Fréttablaðið - 31.08.2003, Side 27
■ Listir
27SUNNUDAGUR 31. ágúst 2003
Lonneke van Leth er 27 ára gamall danshöfundur frá Hollandi sem hefur þá bjargföstu trú að það sé hægt að gera dansinn miklu
vinsælli en hann er núna. Hún semur því aðgengileg og galsafull verk. The Match, sem hún hefur frumsamið fyrir Íslenska dans-
flokkinn, er gott dæmi um slíkt verk, en það gerist í hita leiks á knattspyrnuvelli.
Dansað á vellinum
Ég fékk hugmyndina þegar égvar á krikketleik í Ástralíu“,
segir hollenski danshöfundurinn
Lonneke van Leth. Hún er stödd á
Íslandi um þessar mundir og vinn-
ur að uppsetningu verksins The
Match sem hún frumsamdi fyrir
Íslenska dansflokkinn.
Sviðið er landsleikur milli Ís-
lands og Hollands. Stemningin er
rífandi, tónlistin grípandi. Lonn-
eke leikur sér með alla þætti fót-
boltans og dansins, hreyfinguna,
baráttuna, árásargirnina, karl-
mennskuna, kvenleikann, sigur-
vímuna.
„Krikkett er einhvers konar
þjóðaríþrótt í Ástralíu og mér
fannst alveg magnað að sjá allt
þetta fólk koma saman til að horfa
á þetta. Krikket er bara svo leiðin-
leg íþrótt og þess vegna valdi ég
fótboltann frekar, enda gerast
margir skemmtilegir hlutir á vell-
inum.“ Lonneke segir að knatt-
spyrnan sé alls ekki svo frábrugð-
in dansinum.
„Dansinn er erfið íþrótt sem
þarf að æfa stíft þó hann sé öðru-
vísi en fótboltinn. Það er að vísu
ekki keppt til sigurs í dansinum
en fólk vill samt alltaf verða best
svo að þetta er ef til vill ekki svo
frábrugðið. Maður er alltaf að sjá
fótboltamenn dansa, hoppa yfir
hvorn annan og tengjast með alls
konar hreyfingum. Það þarf svo
auðvitað eitthvað að gerast
þannig að ég ýki upp allt sem ger-
ist í kringum fótboltaleiki og þetta
er ástarsaga milli tveggja knatt-
spyrnumanna.“
Fjörug og full af húmor
Lonneke er rísandi stjarna
meðal danshöfunda í Hollandi.
Hún er aðeins tuttugu og sjö ára
gömul en hefur þegar hlotið verð-
skuldaða athygli jafnt sem dans-
ari og danshöfundur. Verk hennar
þykja aðgengileg, fjörug og full af
húmor enda segist hún hafa sett
sér það takmark að gera dansinn
vinsælli. Hún útilokar ekki að
dansinn geti staðið jafnfætis fót-
boltanum í framtíðinni. „Ég leita
alltaf að því skemmtilega í lífinu.
Það er lífsspeki mín og ef eitthvað
er ekki skemmtilegt þá reyni ég
að gera það skemmtilegt. Ég slæ
því hlutunum oft upp í grín. Þessi
sýning er mjög leikræn og mig
langaði að gera eitthvað í þessa
áttina.“
Lonneke hefur ekki komið áður
til Íslands en þekkti samt ágæt-
lega til landsins. „Hlíf Svavars-
dóttir kenndi við skólann minn og
kom með mikið af íslenskum
dönsurum til Hollands, þannig að
ég þekki nokkra Íslendinga. Mér
finnst mjög spennandi að vera
hérna. Ég kom hingað fyrir tveim-
ur vikum og er í frábærri íbúð í
miðbæ Reykjavíkur sem er nú
ansi skrítinn miðbær miðað við
Amsterdam. Það er mjög hljótt
hérna og fólkið mjög vingjarn-
legt. Ég fer aftur heim eftir tvær
vikur þar sem ég þarf að dansa
sjálf en kem svo aftur skömmu
fyrir frumsýninguna.“
Gæti slegið í gegn
The Match er samstarfsverk-
efni Íslenska dansflokksins og
Holland Dance Festival. „Þetta er
stærsta danshátíð í Evrópu og að-
standendur hennar vildu endi-
lega bjóða Íslendingum að taka
þátt með hollenskum danshöf-
undi og mér var boðið að semja
fyrir þau. Ég sá dansflokkinn í
Þýskalandi í fyrra. Það var frá-
bært og það hefur verið mjög
gaman að vinna með þeim.“ The
Match verður frumsýnt í Borgar-
leikhúsinu þann 11. október en
sýningin verður svo flutt til
Hollands í lok mánaðarins. Tón-
listina við verkið semur hljóm-
sveitin Ske og spannar hún vítt
svið, allt frá tangó til urrandi
þungarokks.
Lonnecke þvertekur því ekki
fyrir það að The Match geti slegið
í gegn í heimalandi hennar þar
sem knattspyrnuhefðin er rík í
Hollandi. „Ég vona að þetta veki
athygli. Kynningarmálin eru auð-
vitað stórt vandamál og við verð-
um einhvern veginn að reyna að
koma þessu að í öllum fótbolta-
blöðunum. Þetta verður örugglega
gaman og vonandi náum við til
breiðari hóps en venjulega, enda
er dansinn þess eðlis að hann ætti
að höfða til allra“, segir Lonnecke
sem ætlar að kíkja á leiki í Lands-
bankadeildinni áður en hún fer
heim til Hollands að dansa.
thorarinn@frettabladid.is
LONNEKE VAN LETH
Segir margt tengja dansinn og knattspyrnuna og leikmenn séu í raun alltaf að stíga ein-
hvers konar dans þegar þeir takast á um boltann.
Dansinn er erfið
íþrótt sem þarf að
æfa stíft þó hann sé öðru
vísi en fótboltinn. Þar er að
vísu ekki keppt til sigurs, en
fólk vill samt alltaf verða
best svo að þetta er ef til vill
ekki svo frábrugðið.
,, FRÉTTAB
LA
Ð
IÐ
/B
JA
RG
EY