Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.09.2003, Qupperneq 50

Fréttablaðið - 15.09.2003, Qupperneq 50
22 15. september 2003 MÁNUDAGUR ■ TÓNLIST ■ SAMSKIPTI ÞJÓÐA AUÐUNN BLÖNDAL Það er að mínu mati kjúklinga-bringa á Subway og Eld- smiðjupizza,“ segir Auddi, sem ku vera ansi mikill skyndibita- maður. „Ég bjó í Gnoðarvoginum í Skeifunni fyrir nokkrum mánuð- um og þá var fólkið í skyndibita- landinu farið að kannast of vel við mig. Það skemmtilega við þetta er að ég borða skyndibitann en hann sest allur á Sveppa.“ Besti bitinní bænum Breska sveitin Starsailor gefurí dag út aðra breiðskífu sína, „Silence Is Easy“. Frumraun sveitarinnar, „Love Is Here“, sem kom út í hittifyrra, fór alla leið og líf liðsmanna tók stakka- skiptum nánast á einni viku. Pilt- arnir hafa því á rétt rúmum tveimur árum farið frá því að þurfa að svitna í tveimur störfum til þess að eiga fyrir húsaleigunni yfir í það að ferðast um allan heiminn og eiga nóg af peningum til þess að eignast það sem hug- ann girnist. Það er gömul og ný saga í rokk- inu að önnur plata sveita valdi vonbrigðum. Það er kannski ekk- ert svo skrýtið í ljósi þess að sveitir hafa kannski sex ár í æf- ingahúsnæðinu til þess að semja efni á fyrstu plötuna en svo ekki nema sex mánuði í þá næstu, og þá yfirleitt eftir árslanga tón- leikaferð. Það er því ánægjulegt að greina frá því að ný plata Star- sailor er án efa betri en sú fyrri. Björt, bjartsýn og upplífgandi á köflum og biturðin og tilgerðin sem lak af fyrri plötunni er víðs fjarri. Tvö lög, smáskífan „Silence Is Easy“ og „White Dove“, eru unnin af upptökustjóranum goðsagna- kennda Phil Spector, sem m.a. hefur unnið með The Crystals, The Ronettes, Rolling Stones, Ramones og Tinu Turner. Frekar stórt stökk fyrir menn sem gátu aðeins látið sig dreyma um slíkt fyrir örstuttum tíma síðan. Starsailor er því að sigla inn á ný mið, en ekki í strand. Hárkollur Phils Spectors „Við erum bara orðnir bjart- sýnni á framtíðina og hamingju- samari sem menn,“ segir Ben að- spurður um þá nýfundnu ham- ingju sem einkennir nýju plöt- una. „Platan er líka stórtækari, meira um strengi og svoleiðis. Við erum orðnir mjög sjálfs- öruggir. Ég held að nýja platan sé líka viðameiri og meiri stílbreyt- ing á milli laga.“ Já, kannski, en þetta hljómar þó ennþá mjög týpískt fyrir breska rokksveit. “Já, en við erum samt orðnir öruggari með okkar stað í tónlist. Það að vinna með Phil Spector var mikil upplifun, heiður og forrétt- indi. Hann gerði tvö lög á plötunni og það var stórkostlegt. Honum tókst t.d. að láta strengjakvartett hljóma eins og sinfóníusveit. Það var ótrúlegt að fylgjast með hon- um vinna.“ Er hann eins sérvitur og fólk heldur að hann sé? “Já, hann átti sínar senur. Til dæmis á hverjum degi mætti hann með nýja hárkollu og það var greinilegt að hann eyddi miklum tíma í það að ákveða hvaða hárkollu hann ætti að nota hvern dag. Svo gekk hann með litla stafræna myndavél á sér og smellti myndum af sér í tíma og ótíma. Ef honum líkaði ekki það sem hann sá þegar hann skoðaði þær hvarf hann inn á klósett í korter og kom út með nýja hár- kollu. Síðan sat hann bara í stóln- um sínum í inniskóm sem voru með nokkurra sentímetra þykk- um sólum, því hann er svo lítill. Hann var samt mjög friðsæll og missti aldrei stjórn á skapi sínu. Svo sagði hann stanslaust sögur um Bítlana. Maður gat gleymt sér í margar klukkustundir bara við það að hlusta. Það var eins og sögustund með afa.