Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.09.2003, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 15.09.2003, Qupperneq 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Hlaðborð viskunnar Þá hafa skólarnir sópað æsk-unni af götum borgarinnar og ungdómurinn situr með öryggis- nælu í miðsnesinu og hring í eyra og fræðist um að á undan Hómer Simpson kom annar Hómer, og enn ein kynslóð Íslendinga gerir tilraun til að ná valdi á danskri tungu sem aldrei hefur passað upp í íslenskan góm. Það haustar. TRÚLEGA er það ekki síst ís- lenskri veðráttu að þakka hversu margir hafa gengið menntaveg- inn. Þegar kólna tekur í veðri verður það beinlínis freistandi til- hugsun að setjast inn í hlýja skólastofu til að kemba flókin reikningsdæmi eða þæfa þýskar sagnir ellegar spinna þráð mann- kynssögunnar. ÞAÐ er ekki að undra að ólæsi skuli vera mest í löndum þar sem sólin glaðast skín. Þegar skyggir og kólnar langar flesta að kveikja ljós og yl inni í höfðinu á sér og læra eitthvað nýtt, eða rifja upp eitthvað gamalt sem þeir eru bún- ir að gleyma. Fyrir fólk sem kom- ið er af skólaskyldualdri er boðið upp á aragrúa alls kyns nám- skeiða um hin sundurleitustu efni; í bútasaum og búlgörsku, kín- versku og keramík. Ótal mennta- stofnanir bjóða upp á eitt allsherj- ar hlaðborð viskunnar sem svign- ar undan ljúffengum fróðleik sem er matreiddur af frægum kennur- um, eins og til dæmis Jóni Böðv- arssyni sem veit meira um Íslend- ingasögurnar en þótt hann hefði sjálfur samið þær allar með tölu. ÞETTA mikla framboð á menntun hlýtur að þýða að eftirspurn eftir þekkingu sé lífleg. Það hlýtur að koma þeim nýútunguðu markaðs- fræðingum og auglýsingamönnum á óvart sem sífellt eru að reyna að hitta í mark hjá þjóð sem þeir halda að hafi smekk og þroska 12 ára barns og aðhafist ekkert ann- að en að vinna, versla, glápa á sjónvarpið og röfla í GSM-síma. Eða dagskrárgerðarmönnum sem halda að útvarp sé til þess að dreifa ókeypis pizzubitum til þjóðarinnar. Þessi velmenntaða og fróðleiksfúsa þjóð á betra skilið en alla þessa voðalegu deleranta sem halda að þjóðin sé á sama greindar-, þroska- og menntunar- stigi og þeir sjálfir. ■ Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Við notum eingöngu Philips hágæða perur sem gefa besta árangur Grensásveg i 7 108 Reykjavík Sími : 533 3350 - www.smar tsol . is i i ili

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.