarið,“ útskýrir Ólafur viðbótartafirnar. Að sögn Kjartans er hann afar þakklátur fyrir að hafa loks feng- ið svarið: „Ég veit að skrifstofustjóri borgarstjórnar er ekki að segja ósatt og áfellist hann ekki. Það er samt skrítið að hafa ekki fengið svar um hæl á sínum tíma. Það getur varla verið að borgarbókari einn kunni á hið rándýra bók- haldskerfi borgarinnar.“ Kjartan segist reyndar fyrst hafa beðið um upplýsingar varð- andi Stefán á borgarstjórnarfundi í mars 2001. Það hafi verið í tengslum við umræðu um flug- vallarmálið. „Þá lofaði æðsti emb- ættismaður borgarinnar, borgar- stjóri sjálfur, að senda mér þessar upplýsingar. Það gerðist aldrei.“ Þess má geta að Stefán Ólafs- son fékk um 2,6 milljónir króna á árinu 2001 vegna vinnu við undir- búning atkvæðagreiðslu um fram- tíð Reykjavíkurflugvallar. Um aðrar greiðslur til Stefáns var ekki að ræða. gar@frettabladid.is Verðbólga í ESB-löndun- um: Komin yfir viðmiðunar- mörk BRUSSEL, AP Verðbólga í ríkjum Evr- ópusambandsins jókst um 0,2% í síðasta mánuði og mælist nú 2,1% á ársgrundvelli. Þar með hefur verð- bólgan rofið tveggja prósenta við- mið Evrópubankans. Verðbólgan í ESB mældist 1,9% í júlí og aukning- in nú er mun meiri en hagfræðingar höfðu spáð. Hækkun matvælaverðs vegur þungt í hækkun verðbólgunn- ar og er áframhaldandi hækkun spáð í september. Sama á við um orkuverð. ■ Oxford Street Wigm ore S treet Grosv enor Squar e Grosv enor Street Kensington Road Bayswater Road Paddington Station Knigh gsbrid ge Ki ng s R oa d Sloan Street St. Jam es's Street Baker Street G loucester Street Edgware Roadt Westmister Bridge O ld Bond Street N ew Bond Street Victo rya Stre et River Thames Covent Garden Soho W aterloo Bridge Pic cad illy Pa ll M all Oxford Street New Oxfo rd Regent Street Regent Street H aym arket C haring C ross R oad Picadilly Circus Hide Park Green Park Marylebone Henry VIII Churchill Inter Continental Thistle Kensington Palace Mayfair Bloomsbury Knightsbridge Notting Hill Sherlock Holmes Millennium Mayfair Jurys Doyle Clifton Ford K-West www.icelandair.is London www.icelandair.is/london Eyða einum degi í Westbourne Grove og Notting Hill, fjarri skarkala helstu verslunar gatnanna. Fara á markaðinn á Portobello Road á laugardegi. Í London þarftu að: á mann í tvíbýli í 2 nætur. Innifalið: flug, gisting á Henry VIII, morgunverður, flugvallarskattar og þjónustugjöld. Brottfarir 16. jan. og 21. feb. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 21 70 5 0 7/ 20 03 Verð frá 29.900 kr. VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina FRÉTTABLAÐIÐ Á FÖSTUDAG Borgarfulltrúinn Kjartan Magnússon vissi ekki fyrri en Fréttablaðið skýrði honum frá því á föstudag að svar við fyrirspurn hans um greiðslur til Stefáns Ólafssonar hefur legið á skrifstofu borgarstjórnar frá því 12. maí í vor. „Ég veit að skrifstofustjóri borgarstjórn- ar er ekki að segja ósatt og áfellist hann ekki. ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Lögmaður íbúðasala segist efast um rétt Íbúðalánasjóðs til að höfða mál vegna úr- skurðar Úrskurðarnefndar húsnæðismála. MÓTMÆLI Hátt í 7000 manns söfnuðust saman fyrir utan þinghúsið í Kaupmannahöfn til stuðnings Kristjaníu. Deilur um framtíð Krist- janíu: Mótmæli við þinghúsið DANMÖRK,AP Hátt í sjö þúsund manns söfnuðust saman fyrir utan þinghús Danmerkur til að mótmæla áformum stjórnvalda um að hefja dýrar byggingafram- kvæmdir í Kristjaníu. Mikil óvissa hefur verið um framtíð þessarar frægu hippaný- lendu. Hafa stjórnvöld verið tví- stígandi í áformum sínum um að tvístra samfélaginu sem þar hef- ur verið uppi frá árinu 1971. „Stjórnvöld vilja ekki að venjulegir Danir sjái að það sé hægt að lifa öðruvísi lífi,“sagði rithöfundurinn Ebbe Kloevedeal Reich sem var á meðal mótmæl- enda. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.