Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 20

Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 20
■ Viðtal 20 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR Þú varst mjög hvött til þess, afstuðningsmönnum þínum, að fara í framboð gegn svila þínum, Össuri, og skoðanakönnun gefur til kynna að þú hefðir sigrað hann með yfirburðum. Þú ákvaðst að fara ekki að þessu sinni, en var þetta ekki óþægileg staða og erfið ákvörðun? „Auðvitað var þetta ekki auð- velt. Þetta var flókin ákvörðun þar sem þurfti að taka tillit til margra þátta. Hún sneri að Sam- fylkingunni og flokksmönnum, Össuri og mér. Og svo sneri hún að því fólki sem stendur næst okk- ur Össuri. Auðvitað eru tilfinning- ar á alla vegu. Ég þurfti að fara í gegnum mikið hugsanaferli áður en ég fann hvað ég vildi gera. Svo var áreitið mikið og ég varð að skilja á milli þess og hins sem ég vildi sjálf.“ En er þetta það sem þú vilt sjálf? „Ég hefði aldrei tekið þessa ákvörðun ef ég væri ósátt við hana. Ég hafði ákveðið með sjálfri mér í sumar að bjóða mig hvorki fram til formanns né varaformanns heldur leiða framtíðarnefnd flokksins og láta þar við sitja. Mér finnst það vera óskaverkefni fyrir stjórn- málamenn sem hafa áhuga á hug- myndum. Auk þess hefur mig dreymt lengi um að sækja mér meiri menntun. Aðstæðurnar sköp- uðu mér tækifæri til að láta þann draum rætast.“ Hvað ertu að fara að læra? „Ef allt gengur eftir geri ég ráð fyrir að verða það sem kallast „Visiting Research Fellow“ við European Institute í London School of Economics. Þetta er ekki hefðbundið framhaldsnám heldur þriggja mánaða verkefni sem ég ætla að sinna, en í þessu felst að ég fæ aðstöðu við skólann, aðgang að þeim fyrirlestrum sem ég hef áhuga á og ákveðna leið- sögn. Ég á eftir að skilgreina verkefnið nákvæmlega en ástæð- an fyrir því að ég vel European Institute er að ég vil skoða tengsl Íslands og Evrópusambandsins.“ Þú ert þá hörð á því að við eig- um að ganga inn í Evrópusam- bandið? „Þegar við gerðum EES-samn- inginn sagði ég að hann væri and- dyrið og hvað ætlar maður að dvelja lengi í anddyrinu áður en maður fer inn í stofuna? Mér finnst þetta eiginlega ekki vera spurning um hvort, heldur hvenær. En um leið verður að meta mjög raunsætt hvaða ávinn- ing og skuldbindingar innganga hefur í för með sér. Við getum ekki bara plokkað rúsínurnar úr jólakökunni og skilið allt hitt eftir. Það er nokkuð rótgróin afstaða hjá okkur Íslendingum að við eig- um að geta verið með í alþjóðlegu samstarfi eingöngu á eigin for- sendum og notið ávinningsins án þess að leggja mikið af mörkum. Þetta finnst mér pólitískt og sið- ferðilega röng afstaða. Ef maður fylgir jafnaðarstefnu og er þeirr- ar skoðunar að það eigi að stuðla að jafnari tekjuskiptingu í samfé- laginu, þá hlýtur maður líka að vera þeirrar skoðunar að það þurfi að draga úr ójöfnuði milli svæða og heimshluta. Þá verða þau ríki, sem eiga og geta, að leggja eitthvað af mörkum til hinna sem minna eiga og minna geta. Við Íslendingar erum tví- mælalaust í hópi hinna ríku þjóða.“ Kolkrabbinn riðar til falls Sjálfstæðisflokkur og Fram- sóknarflokkur eru aftur við völd og valdaseta þeirra er orðin nokkuð löng. Fylgir því spilling að flokkar séu lengi við völd? „Flokkar og einstaklingar geta spillst af valdi. Þá fara þeir að gefa þeim sem gagnrýna þá langt nef. Þeim verður alveg sama hvað hver segir og gera það sem þeim sýnist af því að þeir telja sig kom- ast upp með það. Þetta finnst mér að vissu leyti vera farið að ein- kenna stjórnarsetu Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks.“ Það eru miklar hræringar í við- skiptalífinu og ekki verður annað séð en Kolkrabbinn sé að falla. „Það er greinilegt að Kolkrabb- inn riðar til falls. Reyndar sér maður mörg merki þess að það virðist vera að fjara undan þeim fyrirtækjum samfélagsins sem hafa sett allt sitt traust á vald Sjálfstæðisflokksins, reynt að þjóna þeim flokki og notið velvild- ar hans. Þau hafa misst sjónar á upphaflegu markmiði sínu og svo virðist sem ýmsar ákvarðanir séu teknar til að tryggja ákveðnum eignahópum í Sjálfstæðisflokkn- um völd og áhrif, en ekki endilega með hagsmuni fyrirtækisins eða rekstursins að leiðarljósi. Ég veit að það er hættulegt fyrir stjórn- málamann að gagnrýna fjölmiðla, en mér finnst eins og það hafi gætt svipaðrar tilhneigingar hjá Mogganum og enn frekar hjá DV upp á síðkastið. Það er eins og það sé að fjara undan þessum blöðum, meðal annars vegna þess að þau eru svo áköf í stuðningi sínum við Sjálfstæðisflokkinn. Afstaða þeirra til pólitískra mála er svo fyrirsjáanleg að þau eru hætt að koma lesendum sínum á óvart. Við búum í mjög fjölbreytilegu samfélagi og allur þorri fólks hef- ur skoðanir sem rekast ekki Mér fannst mikil- vægt að segja því fólki sem vildi að ég byði mig fram til formennsku að þó ég ætlaði ekki að gera það núna þá þýddi það ekki að ég væri orðin afhuga stjórnmálum. Ég er ekki hætt í stjórnmálum. Það væru svik við það fólk sem kaus mig ef ég gæfi mér alveg frítt spil eins og mig kannski langaði til. Ég veit að margt fólk hefur komið til liðs við Samfylkinguna og vill koma til liðs við hana meðal annars vegna þess að ég fór í framboð í síðustu alþingis- kosningum. Ég ber ábyrgð gagnvart því fólki. Ég vil að það viti að ég er ekki á förum.“ ,, FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM INGIBJÖRG SÓLRÚN „Ég vil ekki vera eins og fáni sem er dreginn að húni fyrir kosningar og svo bara dreginn niður aftur og pakkað niður í kassa að þeim loknum. Þess vegna fannst mér mikilvægt að það kæmi fram að ég stefndi að því að bjóða mig fram til formanns eftir tvö ár.“ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ræðir um stöðu sína, uppgjörið við Össur, Evrópusambandið, Kolkrabbann og Samfylkinguna Ég er ekki hætt í stjórnmálum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.