Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 21

Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 21
SUNNUDAGUR 31. ágúst 2003 endilega eftir flokkslínum. Þegar skoðanir fjölmiðla verða of eins- leitar missir fólk einfaldlega áhuga á þeim. Flokkapólitík á ekk- ert erindi lengur í rekstur fyrir- tækja, fjölmiðla og stofnana.“ Víkjum að hermálinu sem var mikið í fréttum. Hver er afstaða þín í því máli? „Það getur aldrei verið mark- mið í sjálfu sér að hafa hér er- lendan her. Hins vegar getur vel verið að það sé nauðsynlegt að hafa hér einhvern viðbúnað en hver á hann að vera, hvernig á hann að vera og á hann endilega að vera sá sem hann er? Við því fást engin svör vegna þess að stjórnvöld hafa ekki skilgreint hvaða vá það er sem að okkur get- ur steðjað. Það er álíka skynsam- legt og að koma upp almannavarn- arbúnaði án þess að meta hvaða hamfarir séu hugsanlegar. Ég sé heldur ekki að sú leynd sem hefur hvílt yfir þessu máli hafi verið nauðsynleg. Af hverju má þjóðin ekki taka þátt í umræðu um það hvaða hætta steðjar að okkur og hvernig rétt sé að bregðast við henni?“ En ef við höfum ekki banda- rískan her, hvað eigum við þá að gera? „Við erum í NATÓ og bandalag- ið hefur skyldum að gegna gagn- vart öryggishagsmunum okkar. Ég geri ráð fyrir því að einhver viðbúnaður sé nauðsynlegur, en ég get ekki fremur en aðrir svar- að því hver hann eigi að vera þeg- ar grundvallarvinnuna vantar. Stundum hefur komið upp um- ræða um íslenskan her, en mér finnst hún algjörlega út í hött. Ís- land er ekki af þeirri stærð- argráðu að það sé nauðsynlegt eða skynsamlegt.“ Upplifi enga persónudýrkun Þú átt mjög öflugan stuðnings- mannahóp og það hefur verið tal- að um leiðtogadýrkun í því sam- bandi. Finnst þér þetta stundum óþægilegt? „Ég upplifi enga persónudýrk- un í mínum stuðningsmannahópi. Þetta er fólk sem vill vinna á ann- an hátt en gert hefur verið í póli- tík og vill sjá ákveðnar breyting- ar á vinnubrögðum, skipulagi og pólitískum hugmyndum. Það tel- ur að ég geti beitt mér fyrir slíkri endurnýjun. Ég þekki það manna best, eftir að hafa verið í Ráðhús- inu, að þó að maður sé borgar- stjóri, og eins og jarðarberið á tertunni, þá er forysta ekki eins manns verk. Hún er hópvinna og verður aldrei öðru vísi. Til að ná árangri þarf maður að hafa með sér mjög gott fólk sem bætir mann sjálfan upp. Þegar maður er í forystuhlutverki er mikil- vægt að gæta sín á því að vera ekki umkringdur viðhlæjendum og fólki sem talar upp í eyrun á manni, heldur ekki síður fólki sem segir það sem þarf að segja og getur verið óþægilegt að heyra.“ Eiga stjórnmálamenn að láta stjórnast af skoðanakönnunum? „Nei, en þeir verða að vita hvað fólk er að hugsa og skoðanakann- anir eru mikilvægt tæki í því sam- bandi. Mér finnst mjög eðlilegt að það séu gerðar kannanir um stuðn- ing við einstaklinga eða flokka. Slíkar kannanir geta gefið mikil- væga vísbendingu um það hvort maður hafi haft erindi sem erfiði og hvort það sé yfirleitt nokkur eftirspurn eftir manni. Auðvitað verður maður að hlusta á það. Þeg- ar kemur að málefnum er mjög hættulegt fyrir flokka að láta skoð- anakannanir stjórna afstöðu sinni. Það er röng notkun á skoðanakönn- unum og getur leitt menn á miklar villigötur. Það er tvennt sem mér finnst öðru fremur skipta máli í stjórn- málum. Það er annars vegar að hafa framtíðarsýn og hins vegar að deila áhyggjum fólksins. Þær endurspeglast stundum í skoðana- könnunum og það er mikilvægt að stjórnmálamenn viti af þeim svo allt þeirra tal fari ekki fyrir ofan garð og neðan. Við leysum ekki hvers manns vanda, en við verðum að vita af hverju fólk hefur áhyggjur. En við eigum ekki að stjórnast af almenningsálitinu heldur reyna að hafa áhrif á það með pólitík okkar að leiðarljósi og sannfærandi málflutningi.