Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 24
■ Þjóðfélagið
24 31. júlí 2003 SUNNUDAGUR
■ Alþingi götunnar
SPURT ER:
Hvaða skandall í
þjóðlífinu er þér efst
í huga þegar þú
lítur yfir síðastliðin
fimm ár?
Þorvaldur Þorvaldsson, smiður:„Mesta hneykslismálið sem
mér dettur í hug er stríðstefna ís-
lenskra stjórnvalda og má þar
nefna Balkanskaga og Írak.“
Ársæll Másson, framhalds-skólakennari: „Íraksstríðið
og hvernig heimurinn, þar með
talin við, fór í stríð út á tómt
gabb og plat.“
Karl Gunnarsson, leigubíls-stjóri: „Olíufélögin og
þeirra samráð. Af nægu er að
taka en þetta kemur fyrst upp í
kollinn.“
Snorri Steinþórsson, mat-reiðslumaður: „Árni Johnsen
og allt það mál.“
Snorri Ásmundsson, myndlist-armaður: „Það var skandall
þegar ég ætlaði að bjóða mig
fram sem borgarstjóraefni
Sjálfstæðisflokksins en þeir
hunsuðu mig og þar með lýð-
ræðið.“ ■
Spillingarmál, þjóðin stendur áöndinni, gapir, allt brjálað,
ekki nokkur maður getur ímynd-
að sér að stjórnin haldi velli ...
„Ef þetta hefði gerst í nágranna-
löndunum væri maðurinn fyrir
löngu búinn að segja af sér!“ - er
setning sem oft heyrist: „Þetta
er algjört bananalýðveldi!“ En ...
svo gerist ekki neitt. Hér á opn-
unni verða rifjuð upp nokkur
þeirra hneykslismála, sem svo
hafa verið kölluð, og sem ollið
hafa miklum úlfaþyt á undan-
förnum árum, oft með óljósri
niðurstöðu, en þó stundum með
lausn í för með sér. Stormur í
vatnsglasi, myndu margir segja
um þessi mál. Hreinn og klár
skandall, segja aðrir. Spilling af
verstu sort.
... svo gleymist málið
Gunnar Gunnarsson, rithöf-
undur og fréttamaður, orðaði
þetta svo í Spegli Ríkisútvarps-
ins á dögunum að nú hafi sama
mynstrið átt sér stað einu sinni
enn. Ráðherra hneykslar fjölda
manns með embættisveitingu.
„Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sinnti ekki ábendingu
Hæstaréttar heldur valdi ungan
héraðsdómara í stól hæstarétt-
ardómara,“ sagði Gunnar. „Ráð-
herrann tók sinn mann fram yfir
þá sem Hæstiréttur hefði kosið.
Framhaldsnám náfrænda for-
sætisráðherra í Evrópurétti
gerði héraðsdómarann á Selfossi
að ómótstæðilegum kosti.
Almenningur á Íslandi er orðinn
vanur þessu.“
Gunnar sagði mótmæli standa
í tvo til þrjá daga en svo gleym-
ist málið. Við hávaðamál sleppi
ráðamenn við gagnrýnar spurn-
ingar og það sem meira er - þeir
tapi ekki tiltrú kjósenda og alls
ekki fylgi. Menn vilji ekki gagn-
rýna um of, því það gæti komið
sér illa.
„Fyrir skemmstu var tekinn
framsóknarmaður, sem aldrei
hafði starfað í banka, og gerður
að Seðlabankastjóra þótt í em-
bættinu sæti fyrir valinkunnur
bankamaður, réttur maður á
réttum stað,“ sagði Gunnar.
„Dæmi um ráðningarspeki ís-
lenskra ráðherra eru mýmörg og
ná eins langt aftur í tíðina og
elstu menn muna. Að þessu sinni
munu mótmæli lögspekinga
duga skammt. Staðan hefur ver-
ið veitt og ekki meira með það.“
Minnst spilling á Íslandi
Ef Gunnar hefur rétt fyrir sér
má spyrja hvað þetta segi um
þjóðina. Er skammtímaminnið í
molum? Almenningsálitið veikt?
Niðurstaða Gunnars hljómar
kunnuglega en hún brýtur þó í
bága við orð mannsins sem ótví-
rætt hlýtur að þekkja þjóð sína
öðrum betur: „...það er sameigin-
legt mat Harvard háskóla og
stofnunar sem nefnist World
Economic Forum, að Ísland sé í
fyrsta sæti þegar kannað er í
hvaða ríkjum menn búa við
minnsta spillingu. Miðað við það
hvernig dansinn getur dunað í
dægurumræðunni hér á landi
þegar svonefnd spillingarmál
eru rædd, mætti fremur ætla að
við sætum eins og klessur í
botnsætinu, en að við skipuðum
virðingarsætið á toppnum, að
mati heimsþekktra stofnana,“
sagði Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra í síðasta áramóta-
ávarpi sínu.
Er þá dansinn sem dunar í
dægurmálaumræðunni án tón-
listar? Ys og þys út af engu?
