Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 28

Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 28
■ Jafnréttismál 28 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S S PA 2 15 57 08 /2 00 3 Föðursvipting er barnamisnotk-un.“ „Umgengni er mannrétt- indi.“ „Pabbi vill sjá þig“ „Amma vill sjá börnin.“ Svo hljóðuðu áletranir á mótmælaspjöldum sem meðlimir í Félagi ábyrgra feðra héldu á lofti fyrir utan sýslumannsembættið í Hafnar- firði á þriðjudaginn. Í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér af þessu tilefni segir: „Félag ábyrgra feðra mótmælir barnamisnotkun af hvaða tagi sem er. Feður eru iðu- lega sviptir börnum sínum við skilnað og síðan úrskurðuð tak- mörkuð umgengni. Félagið mót- mælir því að sýslumenn landsins láti föðursviptingu viðgangast og umbuni hnefaréttinum með því að þegar móðirin hrifsar til sín börn- in við skilnað sé hún verðlaunuð þegar kemur að umgengnisúr- skurði og föður dæmd lítil sem engin umgengni.“ Feðurnir leggja áherslu á það í mótmælum sínum, að sýslumönn- um beri að verja hagsmuni barns- ins í forræðis- og umgengnismál- um, en svo virðist hins vegar vera að sýslumenn telji sig fremur „eiga að verja hagsmuni mæðr- anna.“ Feðurnir benda á að í flest- um tilvikum sé „nauðsynlegt fyrir börn að umgangast feður sína eins mikið og hægt er“. Vaxandi hreyfing Mótmæli feðranna við sýslu- mannsembættið eru nýbreytni að því leyti í íslensku samfélagi, að hingað til hafa það verið fremur konur sem hafa mótmælt misrétti og oft með áhrifamiklum og ár- angursríkum hætti. Karlmenn hafa haldið sig til hlés. Mótmæli þeirra hafa þá frekar snúist um það að sýna málstað kvennanna stuðning. Breytt staða kvenna innan heimilis og utan virðist hins vegar hafa leitt til breyttrar stöðu karlmannsins, og breytts þanka- gangs. Nú færist það mjög í vöxt á Vesturlöndum að karlar stofni með sér hagsmunasamtök gegn því sem þeir kalla yfirgang kvena. Þeir halda því fram, að hagsmunir feðra gagnvart börn- um sínum, einkum og sér í lagi eftir skilnað, séu fyrir borð born- ir í þjóðfélagi sem tekur í yfir- gnæfandi fjölda tilvika málstað móðurinnar. Á heimsíðunni deltabravo.net má sjá hversu víðtæk hreyfing feðra er orðin í Bandaríkjunum um þessar mundir. Þar er að finna fjölda tengla í hagsmunasamtök um öll Bandaríkin, skipaða feðr- um sem hafa margir slæmar sög- ur að segja af yfirgangi mæðra, sem leyfa þeim ekki að sjá börnin sín eftir skilnað. Á einni síðunni er nefnd talan 850 þúsund, yfir þá feður í Bandaríkjunum sem telja sig vera misrétti beitta af mæðr- um sem aftra þeim í krafti kerfis- ins og með ýmsum aðferðum frá því að sjá börnin sín. Hvað er vandamálið? Það þarf ekki að koma neinum á óvart að skilnað- armál séu tilefni deilna, einkum og sér í lagi um uppeldi barna, milli föður og móður. Ýmislegt hefur gerst í þessum efnum hér á landi á undan- förnum árum. Sameiginleg forsjá var leidd í lög árið 1992 og er nú svo komið að í helmingi s k i l n a ð a kjósa for- eldrar að hafa sameiginlega forsjá. Í hinum helmingn- um fær móðirin hins vegar nær undan- tekningalaust for- sjána. Aðeins í 3% skilnaða fær faðirinn forsjána. Þá er það einnig tilfellið, að eft- ir skilnað eða sam- búðarslit foreldranna hafa yfir 90% barna lögheimili hjá móður- inni. Af þessu má ljóst vera að staða móður- innar er nokkuð betri gagnvart barninu en föð- urins, ef til deilna kemur milli for- eldranna, eins og mýmörg dæmi eru um. Garðar Baldvinsson for- maður Félags ábyrgra feðra nefndi dæmi um ýmsar tálmanir sem mæður setji feðrum við um- gengni barna í grein í Fréttablað- inu á dögunum. „Hér á ég ekki við skilyrði eins og að klæða þau á vissan hátt, að láta þau ekki borða mikið sælgæti eða þess háttar,“ skrifaði Garðar. „Heldur eru skil- yrðin þannig, að ef þeir til dæmis biðjast ekki afsökunar á að hafa farið frá móðurinni, ef þeir borga ekki ný húsgögn, tvöfalt meðlag, nýtt sjónvarp, ný föt á barnið eða borga ekki leikskólann að fullu, fá þeir ekki að sjá börnin sín jafnvel svo árum skiptir. Það er auðvitað útilokað fyrir félagsskap eins og Félag ábyrgra feðra að fullyrða um ástæður þessa hjá hverjum og einum. En það læðist vitanlega að manni sá grunur í mörgum þess- ara tilvika að mæður svipti feð- ur umgengni við börnin sín einungis af hefndarástæð- um.“ Í ofanálag bendir Félag ís- lenskra feðra á það að réttar- kerfið virðist umbuna mæðrum fyrir að taka börnin að sér eftir skilnað og styðja þær ein- dregið í þeirri við- leitni sinni. Þeir tala um að kerfið „umbuni mæðr- um fyrir hne- farétt,“ eins og segir í yfirlýs- ingu frá félaginu. Ill umtal, upp- nefni og níð Feðurnir ásaka mæður um að beita ýmsum aðferðum til að „að sverta ímynd feðra gagnvart börnum sín- um,“ eins og segir í yfir- lýsingu þeirra, „einkum eftir skilnað þegar deil- ur um forsjá og um- gengni standa yfir.“ Þeir nefna sem dæmi illt umtal á heimili forsjár- foreldris, órökstudda gagnrýni á föður, upp- nefni á föður í eyru barns- ins, að börn séu fengin til að skrifa níðbréf til föð- Það fór ekki hátt í liðinni viku þegar nokkrir meðlimir í Félagi ábyrgra feðra stóðu fyrir mótmælum fyrir utan sýslumannsembætt- ið í Hafnarfirði. Þeir mótmæltu því að sýslumenn úrskurðuðu nær alltaf móðurinni í hag í forræðismálum og vöktu athygli á því að oft er þeim meinað af móðurinni að hitta börn sín. Málstaður þeirra hefur enn ekki vakið jafnmikla athygli hér á landi og víða erlendis. Reiði feðranna Feðurnir nefna sem dæmi illt umtal á heimili forsjárforeldris, órökstudda gagnrýni á föður, uppnefni á föður í eyru barnsins og að börn séu fengin til að skrifa níðbréf til föðursins ,,

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.