Fréttablaðið - 31.08.2003, Page 16

Fréttablaðið - 31.08.2003, Page 16
16 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR Sölu- og samninga- tækni Söluskóli Crestcom, einn virtasti skóli heims í söluþjálfun, kynnir nýtt námskeið sem hefst þriðjudaginn 9. september. Þátttakendur öðlast m.a. þjálfun í: • Að greina merki um kaupáhuga og gera stöðuathuganir • Að snúa hörðum mótbárum í jákvæð viðskipti • Að eiga við erfiða viðskiptavini • Að semja á árangursríkan hátt • Að ljúka sölu af öryggi. Nýtt nám skeið í sölu- og sam ningatæ kni hefst 9. septem ber Crestcom er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem er starfandi í yfir 50 löndum. AT&T, Coca Cola, Kodak, Microsoft, Oracle, Shell, Sony og Toyota eru á meðal margra heimsþekktra fyrirtækja sem hafa notað Crestcom til að þjálfa starfsmenn sína.Skráning og upplýsingar: crestcom@crestcom.is og í símum 561 5800 og 896 6960. Leiðbeinandi: Þorsteinn Garðarsson viðskiptafræðingur Þegar Gunnar Gunnarsson rit-höfundur sneri heim úr útlegð- inni í Danmörku festi hann kaup á jörðum í grennd við æskuslóðir sínar á Austurlandi. Einhverju sinni hitti hann Jón bónda í Möðrudal og þar kom að þeir fóru að kýta um tiltekið fjall sem báðir töldu sig eiga. Þar til Jón nennti þessu ekki lengur og sagði með sinni háu og björtu rödd: „Æ, mér er alveg sama, ég á hvort eð er svo mörg fjöll!“ Og fjöllunum var áreiðanlega vel borgið í höndum þessara öld- unga sem áttu reyndar fleira sam- eiginlegt, til dæmis reistu báðir kirkjur: Gunnar Fjallkirkjuna og Jón það óborganlega guðshús sem enn stendur í Möðrudal. Víkur nú sögunni til Suður- lands. Ingólfsfjall heitir mikið og fagurmótað hálendi, einn fegursti drátturinn í ásýnd gervallrar Ár- nessýslu. Það er líka eitt af fyrstu örnefnum Íslands því Landnáma segir frá því að þar hafi Ingólfur Arnarson haft vetursetu á meðan þrælar hans leituðu að öndvegis- súlunum. Af landnámsmanninum dregur fjallið nafn sitt. Ástæðan fyrir því að ég er að rifja upp þessar alkunnu stað- reyndir er að þetta fjall, sem kyn- slóðirnar myndu ugglaust hafa flokkað með eilífðarverum, hefur látið verulega á sjá að undanförnu vegna malarnáms. Stórtækar vinnuvélar hafa gert atlögu að því og nánast rifið öxlina af suðvest- urhorni þess. Svo og svo mörg hlöss af möl Það er með nokkrum ólíkindum að þetta skuli geta gerst á tímum þegar sérstakt umhverfisráðu- neyti starfar í landinu, en ástæðan mun vera hinn friðhelgi eignarétt- ur manna sem líta á fjallið fyrst og fremst sem svo og svo mörg hlöss af möl. Og Ingólfsfjall er ekkert eins- dæmi. Allir sem keyra austur eða austan kannast við fagurmótuð fjöll í nágrenni Skíðaskálans þar sem Þrengslavegur mætir Suður- landsvegi og hafa horft upp á jarðýtur föndra við að rústa þeir- ri mynd. Jafnvel sjálfur þjóð- garðurinn er ekki óhultur, á suð- urmærum hans er fjall sem óþyrmilega hefur verið gripið ofan í. Og þeir fjölmörgu sem aka til og frá Laugarvatni þekkja Seyðishólana sem á kafla gera landið draumkennt, en bíða nú nautshöggsins. Skurnin ein er eft- ir, innvolsið hefur verið selt í of- aníburð. Og þó voru þeir á náttúru- minjaskrá, en það er engin trygg- ing. Ekki friðun heldur. Eins og núverandi umhverfisráðherra hefur sjálfur sagt þá getur friðun aldrei varað um aldur og ævi, heldur hljóti hún að víkja þegar skammtímahagsmunir heimta annað. Umhverfisráðherra - eins og núverandi stjórnvöld virðast skilja embættið - er í raun sá sem fer fyrir eyðileggingu umhverfis- ins og gerir hana lögmæta. Rjúpan er allt sem honum er eftirlátið að vernda. Afturhvarf til upprunans Í tíð forfeðra okkar voru fjöllin heilög, náttúran lifandi. Það er ekki fyrr en með hinum hátækni- væddu