Menn hafa reyndar bent á að
niðurstaðan sem Davíð bendir á
byggi ekki síst á könnunum á því
Grænmetismálið
Stórt hneykslismál var þegar
dreifingar- og heildsöluaðilar
grænmetis hittust í Öskjuhlíðinni
en höfðu svo miklar áhyggjur af
því að geta ekki treyst hvorum
öðrum og færðu því fundargerðir
af fundum sem þeir máttu ekki
segja konunum sínum frá.
Alvarleiki málsins er, að þarna
voru þeir að fremja stórþjófnað á
neytendum þessa lands, héldu
uppi grænmetisverði með sam-
ráði og stýrðu vöruflæði inn á
markaðinn. Þeir hlutu reynd-
ar þungar ákúrur fyrir frá
almenningi og yfirvöldum.
Falon Gong málið
Ég var mjög hneykslað-
ur á því á sínum tíma. Að ís-
lensk yfirvöld skyldu
stöðva friðsama mót-
mælendur sem
ætluðu sér að
nýta sér
h e i m s ó k n
forseta Kína
til að mót-
m æ l a
mjög grófum mannréttindabrot-
um í Kína. Þeir héldu hluta þessa
fólks í gíslingu, sem ekki er sæm-
andi þjóð sem kennir sig við frelsi
og umburðarlyndi.
Árna Johnsen-málið
Nú hefur Árni hlotið dóm fyrir
sín brot þannig að ég ætla ekki að
gera það að meginmáli. Það
hneykslar mig hins vegar þegar
menn kunna ekki að skammast
sín. Að sýna þjóðinni slíkan
dónaskap eins og fram
kom í bréfi Árna til Þjóð-
hátíðargesta nýverið er
fyrir neðan allar hellur.
Miðað við alvarleika
brotanna varð ég gáttað-
ur á þeirri framkomu. ■
Kárahnjúkavirkjun
Þó það sé stærra mál en ein-
hver skandall, þá verð ég að nefna
umhverfishneykslið þegar Sif
Friðleifsdóttir sneri við með
handafli, faglegum úrskurði
Skipulagsstofnunnar sem hafði
hafnað Kárahnjúkavirkjun vegna
umtalsverðra óafturkræfra um-
hverfisáhrifa. Við sjáum hvernig
búið er að rista náttúruna á hol og
skera Kárahnjúk fremri niður við
trog. Ekki er séð fyrir endann á
þessu máli sem sannarlega er al-
gert hneyksli.
Fræðimenn for-
smáðir
Ég nefni dæmi í
umfangsmeira máli:
Ummæli Valgerðar
Sverrisdóttur á
þingi í fyrra varð-
andi aðkomu vís-
indamanna á mati
á umhverfisáhrif-
um stórfram-
kvæmda. Áber-
andi orðið í
s a m f é l a g i n u
hvað ýmsir sér-
fræðingar sem
starfa á vegum
hins opinbera þurfa að vera varir
um sig og passa hvað þeir segja,
vilji þeir ekki eiga yfir höfði sér
reiði valdhafanna. Eru ráðamenn
farnir að beita óeðlilegum aðferð-
um og beinlínis kúga það fólk sem
starfar fyrir hið opinbera til að
vera málpípur þeirra? Ráðherrar
skamma vísindamenn og bera
þeim á brýn að þeir láti pólitískar
skoðanir sínar þvælast fyrir vís-
indalegum niðurstöðum! Hneyksl-
anleg framkoma.
Laxeldismálin
Ég nefni einnig mál sem á eft-
ir að verða enn stærra. Það er
hneyksli að Guðni Ágústsson
hafi heimilað þauleldi á laxi
af erlendum stofni í ákveðn-
um fjörðum landsins án
þess að láta fara fram mat á
umhverfisáhrifum slíks eld-
is á landsvísu. ■
JÓHANNES
GUNNARSSON
„Að sýna þjóðinni
slíkan dónaskap
eins og fram kom í
bréfi Árna til Þjóðhá-
tíðargesta nýverið er
fyrir neðan allar
hellur.“
Jóhannes Gunnarsson hjá Neytendasamtökunum:
Að kunna ekki
að skammast sín
KOLBRÚN
HALLDÓRSDÓTTIR
„Áberandi orðið í sam-
félaginu hvað ýmsir
sérfræðingar sem
starfa á vegum hins
opinbera þurfa að vera
varir um sig og passa
hvað þeir segja.“
Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður:
Yfirgengileg valdníðsla
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Svo virðist stundum sem þjóðarsálin standi á öndinni af einskærri hneykslan.
Ýmislegt getur komið til; embættisfærslur, stöðuveitingar, aðgerðir sem og
aðgerðarleysi stjórnvalda, græðgi fyrirtækja og einstaklinga, starfsloka-
samningar, launamál, sjálftaka og fjölmargt fleira eins og dæmin sýna.
Íslensk
hneyksli og
skandalar
■ Kviðdómurinn - Hverjir eru þrír stærstu skandalar undanfarinna ára?