Fréttablaðið - 31.08.2003, Page 38
38 31. ágúst 2003 SUNNUDAGUR
ÍSLANDSMEISTARAR
Ásthildur Helgadóttir fyrirliði KR lyftir hér
bikarnum en Vesturbæjarliðið varð Ís-
landsmeistara annað árið í röð í gær.
Knattspyrna
FÓTBOLTI Keflvíkingar gull-
tryggðu sæti sitt í úrvalsdeild-
inni að ári þegar þeir tóku lið
HK í kennslustund á Keflavík-
urvelli í gær. Lokatölur leiksins
urðu 7-0 og hefðu Suðurnesja-
menn auðveldlega geta skorað
fleiri mörk.
Keflvíkingum nægði jafntefli
í leiknum til að tryggja sæti sitt
meðal þeirra bestu að nýju en
leikurinn var einstefna frá upp-
hafi til enda.
Þórarinn Kristjánsson skor-
aði tvö mörk en Magnús Þor-
steinsson, Ólafur Ívar Jónsson,
Kristján Jóhansson, Hörður
Sveinsson og Hólmar Örn Rún-
arsson eitt mark hver. Hólmar
Örn var bestur í jöfnu liði Kefl-
víkinga.
Afturelding
Hörð barátta er á milli Vík-
ings og Þórs um hvort liðið fylgi
Keflvíkingum eftir. Bæði lið eru
með 31 stig þegar tvær umferð-
ir eru eftir.
FÓTBOLTI KR-stúlkur urðu Ís-
landsmeistarar í knattspyrnu
kvenna í gær þegar þær lögðu
Stjörnuna að velli í Frostaskjól-
inu með fimm mörkum gegn
einu í næst síðustu umferð Ís-
landsmótsins. KR hafði fjögurra
stiga forystu á ÍBV fyrir leikinn
í gær og gátu tryggt sér titilinn
með sigri. Ef þær hefðu tapað
leiknum hefðu þær mætt ÍBV í
hreinum úrslitaleik í síðustu um-
ferðinni en Eyjastúlkur völtuðu
yfir FH á Kaplakrika í gær, 8-0.
„Það var ákveðið stress og
andleysi í gangi í fyrri hálfleik
en við náðum okkur og mér
fannst við spila vel í seinni hálf-
leik,“ sagði Vanda Sigurgeirs-
dóttir, þjálfari KR þegar titilinn
var í höfn. „Við ætluðum okkur
að klára mótið í dag og ég vissi
að stelpurnar voru með rétta
hugarfarið til þess. Við vissum
líka að Ásthildur yrði ekki með
okkur í síðasta leiknum í Eyjum
og við vildum klára mótið með
henni.“
Vanda tilkynnti að leik lokn-
um að hún ætlaði að hætta með
liðið en þetta er annað árið í röð
sem KR verður Íslandsmeistari.
KR-stúlkur virkuðu heldur
taugaveiklaðar í byrjun leiks en
komust yfir á 19. mínútu með
marki Hólmfríðar Magnúsdóttir.
Auður Skúladóttir jafnaði fyrir
Garðbæinga sex mínútum síðar.
Vesturbæjarliðið lét það ekki slá
sig út af laginu og kom Ásthildur
Helgadóttir KR aftur yfir stuttu
síðar. Ásthildur bætti svo öðru
marki við í seinni hálfleik en það
var Þórunn Helga Jónsdóttir
sem gulltryggði síðan sigurinn
og Íslandsmeistaratitilinn þegar
hún skoraði í tvígang. Síðara
markið var stórglæsilegt. Þór-
unn Helga fékk boltann eftir
hornspyrnu og þrumaði honum í
markhornið fjær. Glæsilega að
verki staðið.
Eyjastúlkur eru öruggar í
öðru sætinu eftir sigurinn á FH í
gær, hafa fjögurra stiga forystu
á Breiðablik. Kópavogsstúlkur
unnu Val, 2-1, og Þór/KA/KS
vann Þrótt/Hauka 2-1sem þar
með féll niður um deild. ■
hvað?hvar?hvenær?
28 29 30 31 1 2 3
ÁGÚST
Sunnudagur
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Níu manns fórust.
22. ára.
Bjó til skæðan tölvuvírus..
11.30 Enski boltinn frá ýmsum
hliðum með Guðna Bergs á Sýn.
