Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 8

Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 8
8 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR Eftirávitið Eftir á að hyggja hefði verið skynsamlegra að að ég hefði tal- að við Þórð Friðjónsson til þess að leita ráðgjafar um málið. Benedikt Jóhannesson, stjórnarformaður Skeljungs. Morgunblaðið 30. ágúst. Meira eftirávit Þarna voru gerð mistök, bæði hjá fréttamönnunum og þeim stjórnarmanni sem hringdi í fréttastjórann. Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa. DV, 30. ágúst. Góðviðrisbjartsýnin Ég held að við eigum að fara að leita að nýjum tækifærum til ræktunar á Íslandi. Ólafur Eggertsson, kornbóndi. Morgunblaðið, 30. ágúst Orðrétt WASHINGTON, AP Yfirvöld í Banda- ríkjunum hafa handtekið ung- lingspilt sem grunaður er um að vera höfundur tölvuvíruss sem gert hefur mikinn usla um allan heim. Jeffrey Lee Parson, 18 ára frá Minnesota, hafði verið undir smásjá bandarísku alríkislög- reglunnar, FBI og saksóknara í Seattle um nokkurt skeið en var handtekinn í gær. Parson var færður fyrir dómara í gær þar sem átti að birta honum ákæru- atriði. Nokkrar útgáfur skæðs tölvuvíruss eða orms hafa verið á sveimi að undanförnu sem gengið hafa undir nöfnum eins og „LovSan“ eða „Blaster“. Ormarnir ollu miklum usla hjá fyrirtækjum um allan heim en talið er að þeir hafi sýkt hundruð þúsunda tölva. Sér- fræðingar segja þetta einn skæðasta vírusfaraldur ársins. Ormur, sem gengur undir nafn- inu „Blaster.B“, hóf að breiðast út 13. ágúst sl. Líkt og fyrri vírusar, dreifð- ist hann ekki með tölvupósti, heldur fór hann í gegnum port á eldveggjum og nýtti sér galla í Windows stýrikerfinu til að taka yfir tölvu notenda. ■ Interpol á þyrlu til hreindýraveiða Stefán Hrafn Magnússon, hreindýrabóndi á Suður-Grænlandi, fékk hóp bandarískra auðjöfra og embættismanna í veiðiferð. Bush afboðaði komu sína. Hreindýraveiðar á Grænlandi njóta vaxandi vinsælda. VEIÐAR „Bandaríkjamennirnir voru ánægðir með veiðina og ferðina. Ég er ekki síður ánægð- ur með komu þeirra því ekkert var til sparað og tvær þyrlur á lofti í einu,“ segir Stefán Hrafn Magnússon, hreindýrabóndi í Isortoq á Suður-Grænlandi, sem í vikunni tók á móti hópi Banda- ríkjamanna sem komu á einka- þotu til hreindýraveiða. George Bush, fyrrverandi Bandaríkja- forseti, átti að vera með í för en hætti við. Talið er að það hafi verið að hluta vegna ótta Banda- ríkjamanna við að ferðast vegna Íraksstríðsins. Bandaríkja- mennirnir eru allir á vegum Safari Club International. Stef- án Hrafn segir að á meðal veiði- mannanna hafi verið veiðistjóri Bandaríkjanna og æðsti maður Interpol auk milljarðamærings frá Texas. Alls voru níu veiði- menn auk lífvarða og annars fylgdarliðs. Stangveiðifélagið Laxá á Íslandi hefur milligöngu um sölu á hreindýraveiðileyfum á landi Isortoq, þar sem þúsundir hreindýra eru. Stefán Hrafn segist verða var við stöðugt vax- andi áhuga á veiðunum sem séu smám saman að komast í tísku hjá þeim ríku. „Þetta var skemmtileg heim- sókn og engin takmörk fyrir því sem hægt var að gera. Banda- ríkjamennirnir voru með tvær þyrlur á leigu. Þeir flugu síðan á svæði þar sem hreindýr voru og lentu í grennd við þau. Mennirn- ir felldu allir dýr og sumir fleiri en eitt. Interpolmaðurinn fékk eitt,“ segir Stefán Hrafn. Hann segir að Bandaríkjamennirnir hafi aðeins hirt hornin af dýrun- um en leiðsögumennirnir hafi fengið að eiga skinn og kjöt. Landsvæði Stefáns Hrafns samsvarar öllum Reykja- nesskaganum að stærð. Stefán Hrafn selur veiðileyfi á þau dýr sem hafa komist út í einhverjar þeirra fjölmörgu eyja sem til- heyra landareign hans. Aldrei er leyft að skjóta á hjarðir þeirra dýra sem smalað er til slátrunar á haustin. Stefán Hrafn segir að það heilli marga veiðimenn, hve auðvelt sé að sjá dýrin, en erfitt að nálgast þau. „Mestu munar um það hve margir Spánverjar og Frakkar koma. Þeim hefur fjölgað mest,“ segir hann. Veiðitímabilinu