Fréttablaðið - 16.10.2003, Side 4

Fréttablaðið - 16.10.2003, Side 4
4 16. október 2003 FIMMTUDAGUR Óttastu flensuna sem nýkomin er til landsins? Spurning dagsins í dag: Hvar á Óperan að vera með starfsemi sína? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 50% 29% Nei 21%Fæ aldrei flensu Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Dómsmál FJÖLMIÐLAR „Hann óskaði eftir fundi með forsætisráðherra til að kynna fjárfestingaáform sín á Ís- landi,“ segir Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður Davíðs Oddsson- ar forsætisráðherra, um fund sem breski fjármálamaðurinn Marcus Evans átti með Davíð í upphafi síðustu viku. Evans er að skoða möguleika þess að kaupa Norðurljós af Jóni Ólafssyni. Í því skyni hefur hann átt nokkra fundi með Jóni og einnig með lánardrottnum Norðurljósa. Heimildir herma að Evans vilji leggja milljarð króna til kaupa á fjölmiðlarisanum gegn því að fá felldar niður skuldir, allt að tveimur milljörðum króna. Illugi Gunnarson vill ekkert tjá sig um það sem fram kom á fundi Evans með forsætisráðherra en segir að Ólafur Davíðsson ráðu- neytisstjóri hafi setið fundinn ásamt forsætisráðherra. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins átti Evans bókaðan fund með Jóni Ólafssyni í dag eða á morgun. ■ Ætla að skoða Brim í næstu viku Stjórn Eimskipafélagsins fór yfir stöðuna þess á fyrsta starfsfundi sínum. Sama stjórn verður yfir móðurfélagi og öllum dótturfélögunum. Málefni skipa- og fjárfestingarfélagsins verða til skoðunar á morgun. VIÐSKIPTI Ný stjórn Eimskipafé- lags Íslands fór yfir stöðu félags- ins á fyrsta vinnufundi sínum. Fyrir fundinum lá að samþykkja formlega ályktanir tengdar orðn- um viðskiptum með eignir félags- ins. Þá lá fyrir fundinum að stjórnarmenn dótturfélaga Eim- skipafélagsins segðu af sér. Stjórnin hélt samhliða hluthafa- fund í dótturfélögunum, Brimi, Burðarási og Eimskipi flutning- um. Stjórnin breytti samþykktum dótturfélaga og fjölgaði stjórnar- mönnum úr fimm í sjö. Sama stjórn verður yfir móðurfélaginu og öllum dótturfélögunum. Magn- ús Gunnarsson verður formaður allra dótturfélaganna og Sindri Sindrason varaformaður. Magnús Gunnarsson stjórnar- formaður segir stjórnina gera sér grein fyrir því að reksturinn sé yfirgripsmikill og menn verði að taka sér þann tíma sem þurfi til þess að fá tilfinningu fyrir rekstr- inum. „Út frá því munu menn velta vöngum yfir því hvort til- efni sé til einhverra breytinga.“ Magnús segir að stjórnin muni funda ört á næstunni. Umrótið í kringum félagið kalli á að menn setji sig fljótt inn í rekstur fé- lagsins. Hann segir forstjóra Eimskipafélagsins hafa farið yfir starfsemi móðurfélagsins og dótturfélaga. „Eftir þetta var rætt almennt um stöðu félagsins og allt það umtal og þær hug- myndir sem komið hafa upp í kringum það.“ Næsti fundur stjórnarinnar verður á föstudag og mun hún þá fjalla um rekstur Burðaráss og skipafélagsins. Magnús segir að gert sé ráð fyrir að fundað verði með stjórnendum Brims í næstu viku. Magnús segir að aðrar breyt- ingar á forystu félagsins hafi ekki verið ræddar. Ekki hafi heldur verið rætt um breytingar á stjórn- arsetu í félögum sem Burðarás á stóra hluti í. „Þetta eru náttúrlega ágætir menn sem eru í forystu fé- lagsins og það hefur ekkert verið rætt um neinar breytingar í þeim efnum.“ Sama stjórnin er yfir öllum fé- lögunum. Spurningar hljóta því að vakna um stöðu móðurfélags- ins. „Það er eitt af því sem mun verða skoðað. Við tökum ekki neinar ákvarðanir um slíkt núna. Meginskilaboðin til starfsmanna eru að halda áfram á fullri ferð eins og menn hafa verið að vinna. Menn eiga ekkert að láta þessi umbrot hægja á því sem þeir eru að gera.