kappneyslumönnum sem allar hömlur virðast falla brott. Ef spurt er um réttlætingu dugir að nefna stöðugildi, krónur og mills. Ef við seljum ekki landið, gerir einhver annar það. Þeir sem telja sig þurfa að koma með ögn dýpri rök, segjast í raun vera að færa landið í upprunalegri búning. Þannig mælti forstjóri Lands- virkjunar fyrir Kárahnjúkastífl- unni (þar átti að hafa verið lón fyrir einhverjum þúsundum ára) og þannig var brottnám Seyðis- hólanna réttlætt (þeir voru ekki til staðar fyrir sex til sjö þúsund árum). Og auðvitað gildir sama um Ingólfsfjall, það hóf fyrst að myndast í eldgosum fyrir um sjötíu þúsund árum. Þetta afturhvarf til upprunans býður nánast upp á ótæmandi möguleika, enda er nú tekið til hendinni á Austurlandi þar sem Landsvirkjun hefur í samvinnu við ameríska álhringinn Alcoa og yfirþjóðafyrirtækið Impregilo blásið til lokaatlögu gegn öræfun- um norðan Vatnajökuls. Alþýðu- samband Íslands hefur lýst yfir áhyggjum, þó ekki vegna fram- kvæmdanna, heldur vegna snyrti- aðstöðu á sjálfum vígvellinum. En hvernig skyldi Jóni í Möðru- dal og Gunnari Gunnarsyni lítast á blikuna - mættu þeir horfa af himnum yfir heimaslóðir sínar? ■ Eins og núverandi umhverfisráðherra hefur sjálfur sagt þá getur friðun aldrei varað um aldur og ævi, heldur hljóti hún að víkja þegar skammtímahags- munir heimta annað. Um- hverfisráðherra - eins og nú- verandi stjórnvöld virðast skilja embættið - er í raun sá sem fer fyrir eyðileggingu umhverfisins og gerir hana lögmæta. ,, Að breyta fjöllum PÉTURS GUNNARSSONAR ■ Sunnudags-þankar Þetta er í sjálfu sér ekki nýtt“,segir dr. Sigrún Júlíusdóttir prófessor í félagsráðgjöf við fé- lagsvísindadeild Háskóla Íslands. „Það sem vekur hins vegar at- hygli er hinn mikli áhugi og hljómgrunnur sem þessi umræða fær núna. Ef litið er aftur í tímann má segja að karlarnir séu nú á sama stað og konurnar voru upp úr 1975 til 1985. Þá voru konur að reyna að fara inn í öðruvísi hlut- verk og hasla sér völl í atvinnulíf- inu. Þær vildu sinna starfsframa, en þó án þess að vera tilbúnar að sleppa neinu. Þær héldu eftir „ábyrgðarkvöðinni“ í hefðbundnu móður- og umhyggjuhlutverki, en voru að bresta undan álagi og tog- streitu. Undir lok níunda áratug- arins var þetta talsvert rannsakað og fjallað um „ofurkonuna“, sem leitaðist við að samræma fjöl- skyldu- og atvinnulíf án þess að slaka nokkurs staðar á kröfunum, og oft án ytri stuðnings.“ Sigrún segir að umræðan um Atlasar-heilkennið endurspegli að við erum að fara inn í nýtt skeið og stöndum á tímamótum þar sem kynin eru í senn trú því gamla og vilja taka við því nýja. „Þetta gerðist fyrr hjá konunum og er vissulega ennþá í gerjun, en karl- arnir eru engan veginn farnir að höndla þetta á sama hátt og því er kreppan meira áberandi hjá þeim núna.“ Karlar vilja breytingar Sigrún bendir á könnun sem var gerð í Svíþjóð upp úr 1990 og tekur á glímu karlmanna við nýja karlmannshlutverkið. „Þar kvört- uðu karlarnir yfir því að hafa ver- ið sviptir möguleikanum á að um- gangast börnin sín eðlilega, innan og utan sambúðar. Það var meira að segja stofnað karlaathvarf í Gautaborg 1987 fyrir „karla í kreppu“ þannig að vísi að þessari þróun hefur mátt merkja um tíma. Það sem er að gerast er að staðlaðar karl- kvenímyndir rista mjög djúpt. Karlinn er mjög upptekinn af hugmyndinni um sig sem fyrirvinnu, og mikil afköst eru ennþá teikn um karl- mennsku og getu, en um leið vill hann hlúa að mýkri gildum sem blunda í honum, standa sig á heimilinu og njóta samskipta við börnin sín. Ungir karlmenn eru því að glíma við ytri að- stæður breytts þjóðfélags sem stangast á við rótgróið gildis- mat og breyttar þarfir. Ef þetta er skoðað í stærra