Fréttablaðið - 31.08.2003, Page 26

Fréttablaðið - 31.08.2003, Page 26
Davíð Oddsson forsætisráð-herra er umdeildastur allra stjórnmálamanna á Íslandi, sam- kvæmt könnun sem Fréttablaðið lét gera á dögunum, og er það í takt við svipaðar niðurstöður úr sambærilegum könnunum á und- anförnum árum. Ef einhverjir hafa haldið að öldurnar um for- sætisráðherrann myndu lægja, nú þegar hann hefur lýst því yfir að hann muni láta af embætti eftir eitt ár, þá er það misskilningur, samkvæmt könnunni. Alls 34,2 prósenta þeirra sem afstöðu tóku nefndu Davíð sem þann stjórn- málamenn sem þeir bera mest traust til. Sá bögull fylgir yfirleitt skammrifi, í tilviki Davíðs í könn- unum sem þessum, að hann skor- ar einnig hátt þegar spurt er hvaða stjórnmálamann fólk beri minnst traust til. Tæp 30 prósent sögðust bera minnst traust til hans og trónir hann því á toppnum á þeim lista líka. Misjafnt gengi foringjanna Sá stjórnmálamaður sem var al- menningi hugleiknastur í þessari könnun, að frátöldum Davíð, er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og er traust/vantraust í nokkru jafnvægi hjá henni, þó ívið fleiri nefni hana sem þann stjórnmálamann sem þeir treysti verst eða rúm 16 pró- sent gegn 15 prósentum þeirra sem treysta henni best allra stjórn- málamanna. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra og verðandi for- sætisráðherra má vel við una, en talsvert fleiri treysta honum eða 13,6 prósent gegn 6,5 prósent þeirra sem treysta honum illa. Er það nokkuð í samræmi við hlið- stæðar kannanir sem gerðar hafa verið á undanförnum árum. Hall- dór er stjórnmálamaður sem kjós- endur treysta - og fleiri treysta honum en ætla að kjósa Framsókn- arflokkinn, en í sömu könnun kom fram að aðeins 13,1 myndu greiða honum atkvæði væri kosið núna. Það virðist hlutskipti Össurar Skarphéðinssonar, formanns Sam- fylkingarinnar, að taka á sig óvin- sældir flokks síns meðan Ingi- björg Sólrún nýtur fremur sólar- geislanna. Sú hefur reyndar verið tilhneygingin í hliðstæðum könn- unum og virst reyndar fremur vera að draga saman með þeim en hitt. Össur er nefndur mun sjaldn- ar meðal þeirra sem vilja nefna hann sem traustasta stjórnmála- manninn, en hinna sem telja hann ekki traustsins verðan: 13,9 pró- sent nefna hann sem þann sem þeir treysta síst, gegn 3,2 prósent- um þeirra sem segjast treysta honum best. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vg fær heil 8,4 prósent sem sá er fólkið treystir best - sem er umfram fylgi sem flokkur hans fékk í sömu könnun, sem var 6%. Þeir sem njóta trausts Aðrir stjórnmálamenn ná vart tali þegar traustsyfirlýsingar eru annars vegar. Geir Haarde fjármálaráherra hreppir reynd- ar 3,6 prósent þeirra sem nefna traustasta stjórnmálamanninn. Þeir Guðni Ágústsson og Guðjón A. Kristjánsson eru með tæp 2 prósent í því sem kalla má traustsyfirlýsingar. