Fréttablaðið


Fréttablaðið - 31.08.2003, Qupperneq 25

Fréttablaðið - 31.08.2003, Qupperneq 25
hvort mútur séu miklar eða litlar í stjórnsýslunni. Lítil sem engin hefð er fyrir slíku hér á landi, sem aftur á móti er ein ástæða þess að Íslendingar tróna á toppnum í spillingarleysi, að mati Harvard og fleiri stofnana. Eitt er í öllu falli ljóst: Hvað telst skandall og hneykslismál er skil- greiningaratriði sem býr í auga sjáandans. Fréttablaðið leitaði því til nokkurra viðmælenda og spurði hvaða hneykslismál undanfarinna ára komi fyrst upp í hugann þá spurt er. Svörin eins og við er að búast, hin fjölbreyti- legustu. jakob@frettabladid.is 25SUNNUDAGUR 31. júlí 2003 Þórarinn fimmti og Landsíminn Félagarnir, Þórarinn V., Friðrik Pálsson, Sturla Böðvarsson og Hall- dór Blöndal, voru alveg löðrandi upp fyrir haus í spillingu og al- mennum viðbjóði. Þeim tókst nán- ast að stúta gullhænunni Landsím- anum sem átti að heita í þjóðareign, 500 milljónir í einhverjar grínfjár- festingar og svo til að bíta hausinn af skömminni gekk Þórarinn hlæj- andi frá öllu með starfslokasamning uppá þrjátíu og sjö milljónir. Á sama tíma var einhver spill- ingargemsi í „Þjófmenningarhús- inu“, Guðmundur hét hann, allt vit- laust á sama tíma. Það var ekkert 11. september sem gat bjargað þeim þá eins og einhverjum, sem ég ekki man hvað heitir, Ísálfur, sem slapp með skrekkinn þá. Embættisviska Sólveigar Dómsmálaráðherrann fyrrverandi, Sólveig Pétursdóttir, er eitt stórt hneyksli með sín gullkló- sett og pappa- löggur. Menn mega velja hvort heldur sem er. Diskógellan sem náði sér í ríka karl- inn og náði að pota sér áfram í stjórnmálum með þessum líka glæsilegu embættisfærslum og ár- angri. Samráðin öll Olíufélögin, Grænmetismafían og og tryggingafélögin ... Allir brjálast í viku og svo endar þetta með einhverju grínatriði í ára- mótaskaupinu. Líkt og raketta, búmm, og svo er allt búið. Maður nennir alltaf minna og minna að æsa sig yfir þessu. Stærsti skandallinn er náttúrlega að Ís- lenska þjóðin skuli kjósa þetta yfir sig aftur og aftur. Kannski er ekki úr miklu að moða. Ég gleymi þessu alltaf sjálfur, öllu, þó mér blöskri oft, og er því far- inn að taka saman svartan lista á heimasíðu mína, til að minna mig á fyrir næstu kosningar. ■ Framúrakstur fæðingarorlofs Ný lög um fæðingarorlof voru keyrð í gegnum Alþingi á mettíma vorið 2000. Orlofið miðast við tekjur foreldra og bjóða því miður upp á misnotkun af mörgu tagi. Þar fyrir utan eru greiðslur vegna barna einstæðra foreldra mun minni en hinna og frá fyrstu tíð var ljóst að kostnaður skattgreið- enda yrði gífurlegur. Á allt þetta var bent en þingheimur allur, með Geir H. Haarde fjármálaráðherra í broddi fylkingar, skellti skollaeyr- um við. Nú í sumar kom svo í ljós að árlegur kostnaður er ekki 2 til 3 milljarðar króna eins og gert var ráð fyrir í athugasemdum með frumvarpinu, heldur 5 til 6 millj- arðar og fer hækkandi! Skandall- inn er tvöfaldur; stefnulaus fjár- austur úr ríkissjóði og fullkomið áhugaleysi fjölmiðla á