Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 36

Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 36
36 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR HERNAN CRESPO Lék sinn fyrsta leik með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í gær þegar hann kom inn á sem varamaður fyrir Adrian Mutu. Fótbolti Spænska deildin: Beckham skoraði eftir 90 sekúndur FÓTBOLTI Það tók David Beckham ekki nema 90 sekúndur að skora fyrir Real Madrid í fyrsta leik spænsku efstu deildarinnar í gær þegar Spánarmeistararnir tóku á móti Real Betis. Beckham skoraði með skalla eftir frábæra sendingu frá hinum brasilíska Ronaldo. Þetta er annað mark Beckhams í tveimur leikjum og hefur hann skorað þau bæði með skalla. Real vann leikinn með tveim- ur mörkum gegn einu. ■ Liverpool landaði loksins fyrsta sigrinum Liverpool vann sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni í gær. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í leikmannahópi Chelsea. Arsenal og Manchester United geta tekið fjögurra stiga forystu í deild- inni með sigri í dag. FÓTBOLTI Leikmenn Liverpool léttu álagið á knattspyrnustjóranum Gerard Houllier þegar liðið vann Everton með þremur mörkum gegn engu í nágrannaslag liðanna í gær. Fyrir leikinn hafði Liver- pool ekki unnið leik í deildinni og ekki skorað nema eitt mark, úr tvítekinni vítaspyrnu. Þetta var í 169. skipti sem nágranna liðin áttust við og fjórði sigurinn í röð hjá Liverpool á Goodison Park. Michael Owen skoraði tvö mörk og Harry Kewell eitt. Stjörnumprýtt lið Chelsea lenti undir strax á fyrstu mínútu þegar Blackburn kom í heimsókn á Stam- ford Bridge. Andy Cole skoraði eftir 22 sekúndna leik eftir hræði- leg mistök Marcel Desailly í vörn Chelsea. Adridan Mutu jafnaði metinn en Cole kom Blackburn aft- ur yfir. Það var síðan Jimmy Floyd Hasselbaink sem jafnaði metinn úr vítaspyrnu. Eiður Smári Guðjohnsen var ekki í lekmanna- hópi Chelsea en Hernan Crespo kom inn á sem varamaður í seinni hálfleik. Leikmenn Newcastle virðast ekki vera búnir að jafna sig eftir háðslega útreið í forkeppni Meist- aradeildar Evrópu. Þeir steinlágu fyrir Birmingham á heimavelli, 1- 0. David Dunn hefði geta bætt við öðru marki fyrir gestina en Shay Given varði slaka vítaspyrnu hans. Leeds United lagði Middles- brough að velli með þremur mörk- um gegn tveimur. Gaizka Mendi- eta lék sinn fyrsta leik með Boro og lagði upp jöfnunarmark liðsins en það dugði ekki til. Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á sem varamaður þegar Úlf- arnir gerðu 0-0 jafntefli við Portsmouth. Bolton Wanderes og Charlton, með Hermann Hreiðars- son innanborðs, gerðu 0-0 jafntefli á Reebook vellinum. Tveir leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag. Arsenal mætir og Manchester United sæk- ir Southampton heim. Með sigri geta Arsenal og United tekið fjög- urra stiga forystu í deildinni. ■ Enska 2. deildin: Óheppni hjá Barnsley FÓTBOLTI Guðjón Þórðarson og lærisveinar í Barnsley gerðu 1- 1 jafntefli við botnlið Notts County í ensku 2. deildinni í gær. Dean Gorre skoraði mark Barnsley þegar fjórar mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Allt leit út fyrir að Barnsley færi með sigur af hólmi en Paul Heffernan, sem hafði komið inn á sem varamaður, jafnaði metin á síðustu mínút- unni. Barnsley er í öðru sæti deild- arinnar með ellefu stig, einu stigi á eftir toppliði Port Vale. ■ FÓTBOLTI Heiðar Helguson skoraði eitt mark þegar Watford gerði 2-2 jafntefli við Gillingham í ensku 1. deildinni í gær. Heiðar fór mikinn í leiknum og var óheppinn að skora ekki fleiri mörk. Lárus Orri Sigurðsson var í liði West Bromwich Albion sem lagði Derby að velli með einu marki gegn engu. Leikmenn Derby vildu fá dæmda vítaspyrnu á Lárus Orra strax á elleftu mínútu en dómarinn lét leikinn halda áfram. Pétur Hafliði Marteinsson sat á bekknum þegar Stoke tapaði fyrir Preston 1-0 og sömu sögu var að segja af Brynj- ari Birni Gunnarssyni sem sat á tré- verkinu þegar Nottingham Forest vann Norwich, 2-0. W.B.A. situr nú á toppi deildar- innar með 12 stig, Nottingham er í níunda sæti, Stoke í því tíunda og Watford í því næst síðasta með eitt stig en á leik til góða. ■ Enska 1. deildin: Heiðar skoraði eina markið MARKI FAGNAÐ Stuðningsmenn Chelsea fagna marki Adrian Mutu. Staðan: Arsenal 3 3 0 0 9 Man.Utd. 3 3 0 0 9 Portsmouth 4 2 2 0 8 Man.City 3 2 1 0 7 Chelsea 3 2 1 0 7 Birmingham 3 2 1 0 7 Fulham 3 2 0 1 6 Blackburn 4 1 2 1 5 Liverpool 4 1 2 1 5 Charlton 4 1 2 1 5 Leeds 4 1 2 1 5 Aston Villa 4 1 1 2 4 Everton 4 1 1 2 4 Tottenham 4 1 1 2 4 Southampton 3 0 3 0 3 Leicester 4 0 2 2 2 Bolton 4 0 2 2 2 Newcastle 3 0 1 2 1 Middlesbro 4 0 1 3 1 Wolves 4 0 1 3 1 ÚRSLIT GÆRDAGSINS: Everton-Liverpool 0:3 Tottenham-Fulham 0:3 Wolves-Portsmouth 0:0 Aston Villa-Leicester 3:1 Bolton-Charlton 0:0 Chelsea-Blackburn 2:2 Middlesbro-Leeds 2:3 Newcastle-Birmingham 0:1 HART BARIST Geremi, miðvallarleikmaður Chelsea, á hér í harðri baráttu við Steven Reid leikmann Blackburn í viðureign liðanna í gær. PÉTUR HAFLIÐI MARTEINSSON Fékk ekki tækifæri með Stoke í gær þegar liðið tapaði fyrir Preston. DAVID BECKHAM David Beckham fagnar hér marki sínu ásamt Ronaldo sem lagði það upp. STEVE MCMANAMAN Var um tíma fastamaður í enska landslið- inu en fékk fá tækifæri hjá Real Madrid og datt því úr hópnum. Enska úrvalsdeildin: McManam- an til City FÓTBOLTI Steve McManaman, fyrr- um landsliðsmaður Englands, er genginn til liðs við Manchester City frá Real Madrid. McManaman stóðst læknisskoðun hjá City í gær og skrifaði í kjölfarið undir tveggja ára samning. „Ég er ánægður með að komast aftur í ensku úrvalsdeildina,“ sagði McManaman sem lék áður með Liverpool. „Þetta var ekki erfið ákvörðun enda þekki ég marga leik- menn sem leika með City. Ég hef áður unnið með Kevin Keegan knattspyrnustjóra og hlakka til að vinna með honum á ný.“ ■ FÖGNUÐUR Paolo Maldini fyrirliði AC Milan lyftir hér Ofur-bikarnum svokallaða á loft en AC Mil- an lagði Porto að velli með einu marki gegn engu en leikið var í Monakó.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.