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og Jóhanna Sigurðardóttir þing- maður Samfylkingar eru með 1,6 prósent. Aðrir stjórnmálamenn sem náðu tölu sem hinir traust- verðugu eru Jón Kristjánsson, Ögmundur Jónasson, Árni Mathiesen, Margrét Frímanns- dóttir og Björn Ingi Hrafnsson, sem má heita óvæntur á lista í ljósi þess að hann situr ekki á þingi. „Ótraustir“ stjórnmálamenn Á þeim ási stjórnmálamanna sem njóta minnst trausts eru Davíð, Ingibjörg Sólrún, Össur og Halldór Ásgrímsson mest áberandi. Þessi hafa reyndar nokkuð til að jafna vegasaltið, því að þeir njóta einnig trausts, en sú virðist ekki raunin með Sturlu Böðvarsson samgöngu- ráðherra. Rúm 5 prósent nefna hann til sögunnar sem þann sem síst skyldi treysta, en enginn sem þann sem þeir treysta. Björn Bjarnason skorar ágæt- lega einnig í skorti á trausti, en 4,9 prósent treysta honum illa, á móti 1,6 prósenti sem treysta honum vel. Árni Mathiesen sjáv- arútvegsráðherra er með tæp 3 prósent í vantrausti sem og samflokksmaður hans, Sigurður Kári Kristjánsson, sem verður að teljast hástökkvari könnunar- innar hvað varðar lítið traust, þar sem hann er nýr á þingi. Ekki er ólíklegt að Sigurður Kári gjaldi hér fyrir það að hafa komist í fréttir í tengslum við nýlega ökuleyfissviptingu. Einhverjum kann einnig að koma á óvart að Kolbrún Hall- dórsdóttir er nefnd af rúmum tveimur prósentum sem sú sem aðspurðir treysta minnst. Gunnar Örlygsson, sem er einnig nýr á þingi eins og Sigurður Kári – og afplánar nú fangelsisdóm, sem kann að hafa áhrif á niðurstöðuna – er á sama báti og landbúnaðar- ráðherra, Guðni Ágústsson með 1,6 prósent í vantrausti. Aðrir stjórnmálamenn, sem komust á blað og ekki þykja traustsins verðir eru: Steingrímur J. Sigfús- son, Sólveig Pétursdóttir, Kristinn H. Gunnarsson, Siv Friðleifsdótt- ir, Árni Johnsen, Pétur Blöndal, Jóhanna Sigurðardóttir, Ólafur F. Magnússon, Ögmundur Jónasson og Guðjón A. Kristjánsson. Um könnunina Könnunin var gerð fyrir viku, vel að merkja áður en Ingibjörg Sólrún tilkynnti um ákvörðun sína varðandi framboð sitt til varaformanns Samfylkingar á næsta flokksþingi og svo, að hún stefndi á formannsstólinn árið 2005. Átta hundruð manns voru spurðir og skiptust jafnt á milli karla og kvenna sem og hlut- fallslega milli landsbyggðar og þéttbýliskjördæma. Spurt var: „Hvaða stjórnmálamanns berðu mest traust til um þessar mund- ir?“ og var svarhlutfall þar 62%. Einnig var spurt: „Til hvaða stjórnmálamanns berðu minnst trausts til um þessar mundir?“ og var svarhlutfallið þar 53,7%. jakob@frettabladid.is ■ Stjórnmál 26 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR Bæjarlind 2 Kópavogi : 544 2210 www.tsk.is  Öryggi upplýsingakerfa A til Ö Mjög sérhæft og ítarlegt 180 kennslustunda nám haldið í samstarfi við áhættuþjónustudeildDeloitte &Touche. Tekið er á öllum þáttum öryggis upplýsingakerfa s.s. dulkóðun og PKI, samskiptaöryggi, notendaöryggismál, viðbrögð við óæskilegum aðstæðum, forvarnir, gerð öryggisstefna o.fl. Unnið verður með vélbúnað og hugbúnað sem notaður er til að tryggja öryggi í nútíma upplýsingakerfum, t.d. Cisco, Microsoft, Linux, Checkpoint, ISS Scanner, Nmap, Netcat, Neotrace, TCPdump og Snort. Einnig verður árásarbúnaður eins og L0pht, Netbus, Sub Seven, Keylogger, Crackog fleiri skoðaðir. Þessi námsbraut er fyrst og fremst fyrir starfandi kerfisstjóra í meðalstórum og stærri fyrirtækjum og stofnunum