í Isortoq er nú lokið og smölun til slátrunar að hefjast. rt@frettabladid.is Umhverfismerkið Svanurinn: Ný viðmið fyrir Svaninn NEYTENDUR Nýlega setti nörræna umhverfismerkið Svanurinn upp ný viðmið sem uppfylla þarf til að fá stimpil samtakanna. Gerðar eru kröfur um gott úrval umhverfismerktra og lífrænna vara, en einnig kröfur varðandi rekstur og umhverfisstjórnun verslunarinnar. Umhverfismál eru Svíum hugleikin og því kemur ekki á óvart að verslanir þar voru fyrstar til að uppfylla nýju skil- yrðin og bera nú merki Svans- ins. ■ SKÓLARNIR HEFJAST Þeim fjölgar mikið sem áhuga hafa á að taka þátt í fjarnámi. Færri að en vildu: Vinsælt fjarnám FJARNÁM „Umsóknir voru miklu fleiri en við gátum annað sam- kvæmt okkar fjárheimildum,“ sagði Ingimar Árnason, kennslu- stjóri fjarkennslu við Verk- menntaskólann á Akureyri, en vísa þurfti fjölda fólks frá sem vildi skrá sig í fjarnám. „Þetta er ekki í fyrsta sinn sem vísa þarf fólki frá fjarnámi. Við vildum glaðir innrita alla sem sækja um hjá okkur en höfum ekki fjárheimildir til þess. Okkur er sniðinn þröngur stakkur og þess vegna verðum við að benda fólki á aðra kosti.“ Ingimar benti á að Fjölbrauta- skólinn í Ármúla tekur enn við umsóknum þeirra sem áhuga hafa. ■ SLÖKKVILIÐSMENN VIÐ BJÖRGUNAR- STÖRF Fjöldi fólks hefur verið fluttur frá heimilum sínum á Norður-Ítalíu vegna veðursins. Að minnsta kosti tveir hafa látist. Dauðsföll á Norður-Ítalíu: Rigning og aurskriður RÓM, AP Að minnsta kosti tveir hafa látist í miklu óveðri sem gengið hefur yfir norðaustur Ítal- íu. Úrhellisrigning hefur verið síðasta sólarhringinn og hefur fjöldi fólks þurft að yfirgefa heimili sín í fjallahéruðum í norð- urhluta landsins. Aurskriður hafa fallið á vegi og truflað samgöngur. Þá hefur raf- magn farið af stórum svæðum. Yfirvöld ráðleggja fólki að vera ekki á ferðinni þar sem mik- il hætta er enn á aurskriðum. ■ Fara með krakkana í Disney World. Heimsækja St. Augustine, sem er einn af elstu bæjum Bandaríkjanna. Í Florida þarftu að: á mann í 8 daga m.v. hjón með 2 börn yngri en 12 ára með 10.000 kr. afslætti. Innifalið: flug, gisting á Best Western Plaza, flugvallarskattar og þjónustugjöld. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 21 62 2 0 8/ 20 03 VR orlofsávísun Munið ferða- ávísunina Verð frá 46.053 kr. Orlando www.icelandair.is/florida www.icelandair.is ÓÞOLANDI ORMAR Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa nú handtek- ið meintan höfund skæðra tölvuvírusa. STEFÁN HRAFN MAGNÚSSON Hreindýrabóndinn í Isortoq selur veiðileyfi á hreindýr sem verða viðskila við hjarðirnar. Hreindýraveiði á Suður-Græn- landi nýtur sívaxandi vinsælda. PARÍS, AP Franska heilbrigðisráðu- neytið gaf út í gær að dauðsföll í landinu, fyrstu tvær vikur ágúst- mánaðar, hefðu verið 11.435 fleiri en á sama tímabili undanfarin ár. Það lætur því nærri að á hverjum degi hafi 800 fleiri Frakkar dáið en í venjulegu árferði. Frönsk yfirvöld eru varkár og vilja ekki rekja dauðsföllin beint til hitabylgjunnar sem var í land- inu og víðar í Evrópu. Hitinn fór víða yfir 40 gráður á celsíus. Jean-Francois Mattei, heil- brigðisráðherra, sagði þó að hörmungar sem tengja mætti hitabylgjunni hefðu komið harð- ast niður á hinum veikari, það er eldra fólki og sjúklingum. Í allt er talið að hitabylgjan, sem gekk yfir Evrópu, hafi kostað að minnsta kosti 20.000 manns lífið. Flestir létust í Frakklandi en á Spáni er talið að allt að 2.000 hafi látist. Í Hollandi er talað um 500 til 1.000 dauðsföll af völdum hita- bylgjunnar. ■ LÍKKISTUR Kistusmiðir í Frakklandi hafa vart haft undan síðustu tvær vikur. Rúmlega 11.000 fleiri létust í Frakklandi fyrri hluta ágústmánaðar en á sama tíma í fyrra. Margir vilja kenna hitabylgjunni, sem gekk yfir landið, um aukninguna. Ellefu þúsund Frakkar dóu í hitabylgjunni: Átta hundruð dóu að meðaltali á dag Tölvuvírusar liðinna vikna: Höfundurinn handtekinn

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.