Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 30.09.2003, Blaðsíða 25
25ÞRIÐJUDAGUR 30. september 2003 RIVALDO Rivaldo Vitor Borba Ferreira verður áfram hjá Milan. Ítalska knattspyrnan: Rivaldo áfram hjá Milan FÓTBOLTI „Rivaldo verður áfram hjá Milan,“ sagði Adriano Galliani, varaforseti félagsins, í tilkynningu á heimasíðu félagsins í gær. Rivaldo verður í leikmannahópi Milan sem fer til Spánar í dag og keppir við Celta Vigo í Meistara- deildinni á morgun. Í síðustu viku tilkynnti félagið að Milan og Rivaldo hefðu náð sam- komulagi um að rifta samningi leik- mannsins. Rivaldo sagði í kjölfar þess að hann væri að íhuga tilboð frá enskum félögum og var Chelsea einkum nefnt til sögunnar. ■ DAVID BECKHAM Beckham leikur ekki með Real Madrid gegn Porto á morgun. Meistaradeild Evrópu: Beckham ekki með gegn Porto FÓTBOLTI David Beckham verður ekki í leikmannahópi Real Madrid sem mætir Porto annað kvöld í Meistaradeild Evrópu. Beckham meiddist á fæti í 2-0 tapinu gegn Valencia á laugardag. Hann náði þó að ljúka leiknum en hefur ekki getað æft með félaginu. Læknar segja að Beckham sé mjög bólginn á hægri fæti og þurfi sjúkraþjálfun og hvíld í ótil- tekinn tíma. Real gæti einnig þurft að leika án Raúls en Ivan Helguera verður með að nýju en hann missti af leiknum gegn Valencia vegna sýk- ingar í hálsi. ■ HM í fótbolta 2010: Nígería hættir við FÓTBOLTI Nígeríumenn hafa dregið til baka umsókn sína um að fá að halda heimsmeistarakeppnina í fóbolta árið 2010 og munu hér eft- ir styðja umsókn Suður-Afríku. Alþjóða knattspyrnusamband- ið, FIFA, ákvað fyrir nokkru að keppnin árið 2010 færi fram í Afríku. Egyptar, Túnisar, Suður- Afríkumenn, Líbíumenn og Marokkómenn keppa um útnefn- ingu og munu í dag kynna áform sín fyrir FIFA á fundi í Zürich. Nefnd á vegum FIFA mun kanna aðstæður í löndunum í október og verða gestgjafar valdir í fram- haldi af því. ■ FÓTBOLTI Morten Olsen, þjálfari danska landsliðsins í fótbolta, til- kynnti í gær hópinn sem mætir Bosníu og Hersegóvínu í Sarajevo í næsta mánuði. Hópurinn er óbreytt- ur frá leiknum gegn Rúmenum í Kaupmannahöfn í byrjun þessa mánaðar. Markverðir eru Thomas Søren- sen (Aston Villa) og Peter Skov-Jen- sen (FC Midtjylland). Varnarmenn eru Thomas Helveg (Inter), René Henriksen (Panaþinaikos), Martin Laursen (AC Milan), Per Nielsen (Brøndby) og Niclas Jensen (Bor- ussia Dortmund). Miðju- og sóknarmenn: Thomas Gravesen (Everton), Claus Jensen (Charlton), Thomas Røll (FC Køben- havn), Christian Poulsen (Schalke 04), Morten Wieghorst (Brøndby), Jesper Grønkjær (Chelsea), Martin Jørgensen (Udinese), Dennis Rommedahl (PSV Eindhoven), Ebbe Sand (Schalke 04), Jon Dahl Tomas- son (AC Milan) og Peter Madsen (Bochum). Englendingurinn Graham Barb- er dæmir leik Dana og Bosníu- manna en hann dæmdi leik Íslend- inga og Þjóðverja í byrjun þessa mánuðar. ■ JON DAHL TOMASSON Tomasson hefur skorað 26 mörk í 53 landsleikjum og er markahæstur þeirra sem skipa danska landsliðshópinn nú. Danski landsliðshópurinn: Óbreytt hjá Olsen EM 2012: Pólland og Úkraína vilja keppnina FÓTBOLTI Pólska og úkraínska knatt- spyrnusambandið hafa samþykkt að sækja um að fá að halda Evrópu- meistarakeppnina árið 2012. For- menn knattspyrnusambanda land- anna náðu samkomulagi um þetta um helgina. Úkraínumenn og Rússar sóttu um að fá að halda keppnina árið 2008 en Austurríki og Sviss urðu fyrir valinu. Úkraína er úr leik í Evrópukeppninni sem lýkur í Portúgal á næsta ári en Pólverjar eiga veika von um sæti í umspili. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.