samhengi þá er opin umræða um þetta já- kvæð vísbending um breytt við- horf og speglar að samfélagið er tilbúið til að skoða þessi mál. Við sjáum svo aftur á móti við- vörunartölur úr heilbrigðisvís- indunum sem sýna að með auknu jafnrétti konum til handa koma fylgifiskar streitu og heilsubrestur með lækkandi lífslíkum. Nútíma foreldrar, karlar, konur eru oft að kikna undan álaginu þar sem þau taka of mikið á sig bæði á einstak- lingsplaninu og samfélagsplan- inu. Það hefur lítið verið komið til móts við fólk og það er brýnt að móta markvissa fjölskyldu- stefnu sem styður við bakið á foreldrum í þessum breyttu að- stæðum.“ Jákvæð umræða Sigrún segir að karlarnir séu að leita að jafnvægi og það sýni sig best í forsjármálum og um- ræðunni um „ábyrga feður“. „Mér finnst að það hafi orðið töluverðar breytingar á síðustu 15 árum eða svo. Konurnar eru aðeins farnar að sleppa „forsjárhyggjunni“. Skilnaðarrannsóknum ber saman um að upplýstar mennta- konur eru líklegri til að geta sleppt takinu af meira öryggi. Þær eru sannfærðari um gildi þess að veðja á ánægju í starfi, sjá hag sinn og barnanna í samstarfi foreldra og eiga auðveldara með að treysta hinu kyninu. Karlmenn eru líka að sækja í sig veðrið og gera uppreisn gegn stirðnuðum karlaímyndum.“ Sigrún segir allt tal um að rauð- sokkahreyfingin hafi eyðilagt í það minnsta tvær kynslóðir karlmanna með baráttu sinni sé litað af göml- um íhaldssjónarmiðum og van- þekkingu á samfélagsþróuninni. Frelsisbarátta kvenna skapaði ein- mitt nauðsynlegar forsendur. „Þetta eru í raun jákvæðar vís- bendingar. Umræðan hefur fengið hljómgrunn og jákvæð átök eru að koma upp á yfirborðið enda eru bæði fagfólk og stefnumótendur að láta þessi mál meira til sín taka til að auðvelda foreldrum að vinna saman og skapa þeim betri skilyrði til að ala börn upp til jafnréttis „ thorarinn@frettabladid.is Fréttin: AP fréttavefurinn greindi frá því ívikunni að karlmenn sem vinna krefjandi vinnu en vilja um leið standa sig í hlutverki fjölskylduföð- urins eigi það á hættu að kikna undan álaginu og fá nýjan sjúkdóm sem kallast Atlasar-heilkennið. Atlas er sem kunnugt er risi sem ber alheiminn á herðum sér sam- kvæmt grískri goðafræði. Krepptir nútímakarlmenn virð- ast vera komnir í stöðu Atlasar og eiga það á hættu að keyra sig í þrot ef þeir draga ekki úr kröfum á sjálfa sig heima og úti í atvinnulíf- inu. Það vekur jafnframt athygli að hörðu nöglunum er hættara við að fá sjúkdóminn en körlum sem gera mikið af því að barma sér og gefast upp. Þetta nútímamein herjar því fyrst og fremst á hinn sterka mann. Sérfræðingurinn: Dr. Sigrún Júlíusdóttir er prófess-or við félagsvísindadeild Há- skóla Íslands og forstöðumaður námsbrautar í félagsráðgjöf við deildina. Sigrún hefur langa reynslu af fjölskylduráðgjöf í geðheilbrigðis- þjónustu og var yfirfélagsráðgjafi á geðdeild Landspítalans um árabil. Hún hefur stundað margvíslega fræðslu fyrir almenning og kennt og skipulagt endurmenntun fag- fólks í uppeldis- heilbrigðis- og fé- lagsþjónustu, einkum um fjöl- skyldumálefni. SIGRÚN JÚLÍUSDÓTTIR segir umræðu á borð við þá sem nú er komin upp í tengslum við Atlasar-heilkennið svokallaða jákvæða. Hún sýni að glíma kynjanna við breyttar þjóðfélagsaðstæður og ný gildi sé komin upp á yfirborðið og vonast til þess að stjórnvöld gefi þessum málum meiri gaum og vinni að því að auðvelda kynjunum samvinnu og heimilisrekstur í nýjum heimi. Karlar með heim- inn á herðum sér ■ Spyrjum sérfræðinginn FRÁ KÁRAHNJÚKUM „Alþýðusamband Íslands hefur lýst yfir áhyggjum, þó ekki vegna framkvæmdanna, heldur vegna snyrtiaðstöðu á sjálfum vígvellinum.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.