Fréttablaðið - 31.08.2003, Qupperneq 7
■ Norðurlönd
7SUNNUDAGUR 31. ágúst 2003
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100
Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
og hjá umbo›smönnum um land allt. www.urvalutsyn.is
Úrval-Úts‡n
* Innif.: Flug, flugvallaskattar, gisting,
akstur og íslensk fararstjórn.
á mann m.v. 2 í íbú› á Golden Bay í 7 nætur.
Aukavika 17.000 kr.
59.970 kr.*
Hausttilbo›:
m.v. 2 í herbergi á Porto Platanias í 7 nætur.
Hálft fæ›i innifali›.
Aukavika 29.900 kr.
65.970 kr.*
Hausttilbo›:
m.v. 2 í stúdíói á Paraiso, Brisa Sol og Ondamar.
Aukavika 18.000 kr.
49.455 kr.*
Hausttilbo›:
á mann m.v. 2 í stúdíói í 7 nætur á Royal Beach.
Aukavika 17.700 kr.
58.630 kr.*
Hausttilbo›:
Benidorm/Albir
PortúgalKrít Tyrkland
Íslendingar eiga ógleymanlegar
stundir á sælueyjunni Krít.
8. sept.
15. sept.
22. og 29. sept.
Vinsælasti áfangasta›ur
Úrvals-Úts‡nar frá upphafi.
2. sept.
9. sept.
16., 23., og 30. sept. og 7., og 14. okt.
Perla Mi›jar›arhafsins - heillandi
áfangasta›ur.
4., 11. sept.
18. sept.
Fjörugt strandlíf og ví›frægt næturlíf.
3., 10., 17. og 24. sept.
Mallorca
m.v. 2 í íbú› á Portobello e›a Club Ilayda
í 10 nætur.
72.650 kr.*
Ver› frá:
45.930 kr.*Hausttilbo›:
Austræn og sei›andi sólarströnd.
25. sept. í 13 nætur
8. október í 10 nætur
m.v. 2 í stúdíói í 7 nætur á La Colina. Aukavika 11.600 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
21
06
08
/2
00
3
Allra
sí›ust
u sæt
in
Uppselt
Örfá sæti
Uppselt
Örfá sæti
Uppselt Uppselt
Örfá sæti
FÉLAGSMÁL „Það er afar slæmt
ástand á mörgum heimilum og
talsvert af fólki sem ekki hefur
efni á að senda börn sín í skóla,“
sagði Sigrún Reynisdóttir, for-
maður Samtaka gegn fátækt.
„Hingað hafa margar konur
hringt, gráti næst, sem ekki
geta keypt nauðsynleg skóla-
gögn handa börnum sínum. Það
sem verra er, er að þær sem
leita á náðir Félagsþjónustunn-
ar fá enga hjálp þar og aðrar
hjálparstofnanir eru lokaðar
vegna sumarleyfa. Það er í eng-
in hús að venda. Ástandið er
með alvarlegasta móti. Þessar
konur hafa engin efni á að
greiða fyrir bækur, töskur, föt
eða annað sem börnin þurfa.“
Sigrún sagðist hafa kannað
hvort að ASÍ gæti rétt hjálpar-
hönd en fengið kuldaleg svör.
„Mér var bent á að vera ekkert
að hringja þangað, þetta kæmi
þeim ekki við.“
Skólastjórar sem rætt var
við, sögðust lítið eða ekkert
hafa orðið varir við mál eins og
Sigrún lýsir. ■
GUÐJÓN ARNGRÍMSSON
Við eigum frábæra flugmenn og viljum
nýta þeirra krafta áfram.
Guðjón Arngrímsson:
Engir er-
lendir flug-
menn
ATVINNUMÁL „Það starfa eingöngu
flugmenn innan Félags íslenskra
atvinnuflugmanna hjá Flugleið-
um,“ sagði Guðjón Arngrímsson,
blaðafulltrúi Flugleiða, en tals-
verð umræða hefur farið fram á
fjölda erlendra flugmanna sem
starfa hjá íslenskum flugfélög-
um.
„Við höfum samning við FÍA
og samkvæmt honum ráðum við
eingöngu félagsmenn þess fé-
lags. Engir þeirra eru erlendir.“
Guðjón segir að flugrekstur sé
alþjóðlegur og atvinnuöryggi ís-
lenskra flugmanna hljóti að
bygja á því að þeir séu sam-
keppnishæfir. „Verð farseðla
lækkar stöðugt og flugfélög
verða að lækka hjá sér kostnað ef
ekki á illa að fara. Þar vegur
launakostnaður þungt. Við fylgj-
umst vel með þróuninni og eigum
gott samstarf við FÍA um að gera
þær nauðsynlegu breytingar sem
samkeppnisumhverfið í fluginu
kallar á, meðal annars í tengslum
við leiguflug.“ ■
Almannatryggingar:
Frítekju-
mörk hækka
VELFERÐARMÁL Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytið hefur
hækkað frítekjumörk greiðslna
almannatrygginga um 6% frá og
með 1. september.
Þetta þýðir t.d. að ellilífeyrir
almannatrygginga, 20.630 krónur
á mánuði, byrjar að skerðast
þegar eigin mánaðartekjur ellilíf-
eyrisþega eru komnar yfir
124.675 krónur. Greiðslur úr líf-
eyrissjóði koma þó ekki til skerð-
ingar. Þegar eigin mánaðartekjur
eru komnar yfir 193.441 krónur
fellur ellilífeyrir niður.
Tekjutrygging ellilífeyris-
þega, 38.500 krónur, byrja að
skerðast við tekjur sem eru
40.007 krónur á mánuði. ■
SIGRÚN REYNISDÓTTIR
formaður Samtaka gegn fátækt segir
ástandið með alvarlegasta móti í dag.
Formaður Samtaka gegn fátækt:
Slæmt ástand
Hátíðarhöld í Bandaríkj-
unum:
100 ára af-
mæli Harley
MILWAUKEE,AP Tugum þúsunda mót-
orhjóla var ekið um götur
Milwaukee í Bandaríkjunum í gær
í mikilli skrúðgöngu tilefni af 100
ára afmæli Harley Davidsons-fyr-
irtækisins.
Skrúðgangan var einn af há-
punktum fjögurra daga hátíðar-
halda sem staðið hafa yfir vegna
afmælisins. Mótorhjólasýningar
hafa m.a. verið haldnar auk þess
sem minjargripir hafa verið seldir
og tónlistarmenn troðið upp.
Talið er að 200 til 300.000 manns
taki þátt í hátíðarhöldunum, sem
lýkur í dag. ■
Danskur maður af marokkósku
bergi brotinn, sem er grunaður
um samskipti við öfgafulla
islamstrúarmenn í Lundúnum,
var handtekinn í Kaupmanna-
höfn. Hann er ákærður fyrir að
hafa þýfi í fórum sér.
Tvær þýskar konur voru hand-
teknar á Kastrup-flugvelli í
Kaupmannahöfn með tæplega 15
kíló af kókaíni í farangri sínum.
Konurnar voru að koma með
flugi frá Sao Paolo í Brasilíu.
Tveir menn voru handteknir fyr-
ir utan Stokkhólm þegar lögregl-
an gerði vopnaleit á tveimur
heimilum. Fjölmörg skotvopn
fundust auk fjölda handsprengja.
Mennirnir sem voru handteknir
eru 27 og 34 ára gamlir.