Fréttablaðið - 16.10.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 16.10.2003, Síða 6
6 16. október 2003 FIMMTUDAGUR GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 76,12 -0,30% Sterlingspund 127,36 0,45% Dönsk króna 11,98 0,06% Evra 88,97 0,03% Gengisvísitala krónu 126,03 0,43% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 391 Velta 4.954 milljón ICEX-15 1.870 0,81% Mestu viðskiptin Kaupþing Búnaðarb. 682.954.968 Pharmaco hf. 655.326.489 Íslandsbanki hf. 261.391.491 Mesta hækkun Sláturfélag Suðurlands svf. 10,00% SÍF hf. 3,37% Samherji hf. 3,33% Mesta lækkun Landssími Íslands hf. -4,07% Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. -3,03% Kögun hf. -2,67% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ* 9.821,7 0,1% Nasdaq* 1.950,8 0,4% FTSE 4.368,8 0,8% DAX 3.570,6 0,9% NK50 1.375,3 0,0% S&P* 1.050,0 0,1% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Átján þingmenn hafa lagt fram þings-ályktunartillögu um að banni við rjúpnaveiði verði hnekkt. Hvað heitir fyrsti flutningsmaður tillögunnar? 2Hvaða ríki neitaði að skrifa undirsamninginn um stækkun EES á þriðjudaginn? 3Hvað heitir tyrkneski leikmaðurinnsem veittist að David Beckham í landsleik um síðustu helgi? Svörin eru á bls. 39 Iceland Express flýgur tvisvar á dag til London og Kaupmannahafnar: Búist við fleiri ferðamönnum SAMGÖNGUR Iceland Express hefur ákveðið að fljúga tvisvar á dag alla daga til London og Kaup- mannahafnar frá og með 1. apríl næstkomandi. Flogið verður á morgnana og síðdegis. Jóhannes Georgsson, framkvæmdarstjóri Iceland Express, segir þessa tvö- földun á starfseminni vera til að mæta aukinni þörf. Farþegar eru fleiri en búist var við og sér í lagi hefur erlendum ferðamönnum fjölgað. Forsvarsmenn Iceland Ex- press gera ráð fyrir að farþegar verði 330.000 fyrsta árið sem flog- ið verður tvisvar á dag. Þeir horfa ekki síður til þess að erlendum ferðamönnum fjölgi. Iceland Ex- press segir ljóst að há fargjöld hafi til þessa haft heftandi áhrif á ferðalög til landsins. Opnað verð- ur fyrir sölu farmiða í sumaráætl- un Iceland Express í dag. ■ Bætur til farþega hækka um 100% Evrópuþingið mun á næstunni taka fyrir frumvarp sem kveður á um bætur til flugfarþega sem verða fyrir seinkunum. Gæti kostað flugfélög milljarða á ári. Íslensk flugfélög telja að þetta muni ekki hafa mikil áhrif. FLUGMÁL Nýtt lagafrumvarp um flugfélög sem fljúga á flugvelli inn- an Evrópusambandsins gæti kostað þau samtals á bilinu 5 til 13 millj- arða króna á ári verði það samþykkt á Evrópuþinginu. Lögin kveða á um bætur til far- þega sem verða fyrir seinkunum á ferðalagi til eða frá flugvöllum inn- an Evrópusambandsins. Bæturnar ná til seinkana vegna yfirbókana flugfélaga eða ýmissa annarra ástæðna sem rekja má til flugfélag- anna sjálfra. Farþegar sem verða fyrir seinkunum vegna veðurs, tæknimála eða verkfalla starfs- manna fá ekki bætur. Talið er lík- legt að lögin taki gildi árið 2005. Samkvæmt frumvarpinu verða bæturnar allt frá 22 þúsund krónum upp í 53 þúsund krónur. Upphæðin fer eftir lengd ferðalags hvers far- þega sem verður fyrir seinkun og því hversu mikil seinkunin er. Í dag eru hámarksbætur tæpar 27 þúsund krónur. Talið er að um 250 þúsund far- þegar verði fyrir seinkunum á hverju ári vegna yfirbókana flugfé- laga og samkvæmt því má áætla að flugfélög þurfi samtals að greiða 5 til 13 milljarða króna í bætur á ári samkvæmt nýja frumvarpinu. Talsmenn evrópskra flugfélaga telja að frumvarpið, verði það að lögum, geti orðið til þess að skekkja samkeppnisstöðu evrópskra flugfé- laga gagnvart öðrum flugfélögum. Líklegt sé að þau muni þurfa að hækka verð á flugmiðum, sem í mörgum tilfellum er lægra en bæt- urnar sem farþegarnir gætu fengið verði seinkun. Ólafur Hauksson, talsmaður Iceland Express, segir að langflest flugfélög hafi þá stefnu að yfirbóka í ferðir. Lággjaldaflugfélagið Ryan Air yfirbóki í um 5 til 7% af sínum ferðum. „Þetta klagar hins vegar ekkert upp á okkur vegna þess að við yfir- bókum ekki,“ segir Ólafur. Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, tekur undir orð Ólafs. „Þetta mun breyta mjög litlu fyr- ir okkur og okkar viðskiptavini,“ segir Guðjón. „Það helgast af því að í alþjóðlegum samanburði erum við mjög stundvíst félag og við höfum alla tíð farið mjög varlega í yfirbók- anir og það er aðallega á nokkrum Ameríkuleiðum sem það er gert.“ trausti@frettabladid.is Beruðu andlit sín: Reknar úr skóla í viku RIYADH, AP Að minnsta kosti 17 er- lendar unglingsstúlkur í austur- hluta Sádi-Arabíu voru reknar úr skóla í viku fyrir að taka slæðuna frá andliti sínu í skólabílnum. Strangar reglur gilda um klæða- burð kvenna í Sádi-Arabíu og ber þeim meðal annars að hylja andlit sitt, enda andstætt trú landsmanna að annar en eiginmaður eða fjöl- skyldumeðlimir berji konur augum. Skólastýra stúlknanna segist hafa komist upp um athæfið þegar hún framkvæmdi skyndiskoðun í skólabílnum. Foreldrar stúlknanna hafa mótmælt brottrekstrinum og hyggjast kæra. ■ EIMSKIP Greining Íslandsbanka mælir með sölu á hlutabréfum í Eimskipi. Eimskipafélagið: Miklar væntingar HLUTABRÉF Miklar væntingar um bætta afkomu eru í verði hluta- bréfa Eimskipafélagsins, að mati Greiningar Íslandsbanka. Mælt er með sölu bréfanna. Í greiningu á félaginu er talið til neikvæðra þátta að rekstrarafkoma hafi ver- ið óviðunandi. Þá séu ekki mikil vaxtartækifæri í sjávarútvegs- starfsemi og mikil samkeppni í flutningastarfsemi. Kjölfestufjárfesting Lands- bankans er talin til jákvæðra þátta og fyrirætlanir um að bæta rekstrarafkomu. Í greiningunni er talið líklegt að félaginu verði skipt upp og er það talið til já- kvæðra þátta. ■ EKKI UNDIR ÁTJÁN Unglingar undir átján ára aldri eiga síminnkandi atvinnumöguleika þar sem margir vinnustaðir ráða ekki fólk undir þessum aldri. Þetta snertir sérstaklega þá sem eru sautján ára. Þetta kom fram á fundi yfirmanna Vinnuskóla á höfuðborgarsvæðinu. Konukvöld í Debenhams: Allar fá gjöf KONUKVÖLD Tískusýning og snyrti- vörukynning eru meðal þess sem verður í boði á konukvöldi í Deb- enhams milli klukkan átta og tíu í kvöld. Boðið verður upp á léttar veitingar á staðnum og verða allar konur leystar út með gjöf í lok kvöldsins. Halldóra Geirharðs- dóttir og Ólafía Hrönn sjá um skemmtiatriði og kynningu. Þá mun fulltrúi frá Samhjálp kvenna taka á móti ávísun frá Deben- hams. ■ GUÐJÓN ARNGRÍMSSON Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að verði frumvarpið að lögum muni það hafa lítil áhrif á Icelandair. ÓLAFUR HAUKSSON Talsmaður Iceland Express segir að flugfélagið yfirbóki ekki í ferðir. ÁÆTLUNARFLUG ICELAND EXPRESS KYNNT Tuttugu starfsmenn verða ráðnir til Iceland Express vegna breytinganna. Tvær Boeing-737 þotur munu sinna fluginu. Sem fyrr sér breska flugfélagið Astraeus um flugreksturinn. LEIFSSTÖÐ Talið er að um 250 þúsund farþegar verði fyrir seinkunum á hverju ári á flugvöllum í Evrópu vegna yfirbókana flugfélaga. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M ■ Ungt fólk

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.