Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 12
12 30. september 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Reykjavík
ÆVINTÝRAMAÐUR
Breski ævintýramaðurinn David Hemple-
man-Adams komst á spjöld sögunnar þeg-
ar hann flaug einn yfir Atlantshafið í opn-
um loftbelg. Ferðin tók 84 klukkustundir
og varð Hempleman-Adams að halda sér
vakandi allan tímann.
UMFERÐ „Skiltin eru viðbótarátak
til að minna á með nýjum hætti að
skólarnir séu byrjaðir og að öku-
menn þurfi að fara varlega í ná-
grenni skólanna okkar,“ segir Jón-
mundur Guðmarsson, bæjarstjóri
á Seltjarnarnesi, um ný varúðar-
skilti þar sem börn prýða skiltin.
Jónmundur segist telja að um
80 prósentum barna sé ekið í skól-
ann. „Við viljum að sem flest börn
gangi í skólann og reynum að gera
leiðirnar öruggar fyrir börnin.“
Hann segir að göngustígum sé
haldið opnum á veturna og bæk-
lingi dreift til skólabarna á hverju
hausti, sem sýnir allar gönguleið-
ir í skólann. Einnig eru gang-
brautarverðir á mesta annatíman-
um á morgnana og sérstök að-
koma fyrir þá sem keyra börnin í
skólann til að tryggja að færri bíl-
ar séu alveg við skólann. ■
Íslenskur markaður
of lítill fyrir bankana
Górilla á flótta:
Réðst á konu
og barn
BOSTON, AP Górilla slapp úr Frank-
lin Park-dýragarðinum í Boston
og réðst á tveggja ára stúlkubarn
og unga konu. Dýrið var yfirbug-
að eftir tveggja tíma eltingarleik.
Górillan Jói litli slapp út úr
búri sínu rétt fyrir lokun dýra-
garðsins. Skömmu síðar hafði
vegfarandi samband við lögregl-
una og sagðist hafa séð til górill-
unnar þar sem hún sat í makind-
um sínum í biðskýli skammt frá
garðinum.
Þessari sömu górillu hafði áður
tekist að sleppa út úr búrinu sínu.
Í kjölfarið var sett upp rafmagns-
girðing til að reyna að koma í veg
fyrir að atvikið endurtæki sig. ■
Stríðsglæparéttarhöld í
Króatíu:
Alnafni hins
seka dæmdur
ZAGREB, AP Króatar hafa viður-
kennt að hafa dæmt rangan mann
sekan um stríðsglæpi. Hinn
dæmdi heitir Mile Novakovic og
var handtekinn á fimmtudaginn
var.
Réttarhöld voru haldin árið
1995 að honum fjarverandi og
hlaut hann þá 20 ára fangelsisdóm
fyrir að varpa sprengjum á bæinn
Sibenik í Króatíu árið 1991.
Nú er komið í ljós að hinn
dæmdi er alnafni þess manns sem
grunaður er um stríðsglæpina.
Báðir mennirnir börðust með
serbneskum sveitum í borgara-
styrjöldinni í Króatíu. Hinn grun-
aði var þó hærra settur en hinn
dæmdi. ■
BYGGÐ NORÐAN KORPÚLFSSTAÐA
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í
skipulags- og byggingarnefnd
Reykjavíkur leggja til að skoðað-
ir verði kostir þess að skipu-
leggja íbúðarbyggð norðan Korp-
úlfsstaða. Þó sé ekki verið að vísa
til þess lands sem Golfklúbbur
Reykjavíkur hafi áhuga á fyrir
sína starfsemi.
ÚTIVEITINGAR SAMÞYKKTAR Veit-
ingastaðurinn á Klapparstíg 30
má nota garðinn aftan við húsið
til útiveitinga samkvæmt sam-
þykkt skipulagsyfirvalda í
Reykjavík. Einnig hefur leyfður
gestafjöldi verið aukinn úr 75 í
99 manns.
UMFERÐARÁTAK
Sex ára nemendur á Seltjarnarnesi
prýða umferðarskiltin þar sem öku-
menn eru minntir á að fara varlega.
Seltjarnarnes:
Minna á byrjend-
ur í umferðinni
BYRJENDUR Í UMFERÐINNI
Sífellt færri börn ganga í skólann.