“ Hann langaði til þess að gera alla plötuna með ykkur, er það ekki? “Okkur fannst sem við kæm- umst ekkert lengra með honum. Við vorum búnir að taka upp tvö lög svo við ákváðum að halda áfram án hans. Það var ómögulegt að koma okkar hugmyndum að hjá honum. Við vildum að platan væri okkar, en ekki Phils Spectors. Þetta var náttúrlega erfitt vegna þess að þetta er hinn goðsagna- kenndi Phil Spector. Sérstaklega í ljósi þess sem maður hefur áork- að í gegnum tíðina.“ Hvernig tók hann tíðindunum? “Fyrst frekar illa. Að lokum held ég að hann hafi lært að virða okkar skoðanir. Við slitum þessu bara og héldum áfram að vinna. Við kláruðum bara að taka upp lögin og þetta fór allt vel.“ Stuttu eftir að samstarfi ykkar lauk var hann handtekinn fyrir morðið á B-myndaleikkonunni Lönu Clarkson. Er hann sekur? “Nei, alveg örugglega ekki. Ég held að hann gæti ekki myrt neinn. Þegar við fréttum af þessu vorum við að hljóðblanda plötuna og vorum með sjónvarpið á. Við fengum alveg áfall. Við gátum ekki trúað þessu. Ég held að hann sé saklaus. Við sendum umboðs- manni hans tölvupóst þar sem við lýstum yfir stuðningi okkar,“ seg- ir Ben. Réttarhöldin yfir Phil Spector hefjast í næsta mánuði. Hann hef- ur haldið því fram að leikkonan hafi sjálf orðið sér að bana með voðaskoti í höfuðið. Byssan var hans. Lögreglan og saksóknarar trúa ekki sögu hans og segja vís- bendingar benda til annars. biggi@frettabladid.is Hlí›asmára 15 Sími 535 2100 Du bl in Du bl in Ekki missa af október og nóvember Ver›dæmi í nóvember: 32.020 kr. 40.420 kr. Flugsæti Flug og gisting á mann. Innifalið er flug og flugvallarskattar. á mann. Innifalið er flug, gisting í 3 nætur á Ormond Quay og flugvallarskattar. Stjörnusigling Phils Spectors STARSAILOR Gefur nú út aðra plötu sína og virðist ætla að halda höfði. PHIL SPECTOR Ben trommari segir upptökustjórann goð- sagnakennda vera afar sérvitran en trúir ekki að hann hafi það í sér að drepa. Undanfarnar tvær vikur hef-ur hópur ungra japanskra námsmanna dvalið hér á landi. Japönsku ungmennin hafa gist í heimahúsi hjá sjö íslenskum há- skólanemum til að fá íslenskan raunveruleika beint í æð. Ís- lensk-japanska félagið kom á fót nefnd sem hefur það að markmiði að efla samskipti há- skólanema Japans og Íslands og sá nefndin um að skipuleggja heimsóknina. Hópurinn hefur tekið þátt í fjölbreyttri dagskrá en einnig var haldið málþing í Há- skóla Íslands þar sem námsmenn beggja þjóða skiptust á skoðunum um orkumál og sjávarútveg. Til- gangurinn með heimsókninni er að þjóðirnar efli samstarf og dragi lærdóm hver af annarri en stefnt er að því að íslensku krakkarnir heimsæki Japan í mars á næsta ári. Bundnar eru vonir við að framhald verði á verkefninu og stefnan er að heimsókn af þessu tagi verði farin árlega. Mikill gagnkvæm- ur áhugi er milli þessara tveggja landa og sem dæmi um það má nefna að japönskudeildin við Háskóla Íslands er næststærsta tungumáladeildin. Japönsku ung- mennin eru hæstánægð með heim- sóknina en þau fara aftur til síns heima í dag. ■ Japanskir námsmenn á Íslandi JAPANSKIR HÁSKÓLANEMAR Hafa sótt Ísland heim og tekið þátt í fjöl- breyttri dagskrá undanfarnar tvær vikur. Mikill gagnkvæmur menningaráhugi ríkir á milli Japans og Íslands.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.