12.45 Bein útsending á Sýn frá leik
Southampton og Manchester United.
14.45 Bein útsending á Sýn frá leik
Manchester City og Arsenal.
18.00 Valur tekur á móti KA í
Landsbankadeild karla.
19.00 Sýnt verður frá Toyota-móta-
röðin í golfi á Sýn.
20.00 FH-ingar sækja Framara
heim í Landsbankadeild karla.
14.30 Bein útsending frá HM í
frjálsum íþróttum á RÚV. Sýnt verður frá
lokadegi mótsins svo sem úrslit í mara-
þonhlaupi og hástökki kvenna, spjót-
kasti og 800 metra hlaupi karla, boð-
hlaupum, 1500 metra hlaupi kvenna og
5 km hlaupi karla.
21.30 Enski boltinn frá ýmsum
hliðum með Guðna Bergs á Sýn.
KONUR
FH - ÍBV 0 - 8
Þór/KA/KS - Þróttur/Haukar 3 - 0
Breiðablik - Valur 2 - 1
KR - Stjarnan 5 - 1
L U J T Mörk Stig
KR 13 11 2 058 : 12 35
ÍBV 13 10 1 259 : 11 31
Breiðablik 13 9 0 441 : 28 27
Valur 13 8 2 342 : 20 26
Stjarnan 13 3 2 819 : 31 11
Þór/KA/KS 13 3 0 1010 : 37 9
FH 13 3 0 1011 : 50 9
Þróttur/Haukar 13 1 1 119 : 60 4
Síðasta umferð verður leikin 3. septem-
ber og hefjast leikirnir klukkan 18.
ÍBV - KR
Þróttur/Haukar - FH
Valur - Þór/KA/KS
KR-stúlkur
meistarar
KR varð Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu í gær, annað árið í röð.
Vanda Sigurgeirsdóttir hætt með liðið. Eyjastúlkur öruggar í öðru sæt-
inu eftir stórsigur á FH.
SIGUR
KR-stúlkur sýndu snilldartilþrif í Frostaskjólinu í gær þegar þær lögðu Stjörnuna
að velli 5-1.
FÓTBOLTI Glenn Roeder segist
ekki vera sár yfir því að hafa
verið sagt upp störfum sem
knattspyrnustjóri West Ham og
er staðráðinn í að sýna hvað í
honum býr. Hann var rekinn í
kjölfar slakrar byrjunar hjá
Hömrunum í 1. deild en liðið féll
úr úrvalsdeildinni í fyrra.
Roeder, sem gekkst undir
heilaskurðsaðgerð í apríl, ætlar
ekki að gefast upp og vonast til
að komast aftur í knattspyrnu-
stjórasæti innan tíðar.
„Það var ekkert sem ég gat
gert- málið var algjörlega í
höndum stjórnar West Ham,“
sagði Roeder í samtali við BBC.
Knattspyrnustjórinn fyrrver-
andi átti ekki náðuga daga hjá
West Ham.
Stjórnin þurfti að selja helstu
stjórstjörnur liðsins eftir að það
féll um deild en krafðist samt
árangur. ■
GLENN ROEDER
Ætlar ekki að gefast upp og vonast til að komast sem fyrst aftur í knattspyrnustjóra sæti.
Glenn Roeder:
Neitar að gefast upp
KEFLAVÍK
Er búið að tryggja sæti sitt í úrvalsdeildinni
að ári.
1. deild karla:
Keflavík komið upp KARLAR
Staðan eftir 16. umferðir:
L U J T Mörk Stig
Keflavík 16 12 3 1 49:15 39
Víkingur R. 16 8 7 1 25 : 13 31
Þór 16 9 4 3 40 : 29 31
Stjarnan 16 5 8 3 28 : 22 23
Njarðvík 16 4 6 6 31 : 33 18
HK 16 5 3 8 23 : 32 18
Breiðablik 16 5 3 8 19 : 24 18
Haukar 16 4 4 8 19 : 31 16
Afturelding 15 4 2 9 16 : 32 14
Leiftur/Dalvík 15 2 2 11 19 : 38 8
Úrslit:
Þór-Haukar 3 - 1
Stjarnan-Víkingur 2 - 2
Breiðablik-Njarðvík 1 - 1
Keflavík-HK 7 - 0