Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 14
■ Viðskiptalífið■ Viðskipti
14 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR
Viðskiptalífið nötraði í vikunniþegar Samson, eignarhaldsfé-
lag Björgólfs Guðmundssonar,
Björgólfs Thors Björgólfssonar
og Magnúsar Þorsteinssonar tryg-
gði ásamt Landsbankanum 0ster-
ka stöðu í Fjárfestingarfélaginu
Straumi. Atburðurinn var einstak-
ur því í einu vettvangi komust
valdahlutföll í mörgum stærstu
fyrirtækjum landsins í uppnám.
Með yfirráðum í Straumi opnast
leið inn í Eimskipafélagið, en
hlutabréfasafn þess er lykillinn
að völdum í fjölmörgum fyrir-
tækjum landsins.
Landsbankinn greip tækifærið
þegar það bauðst. Fléttan var ein-
föld í sjálfu sér, en óvænt.
Straumur vann að yfirtöku Fram-
taks fjárfestingarbanka. Framtak
varð til við sameiningu Þróunar-
félagsins og Eignarhaldsfélags
Alþýðubankans. Jón Helgi Guð-
mundsson eigandi Byko keypti á
svipuðum tíma og yfirtakan hófst
tæplega fjórðungs hlut í Fram-
taki. Yfirtökutilboð Straums
hljóðaði upp á skipti á bréfum í
Straumi fyrir bréf í Framtaki. Á
sama tíma og Jón Helgi fékk bréf
í Straumi fyrir hlut sinn í Fram-
taki keyptu hann og Þórður Magn-
ússon forkólfur í Gildingu og
fyrrverandi fjármálstjóri Eim-
skipafélagsins 8% hlut Kaupþings
Búnaðarbanka í Straumi.
Þeir félagar voru því komnir
með 19% hlut í Straumi. Eftir-
sóknarverður hlutur fyrir báða
bankana. Ríkissjónvarpið hafði
það úr herbúðum Jóns Helga að
frumkvæðið að sölunni til Lands-
bankans hafi komið frá þeim
Þórði. Innan viðskiptaheimsins
eru þó fleiri þeirrar skoðunar að
vilji Landsbankans til að kaupa
hafi legið fyrir. Andri Sveinsson,
bankaráðsmaður í Landsbankan-
um, er fyrrum samstarfsmaður
Þórðar Magnússonar í Gildingu.
Loku er því ekki fyrir það skotið
að Þórður hafi vitað um áhuga
Landsbankans á kaupunum.
Eimskip afhent
Skömmu áður en viðskiptin
með Straum gengu í gegn hafði
Landsbankinn keypt hlutabréf í
Eimskipafélaginu af Burðarási.
Þau kaup voru að frumkvæði Eim-
skipafélagsmanna. Benedikt Jó-
hannesson stjórnarformaður Eim-
skipafélagsins og Ingimundur
Sigurpálsson forstjóri þess settu
sig í samband við Björgólf Guð-
mundsson til að bjóða honum
bréfin til kaups. Benedikt hafði
sjálfur stýrt síðustu tilraunum
fyrirtækjablokkar Eimskipafé-
lagsins til að verja net fjárfesting-
anna. Sú tilraun mistókst. Bene-
dikt er tryggingastærðfræðingur
og hefur væntanlega gert sér ljóst
að ekki væru burðir til þess að
verja núverandi stöðu. Valið stóð
því einkum um í hvaða fjárfestum
væri mestur fengur. Þar er ekki
um auðugan garð að gresja.
Björgólfur hugnaðist Eimskipafé-
laginu best, enda fara menn ekki í
grafgötur um að þar er öflugur
kaupsýslumaður á ferð með að-
gang að miklu fjármagni. Þróunin
í Straumi er því ekkert sérstakt
áhyggjuefni þessara forystu-
manna Eimskipafélagsins.
