Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 15
innlendum markaði eru Bakka-
bræður og Baugsfeðgar. Þessir
aðilar eru fyrst og fremst að sinna
viðskiptum í útlöndum. Margir
telja því að það sem helst geti
hamlað viðskiptalífinu í nánustu
framtíð sé skortur á milljarða-
mæringum sem beiti sér í ís-
lensku viðskiptalífi.
Stefna hátt
Staða Björgólfs er afar sterk.
Hann hefur tryggt sér lykilstöðu
innan viðskiptalífsins. Þar fyrir
utan hefur hann fjárhagslega
burði umfram aðra til þess að
tryggja þá stöðu enn frekar ef á
þarf að halda. Viðskiptalífið veltir
því fyrir sér þessa dagana hvert
muni stefnt. Flestir eru á því að
fléttan sé fyrst og fremst hugsuð
til þess að styrkja Landsbankann.
Björgólfur hefur sjálfur gefið út
yfirlýsingar um að Landsbankinn
verði ekki lengi minnsti bankinn.
Bankinn þótti þunglamalegur
lengi vel. Kaupþing og Búnaðar-
banki voru ákafari og árásar-
hneigðari á markaðnum en Ís-
landsbanki og Landsbanki. Sam-
eining Kaupþings og Búnaðar-
banka þýddi að Landsbankinn var
orðinn langminnstur stóru bank-
anna. Kjölfestufjárfestar Lands-
bankans stefna hærra en svo.
Talið er nær öruggt að Burðarás
og Straumur sameinist. Við það
yrði til geysilega öflugt fjárfest-
ingarfélag með eignir yfir 30
milljarða. Vangaveltur eru um að
sameina félögin síðan bankanum.
Við það myndi eigið fé bankans
vaxa og útlánamöguleikar hans
aukast. Það er þó háð því að næg
eftirspurn sé eftir lánum bankans
þannig að ávöxtun eigin fjár bank-
ans verði viðunandi. Landsbank-
inn jók eigið fé sitt samhliða kaup-
unum í Straumi. Eigið fé Lands-
bankans fór upp fyrir eigið fé Ís-
landsbanka. Bankinn er því ekki
lengur minnstur samkvæmt þeim
mælikvarða. Bankinn gæti aukið
eigið fé eftir öðrum leiðum ef tal-
in væri þörf á. Eigendurnir eru
einfaldlega það fjársterkir. Þessi
leið er því ekkert sérstaklega lík-
leg. Heimildir úr herbúðum
beggja herma að samvinna í
Straumi sé æskilegasti kosturinn.
Til þess þarf að byggja upp traust
á ný.
Möguleg sameining
bankanna
Stefnan gæti líka verið liður í
áætlun um sameiningu við Íslands-
banka. Landslagið í fjármálageir-
anum hefur breyst með samein-
ingu Kaupþings og Búnaðarbanka.
Einn möguleiki er að sameina
Landsbanka og Íslandsbanka. Fyrir
þessi viðskipti var staðan sú að Ís-
landsbanki væri sá stóri í slíkum
viðskiptum. Vöxtur Landsbankans
myndi hins vegar tryggja það að
Landsbankinn kæmi til leiks sem
sterkari aðilinn. Yfirráð Lands-
bankans í Straumi og Burðarási
tryggja líka yfirráð yfir tæplega
12% hlut í Íslandsbanka. Það eru
allnokkur ítök í banka sem er með
jafndreifða eignaraðild og Íslands-
banki. Íslandsbanki á þó mótleiki í
stöðunni. Stjórn Straums lýtur enn
vilja Íslandsbanka og hægt væri að
selja hlut Straums í bankanum fyr-
ir hluthafafund og koma þannig í
veg fyrir að áhrif inn í Íslands-
banka fylgdu með Straumi.
Samlegðaráhrif með samein-
ingu bankanna tveggja yrðu tölu-
verð. Sameinaður banki gæti fækk-
að útibúum og ef eigið fé yrði of
mikið miðað við arðsemismögu-
leika þess, væri hægt að færa nið-
ur eigið fé og greiða eigendum arð.
Sameining myndi því líkt og sam-
eining Pharmaco og Delta geta
skilað eigendum bankanna ágætis
arði. Íslandsbanki hefði þó fremur
kosið að slík sameining yrði á þeir-
ra forsendum en ekki Landsbank-
ans eins og stefnir í nú.