“ Hann segir ljóst að unn- ið hafi verið að hagræðingu og þróun fyrirtækisins innanhúss og menn séu vakandi yfir því. haflidi@frettabladid.is Jöfnun flutnings- kostnaðar: 700 milljónir árlega FLUTNINGAR Stjórnvöld hafa inn- heimt og úthlutað þremur og hálf- um milljarði króna til jöfnunar flutningskostnaðar sements og olíuvara síðustu fimm árin. Stærstur hluti upphæðarinnar, rúmar 2.600 milljónir króna, er til kominn vegna flutningsjöfnunar olíuvara en tæpar 900 milljónir króna vegna jöfnunar á flutnings- kostnaði sements. Millifærslan nemur því um 700 milljónum króna árlega að meðaltali. Þetta kemur fram í svari Val- gerðar Sverrisdóttur iðnaðarráð- herra við spurningum Jóns Bjarnasonar, þingmanns Vinstri- hreyfingarinnar – græns fram- boðs. ■ SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Hlakkar til umræðna um rjúpnaveiðitillögu. Siv Friðleifsdóttir: Ber pólitíska ábyrgð STJÓRNMÁL Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra segir að hún beri pólitíska ábyrgð á stöðu rjúpna- stofnsins og að ljóst sé að grípa þurfi til aðgerða til þess að tryggja viðgang hans. Átján þingmenn, þar af sautján stjórnarliðar, hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem þess er krafist að umhverf- isráðherra aflétti banni við rjúpnaveiði. Siv segir það hafa komið sér á óvart að meðal úr- ræða sem nefnd séu í tillögu þingmanna sé sölubann á rjúpur. Þeirri leið var hafnað af Alþingi í vor og meðal annars mótmælt harðlega af Gunnari I. Birgis- syni, sem er fyrsti flutningsmað- ur tillögunnar nú. Siv telur að tvö þeirra úrræða sem flutningsmenn tillögunnar leggja til séu þess eðlis að um- hverfisráðherra hafi ekki laga- lega heimild til að grípa til þeirra. Siv segist munu bíða eftir til- lögum úr umhverfisnefnd eftir að þingsályktunartillagan fær meðferð þar. Siv segist hlakka til umræðna um þingsályktunartil- löguna. ■ HEIMSÓKN „Ég hef lært mikið á þessum fáu dögum á Íslandi,“ segir Adrienne Clarkson, landstjóri Kanada, en fimm daga ferð Adrienne og eiginmanns hennar, John Ralston Saul, og í boði forseta Íslands lauk í gær. Adrienne segir þau hjónin hafa komið nokkrum sinnum til Íslands en aldrei farið norður. Fannst þeim mjög merkilegt að sjá stöðu Há- skólans á Akureyri og Bændaskól- ans á Hólum. Segja þau að Kanada- menn geti tekið Ísland sér til fyrir- myndar um hvernig hægt sé að draga úr eða koma í veg fyrir fólks- flótta af landsbyggðinni. Fyrirtæki og stofnanir í háum gæðaflokki séu helsta aðdráttaraflið og segjast þau vera búin að fá sönnun þess að slíkt gæti gengið upp í Norður-Kanada. Adrienne var ánægð með að sjá hvernig þjóðin heldur stolt í ýmsar hefðir í þessu nútímalega landi. Fyrir norðan fengu þau að smakka íslenskan mat eins og svið, brodd og slátur en bæði eru þau mjög áhugasöm um matarvenjur. „Ísland er alveg einstakt í heiminum og þó höfum við hjónin ferðast mjög víða.“ Þau voru mjög heilluð af fuglalífinu og laxveiðiánum og töldu Íslendinga geta nýtt sér þær auðlindir betur þar sem fáir viti af þeim. ■ Breski athafnamaðurinn Marcus Evans: Davíð kynnt áform um Stöð 2 DAVÍÐ ODDSSON Hitti Evans ásamt ráðuneytisstjóra sínum. Blaðamannafundur starfsmanna Impregilo: Mínus í kladdann ATVINNUMÁL Á blaðamannafundi sem fyrrverandi starfsmenn Impregilo við Kárahnjúka héldu í Portúgal kom fram hörð gagnrýni á framkomu Íslendinga og Impregilo gagnvart portúgölsku verkamönn- unum. Kenna þeir aðallega Íslend- ingum um vondan hag sinn og fær landinn mínus í kladdann í fréttum. Víða var fjallað um málið í fjöl- miðlum landsins og var mikið gert úr fréttum af aðbúnaði og launa- kjörum Portúgalanna. Í yfirlýsingu frá Impregilo er tekið fram að margt af því sem fram hafi komið sé beinlínis rangt. ■ Ferð landstjóra Kanada um landið lokið: Fengu brodd, svið og slátur ADRIENNE CLARKSON OG JOHN RALSTON SAUL Hjónin voru heilluð af fallegu landi og stoltri þjóð. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M UNNIÐ HRATT Stjórn Eimskipafélagsins ætlar að funda ört og setja sig hratt inn í rekstur félagsins. Stjórn félagsins verður einnig stjórn allra dótturfélaga þess. JÖFNUN FLUTNINGSKOSTNAÐAR Ár Sement Olíuvörur Samtals 1998 157 565 722 1999 160 525 685 2000 188 496 684 2001 219 482 701 2002 156 549 705 Samtals 880 2.617 3.497 ALLAR TÖLUR Í MILLJÓNUM KRÓNA 6 MÁNAÐA SKILORÐ Maður var dæmdur í sex mánaða skilorðs- bundið fangelsi og til að greiða tólf milljón króna sekt, en sex mánaða fangelsi til vara, fyrir skattsvik í Héraðsdómi Reykja- víkur á mánudag. 30 MILLJÓNA KRÓNA SEKT Fram- kvæmdastjóri einkahlutafélags var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 30 milljóna króna sekt fyrir skattsvik í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Hann hafði skotið undan 15 milljónum króna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.