Áfall fyrir Íslandsbanka
Viðskiptin með Straum voru
hins vegar áfall fyrir Íslands-
banka sem missti lykilstöðu sína í
Straumi og áhrifin sem þeim
fylgja. Munurinn á styrk bank-
anna í Straumi voru meiri en lesa
má út úr eignarhlut bankanna
sjálfra. Íslandsbanki var með rúm
22% en Landsbankinn með um
17%. Við yfirtöku á Framtaki
þynntist hlutur bankanna. Fyrir-
tæki tengd stjórnarmönnum í Ís-
landsbanka réðu 10 - 12% í
Straumi. Ríflega 30% hlut þurfti
því til að ná undirtökunum í félag-
inu. Viðskipti Landsbankans og
Jóns Helga tryggðu þá stöðu. Ís-
landsbanki sat uppi með tapað
forskot í hálfleik. Þar ríkti því lít-
il gleði þegar tíðindin bárust. Þar
á bæ töldu menn Landsbankann
vera að fara út fyrir yfirlýsingar
um jafnvægi í eign bankanna.
Landsbankamenn telja sig innan
þeirra yfirlýsinga. Eignarhlutur
bankanna sjálfra er sitthvorum
megin við 20%, en Samson og fé-
lög tengd stjórnarmönnum Ís-
landsbanka eiga einnig hluti. Stað-
an er því um það bil 34% gegn
33% Landsbankanum í vil. Báðir
eru viðbúnir slag en vilja aðrar
lausnir. Ekki er heldur hægt að
fullyrða að annarhvor aðilinn sé
búinn að tryggja sér aukinn hlut
ef á þarf að halda.
Frá því að gengið var frá þess-
um viðskiptum hafa menn kapp-
kostað við að eyða tortryggni milli
manna.. Áherslan er á því að
vinna úr þeirri stöðu sem upp er
komin. Allir gera sér ljóst að
Björgólfur Guðmundsson er með
sterka stöðu eins og hún er nú og
þróunin lýtur fyrst og fremst
stefnu og áherslu hans. Fléttan
þykir bera merki eitilharðrar við-
skiptahugsunar og útfærslan þyk-
ir snilldarleg. Atburðir vikunnar
eru þó einungis fyrsti hlutinn af
stærri áætlun.
Skortur á
milljarðamæringum
Ferill Björgólfs Guðmundsson-
ar er ævintýri líkastur. Eftir ólgu-
sjó Hafskipsmálsins stóð hann
upp með tvær hendur tómar. Síð-
an þá hefur hann spilað vel úr
sínu. Lykillinn að stöðu hans í dag
liggur í útflutningi á bjórverk-
smiðju til Rússlands. Þeim feðg-
um græddist vel á verksmiðunni
og högnuðust um tugi milljarða
króna við sölu hennar. Þeir feðgar
náðu einnig sterkri stöðu í lyfja-
heildsölufyrirtækinu Pharmaco
sem framleiddi einnig samheita-
lyf. Uppbygging þess fyrirtækis
ber einnig vitni skýrri viðskipta-
hugsun Björgólfsfeðga. Pharmaco
var ekki eini lyfjaframleiðandinn
hér á landi. Pharmaco sameinað-
ist Omega Farma og Delta. Yfir-
takan á Delta var ekki í þökk ráð-
andi hluthafa fyrirtækisins. Sam-
einað fyrirtæki hefur hins vegar
skilað eftirtektarverðum árangri
og afar góðri ávöxtun hluthaf-
anna. Pharmaco er nú langverð-
mætasta fyrirtækið í Kauphöll Ís-
lands. Björgólfur Guðmundsson
hefur selt syni sínum hlutinn í
Pharmaco. Rússlandsviðskiptin
og uppbygging Pharmaco hafa því
gert þá feðga að langöflugustu
kaupsýslumönnum þjóðarinnar.