“ Er ekki á förum Össur hefur ekki útilokað að bjóða sig fram til formanns árið 2005 og allir gera ráð fyrir að þú bjóðir þig fram þá. Er ekki bara verið að fresta óþægilegu en óum- flýjanlegu uppgjöri? „Tíminn verður að leiða það í ljós. Mér fannst mikilvægt að segja því fólki, sem vildi að ég byði mig fram til formennsku, að þó ég ætlaði ekki að gera það núna þá þýddi það ekki að ég væri orð- in afhuga stjórnmálum. Ég er ekki hætt í stjórnmálum. Það væru svik við það fólk sem kaus mig ef ég gæfi mér alveg frítt spil eins og mig kannski langaði til. Ég veit að margt fólk hefur komið til liðs við Samfylkinguna og vill koma til liðs við hana meðal annars vegna þess að ég fór í framboð í síðustu alþingiskosningum. Ég ber ábyrgð gagnvart því fólki. Ég vil að það viti að ég er ekki á förum. Ég vil ekki vera eins og fáni sem er dreginn að húni fyrir kosning- ar og svo bara dreginn niður aft- ur og pakkað niður í kassa að þeim loknum. Þess vegna fannst mér mikilvægt að það kæmi fram að ég stefndi að því að bjóða mig fram til formanns eftir tvö ár. Ég vildi ekki að þetta fólk hugsaði sem svo: Jæja, hún ætlar að taka því rólega næstu tvö árin. Þá er best að við gerum það líka og sjá- um hvað setur. Þá hefði verið til lítils unnið og ekki orðið sú end- urnýjun sem stærð Samfylking- arinnar gefur tilefni til. Menn eru að tala um að þetta verði erfitt fyrir Össur. Ég held að það sé mikill fengur að því fyrir Össur sem formann að fá allt þetta fólk til starfa sem mun taka þátt í því að byggja upp flokkinn undir hans forystu. Það verður blóm í hnappagatið hjá honum að geta leitt Samfylkinguna farsæl- lega á þessum tveimur árum. Það hefði verið mjög erfitt fyrir hann og vont fyrir Samfylkinguna ef þetta fólk hefði ekki skilað sér til starfa.“ kolla@frettabladid.is Heimsferðir bjóða borgarævintýri til fegurstu borga Evrópu á hreint frábærum kjörum með beinu flugi í haust. Alls staðar nýt- ur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar, sem eru á heimavelli á söguslóðum og bjóða spennandi kynnisferðir meðan á dvölinni stendur. Notaðu tækifærið og kynnstu mest spennandi borgum Evrópu, mannlífi og menningu og upplifðu ævintýri í haust. Fegurstu borgirnar í beinu flugi í haust frá kr. 28.550 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Róm 1.-5. okt. Heimsferðir bjóða nú einstakt tæki- færi til borgarinnar eilífu í beinu flugi þann 1. okt. frá Íslandi til Rómar. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg sem á engan sinn líka í fylgd farar- stjóra Heimsferða og upplifað árþús- undamenningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið. Sjá www.heimsferðir.is Verð frá kr.65.850 Búdapest október fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Stórkostleg borg í hjarta Evrópu, sem Íslendingum býðst nú að kynn- ast í beinu flugi frá Íslandi. Hér getur þú valið um góð 3 og 4 stjörnu hótel í hjarta Budapest og spennandi kynnisferðir með farar- stjórum Heimsferða. Verð kr. 28.550 Flugsæti til Budapest 20. okt. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Verona 17. sept., 5 nætur Fegursta borg Ítalíu, þar sem þú getur notið hins besta af ítalskri menningu um leið og þú gengur um gamla bæinn, skoðar svalir Júlíu og kynnist frægasta útileik- húsi Ítalíu, Arenunni í Verona eða ferðast um Gardavatn og Feneyjar. Verð kr. 29.950 Flugsæti með sköttum. Völ um 3 og 4 stjörnu hótel. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Prag Okt. og nóv. fimmtud. og mánud., 3, 4 eða 7 nætur Fegursta borg Evrópu og eftirlæti Íslendinga sem fara nú hingað í þúsundatali á hverju ári með Heims- ferðum. Fararstjórar Heimsferða gjör- þekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Góð hótel í hjarta Prag. Verð kr. 29.950 Flug og hótel í 3 nætur. M.v. 2 í her- bergi á Quality Hotel, 3. nóv. með 8.000 kr. afslætti. Skattar innifaldir. Gildir frá mánudegi til fimmtudags. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Barcelona 2. okt. 3 nætur 22./26./30. okt. 4 nætur Einn vinsælsti áfangastaður Íslend- inga í 11 ár. Heimsferðir bjóða nú bein flug í október, sem er einn skemmtilegasti tíminn til að heim- sækja borgina. Menningarlífið er í hápunkti og ótrúlegt úrval listsýn- inga og tónleika að heimsækja ásamt spennandi næturlífi og ótrú- legu úrvali verslana. Fararstjórar Heimsferða kynna þér borgina á nýjan hátt, enda hér á heimavelli. Verð kr. 49.950 Flug og hótel í 4 nætur. M.v. 2 í herbergi á Aragon, 22. okt. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Sorrento 30. sept., 5 nætur Heimsferðir bjóða nú í fyrsta sinn á Íslandi beint flug til Napolí og dvöl í Sorrento, þessum frægasta sumar- leyfisstað Ítalíu. Hér kynnist þú hinni ótrúlega fögru Amalfi strönd, eyjunni Capri, Pompei og Napolí. Ótrúlega fallegt umhverfi og heill- andi andrúmsloft á þessum fagra stað. Völ um úrvalshótel í hjarta Sorrento. Verð kr. 63.650 Flug og hótel í 5 nætur. M.v. 2 í her- bergi á La Meridiana með morgunmat. Skattar innifaldir. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Verð m.v. 2 í herbergi, Hotel Villa Torlonia, flug, gisting, skattar, íslensk fararstjórn. Ekki innifalið: Forfalla- gjald, kr. 1.800 valkvætt. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800. Ég upplifi enga persónudýrkun í mínum stuðningsmanna- hópi. Þetta er fólk sem vill vinna á annan hátt en gert hefur verið í pólitík og vill sjá ákveðnar breytingar á vinnubrögðum, skipulagi og pólitískum hugmyndum. Það telur að ég geti beitt mér fyrir slíkri endurnýjun. Ég þekki það manna best eftir að hafa verið í Ráðhúsinu að þó maður sé borgarstjóri, og sé eins og jarðarberið á tert- unni, þá er forysta ekki eins manns verk. Hún er hóp- vinna og verður aldrei öðru- vísi. Til að ná árangri þarf maður að hafa með sér mjög gott fólk sem bætir mann sjálfan upp. Þegar maður er í forystuhlutverki er mikilvægt að gæta sín á því að vera ekki umkringdur viðhlæjendum og fólki sem talar upp í eyrun á manni heldur ekki síður fólki sem segir það sem þarf að segja og getur verið óþægilegt að heyra.“ ,, UM STUÐNINGSKANNANIR „Mér finnst mjög eðlilegt að það séu gerðar kannanir um stuðning við einstaklinga eða flokka. Slíkar kannanir geta gefið mikilvæga vísbendingu um það hvort maður hafi haft erindi sem erfiði og hvort það sé yfirleitt nokkur eftirspurn eftir manni. Auðvitað verður maður að hlusta á það.“

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.