VIÐSKIPTI Í ræðu sinni við opnun
Landsbankans í Lúxemborg á
föstudaginn sagði Björgólfur
Guðmundsson, stjórnarformaður
Landsbankans, að ný sókn væri
hafin hjá bankanum. „Við sækjum
fram á ný svið og ný lönd. Við ætl-
um okkur að sigra á nýjum mörk-
uðum,“ sagði Björgólfur.
Hann sagði að núverandi
stjórnendum Landsbankans væri
ljóst að vöxt atvinnulífs og aukna
velferð væri ekki að finna í garði
nágrannanna heima á Íslandi.
„Tækifærin eru á erlendri
grundu,“ sagði hann.
Landsbankinn stefnir á að
fimmtungur af heildarumsvifum
bankans verði í útlöndum. Bank-
inn stefnir á að kaupa tvö fjár-
málafyrirtæki í Bretlandi og sam-
eina Heritable-bankanum sem er
þegar í eigu bankans. Umsvif
hans verða þó eingöngu á breska
markaðinum.
Þá er næsta verkefni Lands-
bankans að sækja til austurs.
Bankinn ætlar að ráða mann í Pét-
ursborg í Rússlandi með sérþekk-
ingu á þarlendum aðstæðum. Þá
er í athugun að bankinn ráði fleira
fólk á öðrum vaxtarsvæðum Evr-
ópu. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er Landsbankinn
að hugsa um Eystrasaltslöndin.
Kaupþing Búnaðarbanki
í 10 löndum
Kaupþing Búnaðarbanki hefur
skilgreint Norðurlöndin sem at-
hafnasvæði sitt og vill verða leið-
andi norrænn fjárfestingarbanki.
Með kaupum á eignastýringarfyr-
irtæki í Noregi fyrir skömmu er
bankinn nú með starfsemi á öllum
Norðurlöndunum. Kaupþing Bún-
aðarbanki er skráður í sænsku
kauphöllinni og með töluverða
starfsemi þar. Í Svíþjóð eru 180
starfsmenn, í Finnlandi og Dan-
mörku eru umsvifin mun minni.
Eftir kaupin á finnska fjárfesting-
arfélaginu Norvestia Oyj er Kaup-
þing Búnaðarbanki með um 50
starfsmenn í Finnlandi. Þau kaup
eru annað skrefið í sókn Kaup-
þings inn á finnska fjármálamark-
aðinn í kjölfar kaupanna á verð-
bréfafyrirtækinu Sofi árið 2001.
Í Danmörku á bankinn banka í
samvinnu við Sparisjóðinn í Fær-
eyjum. Sigurður Einarsson,
stjórnarformaður Kaupþings
Búnaðarbanka, segir að miklir
möguleikar séu á Norðurlanda-
markaði.
Kaupþing var fyrsta íslenska
fjármálafyrirtækið sem lagði í út-
rás með því að stofna félag í Lúx-
emborg árið 1996. Þó má segja að
útrás Kaupþings hafi ekki hafist
að ráði fyrr en árið 1998. Nú er
Kaupþing Búnaðarbanki með
Norðurlöndin athafnasvæði Kaupþings Búnaðarbanka. Landsbankinn í austurveg. Fimmtungur
af starfsemi Landsbankans verður í útlöndum. Sjötti hluti útlána Íslandsbanka er til útlendinga.
Fréttaskýring
KRISTJÁN GUY BURGESS
■ Fjallar um starfsemi
íslenskra banka í útlöndum.
STJÓRNENDUR KAUPÞINGS BÚNAÐARBANKA
Markmiðið er að verða leiðandi norrænn fjárfestingarbanki.
ÍSLANDSBANKI
Eina leiðin til að vaxa að flytja
starfsemina að hluta til útlanda.
MÆLINGUM LOKIÐ Nýlega lauk
sjómælingatímabili ársins hjá
sjómælingasviði Landhelgisgæsl-
unnar og gekk það í heildina vel
þrátt fyrir að rigning og súld hafi
hrellt Austfirðinga en sjómæl-
ingabáturinn Baldur var aðallega
við mælingar undan ströndum
Austfjarða.
■ Sjómælingar