Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 37

Fréttablaðið - 31.08.2003, Síða 37
SUNNUDAGUR 31. ágúst 2003 FÓTBOLTI Alþjóða frjálsíþrótta- sambandið hefur hafið rann- sókn á því að leifar af örvandi lyfjum fundust í sýni sem tekið var úr Kelli White, tvöföldum heimsmeistara í spretthlaupum. Fram kemur í franska dag- blaðinu L’Equipe, sem fjallaði fyrst um málið, að lyfið sem fannst sé ekki á bannlista. „Þetta er örvandi lyf en við vitum ekki hversu mikil áhrif það hefur,“ sagði Istvan Gyulai, ritari Alþjóða sambandsins. „Málið er í rannsókn og við bú- umst við niðurstöðu innan skamms.“ White vann bæði 100 og 200 metra hlaup á heimsmeistara- mótinu í frjálsum íþróttum sem nú fer fram í París. Lyfið sem fannst í líkama hennar er talið vera modafinil, en það hefur örvandi áhrif á taugakerfið og vinnur á þreytu. Það er ekki á bannlista en verður sett á list- ann fyrir Ólympíuleikanna á næsta ári. ■ KELLI WHITE Vann bæði 100 og 200 metra spretthlaup. Kelli White: Grunuð um ólöglega lyfjanotkun HNEFALEIKAR Íslenskir hnefaleika- kappar munu mæta frændum okkar Dönum þann 4. september við upphaf menningarhátíðarinn- ar Ljósanótt í Reykjanesbæ. „Það er gaman að Reykjanes- bær sé tilbúinn að setja hátíðina með boxi. Þetta er stórt skref, því það eru ekki nema þrjú ár síðan boxið var bannað,“ segir Guðjón Vilhelm, einn aðstandenda BAG hnefaleikaklúbbsins í Reykjanes- bæ. Keppnin fer fram í íþrótta- húsinu í Reykjanesbæ og meðal keppenda eru Skúli „Tyson“ Vil- bergsson og Þórður „Doddy“ Sæv- arsson, sem var valinn boxari árs- ins 2002. „Við eru fyrst og fremst að bjóða upp á fjölskylduskemmtun með vandaðri umgjörð,“ segir Guð- jón Vilhelm og bætir við að í hnefa- leikakeppnum á Íslandi sé öryggi númer eitt, tvö og þrjú. Reyndir dómarar eiga að stoppa bardagann ef munurinn á keppendum verður of mikill og læknir er alltaf til stað- ar. „Það eru allir einhuga um að láta þetta fara rétt af stað og fylgja því eftir alla leið. Boxið á að verða eins og hver önnur íþrótt.“ Hér á landi er einnig notuð ný tegund boxhanska en Guðjón segir að notkun þeirra hafi lækkaði hlut- fall rothögga úr sex prósentum í eitt á Ólympíuleikum og í heims- meistarakeppni. Guðjón Vilhelm segist hafa ótt- ast að boxið yrði bóla sem myndi springa en nú hafi myndast fastur kjarni sem mætir á alla viðburði. „Ég er sannfærður um að þarna sé íþrótt sem við Íslendingar eigum raunverulega möguleika að vinna til gullverðlauna í. Írar hafa unnið fleiri medalíur í boxi á Ólympíu- leikum en í öllum öðrum íþróttum til samans. Þeir segja að við box- um eins Írar og hugsum eins í hringnum. Við kunnum ekki að hörfa.“ Guðjón Vilhelm segist einnig sannfærður um að Íslendingar geti haldið heimsmeistara- og Evrópu- meistaramót. „Ég held að í fram- tíðinni eigum við eftir að eignast þjóðarleikvang. Það er minn innsti draumur. Ég held að við eigum eft- ir að verða þessi litla, einangraða eyja norður í hafi sem tókst að byggja upp deild og íþróttin á eftir að blómstra.“ obh@frettabladid.is HNEFALEIKAR Íslendingar og Danir keppa í hnefaleikum í íþróttahúsinu í Keflavík á miðvikudag. FÓTBOLTI Ásthildur Helgadóttir, fyrirliði KR, kvaddi lið Íslands- meistaranna í gær með því að skora tvö mörk í 5-1 sigri á Stjörn- unni. Ásthildur hyggst leika með FF Malmö í efstu deild í Svíþjóð og verður því ekki með KR í síð- asta leik Íslandsmótsins gegn ÍBV. „Ég var mjög ánægð með leik- inn. Við höfum kannski oft spilað betur en ég er mjög ánægð með sigurinn,“ sagði Ásthildur að leik loknum. „Það er mjög gaman að kveðja liðið á þennan hátt. Þetta sumar hefur verið frábært og einhver skemmtilegasti titill sem ég hef unnið,“ sagði Ásthildur sem var að vinna Íslandsmeistaratitilinn í níunda sinn. „Þetta hefur verið mjög sérstakt tímabil og við höf- um lent í miklum meiðslum. Það er hálf ótrúlegt hvernig við höfum náð að berja liðið saman.“ Ásthildur hefur miklar áhyggj- ur af KR-liðinu fyrir síðasta leik- inn gegn ÍBV. „Ég verð að spila á sama tíma með sænska liðinu en KR á eftir að vinna.“ ■ ÁSTHILDUR HELGADÓTTIR Kvaddi með titli og tveimur mörkum. Er á leið til Svíþjóðar og hyggst leika með FF Malmö Ásthildur Helgadóttir: Kvaddi með tveimur mörkum og Íslandsmeistaratitli Boxað við Dani Íslenski hnefaleikakappar etja kappi við Dani við upphaf Ljósanætur í Reykjanesbæ.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.