sem og starfsmenn tölvuþjónustufyrirtækja. Þátttakendur þurfa að hafa amk. 2ja ára starfsreynslu sem kerfisstjórar auk góðrar enskukunnáttu. Hægt er að velja um eftirfarandi tíma: Mánudaga og miðvikudaga, 13:00 - 17:00, byrjar 8. sept. Þriðjudaga og fimmtudaga, 08:30 - 12:30, byrjar 9. sept. Helgarnám, kennt er föstudaga, laugardaga og sunnudaga, aðra hverja helgi, alls 6 helgar, byrjar 19. sept. Námslýsing: Fyrir hverja? Kennslutímar: Leiðbeinendur: Sérfræðikennari á öryggissviði,MCSE:Security, CISSP Sérfræðingur frá áhættuþjónustudeildDeloitte &Touche,MCSE,CCA Linux og IDSsérfræðingur frá Deloitte &Touche,RHCE Löglærður fulltrúi frá efnahagsbrotadeildRíkislögreglustjóra Eldveggjasérfræðingur, CCSA,CCSE Dulkóðunarsérfræðingur Cisco sérfræðingur frá Sensa, CCIE Veiruvarnasérfræðingur frá Friðrik Skúlasyni Opið hús laugardaginn 30. ágúst 13 - 16 Hvaða stjórnmálamaður er sá sem nýtur mests trausts og hver er sá sem almenningur treystir illa eða ekki? Samkvæmt könnun Fréttablaðsins er Davíð Oddsson, nú sem fyrr, sá stjórnmálamaður sem á greiðustu leið inn í hugarfylgsni fólksins. Hann fær langmest fylgi, bæði þegar um er að ræða mest traust og minnst traust. Umdeildir stjórnmálamenn ÞESSUM ER MEST TREYST Davíð Oddsson 34,2% Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 15,8% Halldór Ásgrímsson 13,6% Steingrímur J. Sigfússon 8,4% Geir Haarde 3,6% Össur Skarphéðinsson 3,2% Guðjón A. Kristjánsson 1,8% Guðni Ágústsson 1,8% Björn Bjarnason 1,6% Jóhanna Sigurðardóttir 1,6% ÞESSUM ER MINNST TREYST Davíð Oddsson 29,7% Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 16,2% Össur Skarphéðinsson 13,9% Halldór Ásgrímsson 6,5% Sturla Böðvarsson 5,1% Björn Bjarnason 4,9% Árni Mathiesen 2,8% Sigurður Kári Kristjánsson 2,8% Kolbrún Halldórsdóttir 2,1% Gunnar Örlygsson 1,6% Guðni Ágústsson 1,6% DAVÍÐ ODDSSON Nú sem fyrr er hann umdeildasti stjórnmálamaður Íslands. Hann nýtur langmest fylgis hvað varðar lítið traust og mikið trausts. Engu máli virðist skipta að hann lætur af emb- ætti forsætisráðherra eftir eitt ár INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Fylgir á hæla Davíðs, bæði hvað varðar mikið og lítið traust. Það er athylisvert að hún fær þó mun minna fylgi nú hvað varð- ar traust en oft áður. Gengi hennar hvað varðar lítið traust er hins vegar svipað nú og áður. SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON Spútnikmaðurinn á meðal þeirra sem njóta minnst trausts. Nýr á þingi og fær tæp 3% í vantrausti. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Fleiri treysta honum en ekki. Eins og oft áður í tilviki formanna Framsóknarflokksins virðist fylgi foringjans meira en flokksins. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Mun fleiri vantreysta honum en treysta, sem er reyndar gömul saga og ný í könn- unum sem þessum. STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Virðist njóta trausts. 8,4% nefna hann sem traustsins verðan. Hann kemst varla á blað á hinum ásnum. STURLA BÖÐVARSSON Hann virkaði ekki traustur á 5,1% að- spurðra. Á engan virkaði hann traustur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.