ömurlegum vinnubrögðum, bara af því að mönnum fannst meint markmið eitthvað krúttlegt. Strætómál Ingibjargar Sólrúnar Strætisvagnar Reykjavíkur og Almenningsvagnar voru samein- aðir 2001 sem Strætó bs. Skúli Bjarnason lögmaður og einkavinur Ingibjargar Sólrúnar var fenginn til sérfræðiaðstoðar sem kostaði 6,5 milljónir. Við stofnun fyrirtæk- isins var svo skipuð stjórn og þessi sami Skúli tilnefndur af hálfu Reykjavíkurborgar til þess að vera stjórnarformaður. Fjórum dögum áður en hin nýja stjórn átti að koma saman hittust svo Skúli og varamaður hans í stjórn og komust að samkomulagi við Skúla um að gera sérstakan samning við hann upp á 4,5 milljónir fyrir að vera starfandi stjórnar- formaður og fram- kvæmdastjóri . Engir af hinum stjórnarmönn- um Strætó vissu um þetta, og það ekki einu sinni þegar þeir töldu sig sjáfa vera að leita að nýjum f r a m k v æ m d a - stjóra. Þorgeir Pálsson fer í kosn- ingabaráttu V o r i ð 2001 var kosið um framtíðarnýtingu Vatns- mýrinnar. Andstæðar fylkingar stofnuðu með sér samtök og háðu kosningabaráttu,sem fór prúð- mannlega fram. Það kom hins veg- ar óneitanlega mjög á óvart þegar borgarbúar fengu allt í einu lit- prentaðan áróðursbækling fyrir flugvellinum frá Þorgeiri Pálssyni flugmálastjóra. Þess munu engin dæmi að opinber embætti fari í kosningabaráttu með þessum hætti, ekki síst þar sem Flugmála- stjórn átti að heita hlutlaus um- sagnaraðili í málinu. Skýringar- innar var ekki langt að leita. Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra hafði ákveðið að berjast fyr- ir flugvellinum hvað sem það kostaði: f l u g m á l a s t j ó r a æruna og skattborg- ara peninga. ■ 2003Frumskýrsla Samkeppnis-stofnunar leiðir í ljós að ol- íufélög landsins höfðu víðtækt verðsam- ráð. Ekki er séð fyrir endann á því máli sem flækst hefur milli Pontíusar og Pílatusar, Sam- keppnisstofnunar og Ríkislögreglu- stjóra, um nokkurt skeið. Málið er nú í höndum efnahagsbrotadeildar. Og fleiri mál hafa valdið ólgu á árinu. Hæst ber líklega þegar Davíð Oddsson sakaði for- stjóra Baugs um tilraun til að bera á sig fé, í gegnum Hrein Loftsson stjórnarfor- mann fyrirtækisins. Hlaust af þessu máli allmikill hvellur í þjóðarsálinni. 2002Falun Gong-liðum er mein-að að koma inn í landið. Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráðherra var þar í eldlínunni en talið er að stuðst hafi verið við svartan lista frá kínverska sendiráðinu, þegar ákveðið var hverjir máttu koma til landsins og hverjir ekki. Falun Gong vildi mótmæla við komu for- seta Kína til Ís- lands og vekja athygli á mann- réttindabrotum kínverskra stjórn- valda. Ferðalang- ar fóru m.a. í hungurverkfall á flugstöðinni í París út af málinu. 2001Þórarinn V. Þórarinssonlætur af störfum sem for- stjóri Símans. Mikil og heit umræða spannst um störf hans þar, ráðningu hans á sínum tíma, glæfralega fjárfest- ingarstefnu fyrirtækisins undir hans stjórn og ekki síst starfslokasamning sem fólki þótti heldur ríflegur. Á sama ári lét Árni Johnsen af þingmennsku. Mikill darraðardans var í kringum Árna sem var svo fundinn sekur um að draga sér fé úr almannasjóðum og dæmdur til fangels- isvistar. 