Aðrir sem gætu látið til sín taka á
Ærin
verkefni
Forseti Brasilíu, Luiz InacioLula da Silva, má hafa sig allan
við ef hann á að geta staðið við lof-
orð um 10 milljón ný störf í land-
inu. Landsframleiðslan dróst sam-
an á öðrum ársfjórðungi ársins.
Iðnaðarframleiðsla minnkaði um
3,7 prósent og flestar hagtölur í
landinu eru niður á við. Ljósasti
punkturinn er að útflutningur fór
vaxandi um tæp þrjú prósent á
tímabilinu.
Eftirtalin félög birtu uppgjör ívikunni:
Aco Tæknival, Fiskeldi Eyja-
fjarðar, Guðmundur Runólfs-
son, Hampiðjan, Hlutabréfa-
markaðurinn, Húsasmiðjan,
Ker, Olíuverslun Íslands og
Vaki DNG. Fresti til að skila
hálfsársuppgjörum lýkur við
mánaðarmótin ágúst/sept.
Síminn hagnaðist um 977milljónir króna fyrstu sex
mánuði ársins. Hagnaður var
örlítið minni en árið áður.
Rekstratekjur jukust lítillega
en afkoma fyrir afskriftir og
fjármagnsliði fer batnandi.
Framlegðarhlutfallið batnaði
og er 38,3% nú en var 35,9% í
fyrra.
Hagnaður olíufélagsins Kersjókst um einn milljarð
króna samkvæmt sex mánaða
uppgjöri, miðað við sama tíma-
bil í fyrra. Hagnaður var 1,8
milljarður króna. Söluhagnaður
hlutabréfa varð meiri en áætl-
anir félagsins gerðu ráð fyrir.
Krónan styrktist um 1,93% ívikunni eftir veikingu að
undaförnu. Töluverð óvissa er
um þróun á gengi krónunnar.
Markaðurinn bíður spenntur
eftir niðurstöðu um hvort ráð-
ist verði í stækkun Norðuráls.
Viðskiptajöfnuður var birtur ívikunni. Hallinn á vöru-
skiptum fer vaxandi. Samdrátt-
ur er í útflutningi miðað við síð-
asta ár og nam hann 6% mest í
sjávarútvegi. Innflutningur
jókst um 7,3%
Úrvalsvísitala aðallista Kaup-hallar Íslands hækkaði um
5,34% í vikunni. Gildi hennar í
lok vikunnar var 1760,28 stig.
Vísitalan hefur hækkað um
rúm 10% undanfarnar tvær
vikur.
ÚRVALSVÍSITALAN
Úrvalsvísitalan mælir breytingar á
gengi 15 stærstu fyrirtækja á aðallista
Kauphallar Íslands. Valin eru 20 fyrir-
tæki af aðallistanum sem mest við-
skipti hafa verið með síðastliðna 12
mánuði. Af þeim eru valin 15 stærstu
félögin m.v markaðsvirði og mynda
þau úrvalsvísitöluna hverju sinni. Sam-
setning vísitölunnar er endurskoðuð á
sex mánaða fresti, og skiptast tímabil-
in þann 1. janúar og 1. júlí.
Vikan sem leið
hugtak vikunnar
SAMSON
Spenna er í viðskiptalífinu eftir kaup Landsbankans og Samsonar á hlutum í fjárfestingarfélaginu Straumi. Björgólfsfeðgar eru að skapa sér rými á markaðnum í samræmi við afl sitt og
getu. Næstu leikir í stöðunni munu gefa vísbendingar um framtíðarlandslag í viðskiptalífinu.
Breytt hugarfar í íslenskum viðskiptum birtist með skýrum hætti í kaupum Landsbankans og Samsonar
í fjárfestingarfélaginu Straumi. Arðsemisboðorðið ræður ríkjum með nýrri kynslóð. Viðskiptalífið er í
endurskipulagningu nú þegar rúmfrekir viðskiptajöfrar skapa sér rými
Allt fram streymir