Fréttablaðið - 31.08.2003, Page 17

Fréttablaðið - 31.08.2003, Page 17
SUNNUDAGUR 31. ágúst 2003 17 Hann er skarpgreindur og út-sjónarsamur húmoristi,“ segir Karl Th. Birgisson, fram- kvæmdastjóri Samfylkingar- innar um manninn. Sjálfsagt er óhætt að fullyrða að maðurinn ræður minnu en hann vildi þótt seint geti hann talist valdalaus. Hann er þjóð- þekktur og hefur vakið athygli fyrir oft á tíðum óvæginn og skeleggan málflutning - svo skeleggan að mönnum hefur þótt nóg um eins og nýlegt dæmi sannar, en þá skráði hann nafn sitt á spjöld sögunnar. Hrafn Jökulsson skákfröm- uður, sem þekkir umræddan mann, segir hann ræðumann af guðs náð. „Eins og við vitum sem horfum á hann dáleiða heilt Háskólabíó í ræðukeppni fyrir einhverjum tuttugu árum. Hann á ugglaust eftir að nýta þessa hæfileika á komandi vetri.“ Kjartan Magnússon, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, hefur þetta um manninn að segja: „Hann er grannur og myndar- legur, rösklega meðalmaður á hæð, dökkhærður og hefur yfir sér góðlegt en nokkuð lævíslegt yfirbragð, eins og margir Vest- urbæingar. Hann getur verið hnittinn, og þó einkum hæðinn, í tilsvörum. Og það snörlar gjarnan í honum og heyrist nið- urbældur hlátur þegar hann hefur eitthvað við málflutning annarra að athuga, sem er oft. Hann er háttvís og grípur ekki frammí fyrir öðrum, en fái hann orðið sleppir hann því helst ekki ótilneyddur.“ Fréttablaðið spyr: Hver er maðurinn? Svar á næstu síðu. MYNDARLEGUR OG HNITTINN Lýst er eftir manni sem þeir sem til hans þekkja lýsa sem svo að hann sé rösklega meðalmaður á hæð, ræðusnillingur, húmoristi og að það snörli gjarnan í hon- um þegar hann hefur eitthvað við mál- flutning annarra að athuga. Snarpgreindur og lævíslegur ræðusnillingur ■ Hver er maðurinn? Málverk vikunnar hlýtur aðteljast Maríumyndin eftir sjálfan Leonardo da Vinci sem stolið var úr Drumlanrig-kastala í Skotlandi á dögunum en það er metið á 7,3 milljarða króna. Á stundum sem slíkum er ágætt að huga að okkar eigin þjóðarger- semum og þá er ágætt að líta til Jóhannesar S. Kjarval (1885- 1972). Verkið sem verður fyrir valinu er frá árinu 1941 og á margan hátt lýsandi fyrir meist- arann. Það heitir „Fjallamjólk“ og er í eigu Listasafns ASÍ. Kjar- val fór víða um land með trönur sínar en Þingvellir er líklega sá staður þar sem hann var oftast með pensilinn á lofti. Þangað fór hann gjarnan með leigubílum og urðu leigubílsstjórar margir góð- ir vinir hans og kunningjar sem biðu oft rólegir meðan Kjarval málaði. Kjarval er meðal annars þekktur fyrir að teikna fígúrur inn í landslagsverk sín. Hér er ekki slíku til að dreifa, þó að hugsanlega megi segja að um óbeina persónugervingu sé að ræða. Fjallamjólk er vissulega ekki persóna en vísar til einhvers þess sem mennirnir leggja sér til munns. Smjér drýpur af hverju strái þegar náttúran er annars vegar - þó þetta sé aðeins speglun himins í vatni gjárinnar. ■ Óbein persónugerving náttúrunnar ■ Málverk vikunnar FJALLAMJÓLK Eitt af mörgum fræg- um verkum Kjarvals. Verkið er olía á striga, 106 x 150, og málað 1941.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.