2000Aðilar grænmetismarkaðar-ins verða uppvísir af sam- ráði sem þeir lögðu grundvöll að á mjög leynilegum fundum í Öskju- hlíðinni. Málið allt teygir sig reyndar yfir talsvert lengri tíma en bara árið 2000, enda var hér um ákaflega víðtækt verðsamráð að ræða. 1999Séra Örn Bárður Jónssonvar rekinn sem ritari Kristnihátíðarnefndar. Ástæðan var talin vera vegna smásögu eftir hann sem birt- ist í Lesbók Morgunblaðsins: Íslensk Fjallasala h/f. Sagan fór fyrir brjóstið á Davíð Oddssyni sem taldi að í henni væri sér líkt við landráðamann. Um brottvikningu Arnar spunnust heitar um- ræður. 1998Jóhanna Sigurðardóttir vek-ur athygli á risnukostnaði og meintri spillingu æðstu stjórnenda Landsbankans. Þremur bankastjórum bankans var gert að hætta. Kastljósið beindist mjög að Sverri Hermannssyni, en í ljós kom að hann hafði leigt bank- anum, af sjálfum sér, laxveiðileyfi í Hrútafjarðará. Viðskiptaráðherra þá var Finnur Ingólfsson, en þeir tveir elduðu grátt silfur saman á þeim tíma og kallaði Sverrir Finn til dæmis „vaxtaflón“ í þeirri orrahríð. 1997Páskaþáttur Spaugstofunn-ar veldur nokkru uppnámi, en þar voru Spaugstofumenn með út- leggingu á afrekum frelsarans að hætti hússins. Hallvarður Einvarðsson skipaði ríkissaksóknara að kanna hvort þarna hafi verið brotin þau lög sem banna að smána trúarskoðanir. Ekki varð ákært í málinu og niðurstaðan líklega sú, sem oftar, þegar eins konar ritskoðun er ann- ars vegar, að vopnin snúast í höndum manna - hneykslanin hitti hinn hneyksl- aða fyrir. 1996Uppnám verður meðalþjóðarinnar þegar biskup Íslands, herra Ólafur Skúlason, er sakað- ur um kynferðislega áreitni. Málið dróst mjög á langinn og kostaði úrsagnir úr Þjóðkirkjunni. Biskup hafnaði alfarið allri sök og varðist með því að kæra tvær konur fyrir rangar sakagiftir. Seinna dró hann kæruna til baka og lét af störfum, eilítið fyrr en til stóð, sökum málsins. 1995Deilur í Langholtskirkjuvekja mikla athygli. Aðal persónurnar voru organistinn Jón Stef- ánsson og Séra Flóki Kristinsson sem deildu ákaft um kirkjustarf og helgihald og meðal annars um það hvort tónlistarflutningur væri til- hlýðilegur í kirkjuathöfnum. Um fátt meira var talað en deilur prestsins og organist- ans. ■ DR. GUNNI „Dómsmálaráðherrann fyrrverandi, Sólveig Pétursdóttir, er eitt stórt hneyksli með sín gullklósett og pappalöggur. Menn mega velja hvort heldur sem er.“ Gunnar L. Hjálmarsson fjölmiðlamaður: Margir spillingagemsarnir Andrés Magnússon blaðamaður: „Krúttlegur“ skandall ÍSLENDINGAR Oft logar þjóðarsálin út af atburðum í þjóðlífinu sem fara fyrir brjóstið á fólki. Margir hafa á það bent að oft virðist sem þessir sömu atburðir gleymist fljótt, án þess að nokkuð sé að gert. Stiklað á stóru: Mál sem valdið hafa usla ANDRÉS MAGNÚSSON: „Þess munu engin dæmi að opinber embætti fari í kosningabaráttu með þessum hætti.“

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.