Eimskip klassískt
yfirtökufélag
Aðrir hlutar fléttunnar eru
ekki jafn sýnilegir og kannski
minna áhersluatriði hjá Lands-
bankanum. Í fjármálaheiminum
er fullyrt að Þórður Már
Jóhannesson framkvæmdastjóri
Straums sé búinn að teikna upp
leiðir til þess að ná sem mestum
verðmætum út úr Eimskipafélag-
inu. Félagið er að mati sérfræð-
inga klassískt yfirtökufélag.
Gengi félagsins lágt miðað við
undanfarin ár. Miklar eignir sem
hægt er að hagnast á við sölu. Þar
fyrir utan blasi við verkefni til
þess að gera reksturinn betri.
Eigendur Samsonar nálgast sín
verkefni með sama hugarfari og
framkvæmdastjóri Straums. Því
að ná sem mestri arðsemi af
eignum. Mótstaðan við slíkt hug-
arfar er hverfandi. Lífeyrissjóð-
irnir, sérstaklega þeir minni
munu ekki standa gegn slíkum
breytingum. Þær munu styrkja
viðskiptalífið til lengri tíma.
Stjórnendur Íslandsbanka standa
síður en svo gegn slíku hugar-
fari. Þar hafa menn allan tímann
gert ráð fyrir að nýir eigendur
myndu láta til sín taka í við-
skiptalífinu. Þar eru menn fylli-
lega meðvitaðir um hæfni og
fjárhagslegan styrk Björgólfs-
feðga.
Framtíðarlandslag
Næstu leikir eru að skapa ró í
kringum núverandi stöðu. Það er
freistandi að skoða viðskiptastíl
Björgólfsfeðga. Þeir taka ráðandi
stöður í fjárfestingum sínum og
gera þær breytingar sem þeir telja
nauðsynlegar. Stíllinn er sá að gera
hins vegar ekki meiri breytingar
en þarf. Óvinveitt yfirtaka í Delta
reyndist vel. Róbert Wessman sem
var forstjóri Delta er nú forstjóri
sameinaðs fyrirtækis. Þeir veðja á
unga framsækna stjórnendur sem
hugsa á sömu nótum og þeir sjálf-
ir. Í Landsbankanum skiptu þeir út
bankaráðinu að öðru leyti en því að
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, sem einnig er hluthafi í Lands-
bankanum, sat áfram í bankaráð-
inu. Ýmsir töldu slíkt merki um að
Samson héldi lífi í hefðbundnum
tengslum stjórnmála og viðskipta.
Frá þeirra bæjardyrum var Kjart-
an með þekkingu á rekstri bankans
sem þeir sóttust eftir. Líklegt er að
sama meginregla muni gilda þegar
breytingar verða gerðar í gegnum
nýfengin áhrif. Þeir munu nýta sér
það afl sem þegar er í fyrirtækjun-
um og sækja sér nýtt blóð eftir því
sem þeir telja þörf á. Fyrsta skref-
ið er að boða til hluthafafundar í
Straumi og setja sína menn í stjórn
í samræmi við eignarhlutinn.
Þeir sem fylgjast með atvinnu-
lífinu munu fylgjast spenntir með
því hvernig afli Landsbankans
verður beitt. Menn benda á að
styrkur feðganna og Landsbank-
ans sé það mikill að það skipti
miklu máli hvernig þeir beiti
mætti sínum. Heilbrigt viðskipta-
líf þrífist ekki án samkeppni og
styrkur feðganna í samhengi við
hagstærðir þjóðarinnar bjóði
ákveðnum hættum heim. Þessa
dagana koma þeir sér fyrir í við-
skiptalífinu. Landslagið kemur í
ljós þegar lygnir á ný eftir boðaföll
straumsins.
haflidi@frettabladid.is
15SUNNUDAGUR 31. ágúst 2003
LANDSBANKINN
Sameining Landsbankans og Íslandsbanka þykir nú vel hugsanleg.
Þar yrði Landsbankinn sterkari aðilinn.
BJARNI ÁRMANNSSON
Tíðindin af kaupum Landsbankans í Straumi ollu lítilli gleði í Íslandsbanka.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T