Fréttablaðið - 16.10.2003, Síða 8

Fréttablaðið - 16.10.2003, Síða 8
8 16. október 2003 FIMMTUDAGUR Óljóst stefna „Einnig er mjög óljóst í dag hvert ESB stefnir pólitískt séð – verður það hægrisinnað eða vinstrisinnað?“ Margrét K. Sverrisdóttir í Fréttablaðinu 15. októ- ber. Snjóflóðavarnir „Eitt sinn var ég á rölti í Dýra- firði og heyrði strandferðaskipið flauta með drunum úti á miðj- um firði. Samstundis hrundi snjóhengja og fjall missti höku- skeggið að mestu.“ Guðbergur Bergsson í DV 15. október. Neysluhlaðið hugtak „Fullnæging er orðið svo neyslu- hlaðið hugtak að það liggur við að hljómi eins og að fara í Kringluna og kaupa allt sem mann langar í.“ Elísabet Jökulsdóttir í Morgunblaðinu 15. október. Orðrétt Forstjóri Lýðheilsustöðvar: Valinn úr hópi 15 umsækjenda RÁÐNING Anna Elísabet Ólafsdótt- ir, matvæla- og næringarfræð- ingur, verður forstjóri Lýðheilsu- stöðvar frá og með næstu mán- aðamótum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá heilbrigðis- og tryggingamáláðuneytinu. Hún er skipuð til næstu fimm ára. Áður hafði Guðjón Magnússon læknir verið skipaður í stöðuna en hann óskaði eftir fimmtán mánaða leyfi þar sem hann tók við áhrifastöðu innan Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar. Heil- brigðisráðherra gat ekki orðið við ósk Guðjóns um svo langt leyfi og því var starfið auglýst að nýju. Fimmtán sóttu þá um starfið og mat hæfnisnefnd fjórtán af þeim hæfa. Nefndin ræddi ítar- lega við sjö af umsækjendunum og úrskurðaði að fjórir þeirra, þ.á.m. Anna Elísabet, væru hæfust. Anna Elísabet á að baki nám í matvæla- og næringar- fræði auk þess sem hún hefur lokið MBA-námi frá Háskóla Ís- lands. Hún gegndi síðast starfi verkefnastjóra hjá Pharmaco. Varaborgarfulltrúa ofbýður áhrifaleysi Steinunn Birna Ragnarsdóttir, varaborgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, segist hætt í borgarstjórn og menningarmálanefnd vegna ólýðræðislegra vinnubragða og ágreinings um stefnu. SVEITARSTJÓRNIR Steinunn Birna Ragnarsdóttir, varaborgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, hefur sagt af sér og hættir í menningarmála- nefnd borgarinnar og hverfisráði miðborgar. Steinunn Birna, sem sat fyrir Vinstri græna í 13. sæti R-listans í kosningunum 2002, segist ósátt við vinnubrögð og stefnu R-list- ans í menningarmálum. Steinunn Birna er ekki að hætta í Vinstri grænum. „Ákvörðunin er ekki tekin í fljótræði. Ég get ekki setið í borg- arstjórn sem vinnur gegn þeim hagsmunum sem ég hef beitt mér fyrir í mörg ár. Ég hef ekki getað unnið að menningarmálum borgarinnar á þann hátt sem ég hefði kosið,“ segir Steinunn Birna. Að sögn Steinunnar Birnu veg- ur þyngst niðurskurður borgar- innar til tónlistarskóla og túlkun borgarstjórnar á kjarasamingum við tónlistarkennara. Þó það sé réttlætismál að Reykjavíkurborg greiði ekki fyrir tónlistarnema annara sveitarfélaga hafi fram- kvæmdin verið ámælisverð. „Þetta hefur verið mjög einhliða og harkalegt. Börn voru skilin eft- ir úti í kuldanum án nokkurrar tryggingar fyrir áframhaldandi námi,“ segir hún. Reykjavíkurborg hefur að sögn Steinunnar Birnu, eitt sveit- arfélaga, túlkað ákvæði kjara- samninga um viðbótarkaup á vinnu tónlistarkennara kennurun- um í óhag. Tónlistarskólum hafi fjölgað án þess að heildarframlög til þeirra hafi aukist. „Þetta er óviðunandi virðingarleysi við tón- listarkennsluna í borginni,“ segir hún. Steinunn Birna segir stefnu borgarinnar í menningarmálum vera tvístígandi og óhnitmiðaða. „Borgarstjórn hlýtur að vera vett- vangur lýðræðislegrar umræðu þar sem mismunandi sjónarmið koma fram og niðurstaða er sam- hljómur þeirra. En stundum eru málin komin á leiðarenda í ákvarðanatöku áður en hin eigin- lega umræða á sér stað,“ segir Steinunn Birna, sem veltir því fyrir sér hvort ekki sé erfitt að viðhalda lýðræðislegri umræðu í kosningabandalagi á borð við R- listann þar sem fólk veigri sér við að opinbera ágreining. „Í stjórnmálum þarf að gera erfiðar málamiðlanir. En það er ekki hægt að ganga svo á eigin sannfæringu að maður sé kominn á skakk og skjön við þau mál sem umbjóðendur manns treysta manni til að vinna að,“ segir Stein- unn Birna. gar@frettabladid.is Hækkun afnotagjalda: Ákvörðun ekki tekin ALÞINGI Menntamálaráðuneytið hefur ekki tekið afstöðu til beiðni stjórnenda Ríkisútvarpsins um hækkun afnotagjalda til að mæta bágri fjárhagsstöðu stofnunarinn- ar. Tómas Ingi Olrich menntamála- ráðherra sagði við umræðu á þingi að hann vonaðist til að afstaða ráðuneytisins til þessa og annarra leiða til að leysa vanda RÚV lægi fyrir fljótlega. Þetta kom fram eftir fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um hvort létta ætti lífeyrisskuldbindingum af stofnuninni, en þær nema 2,6 millj- örðum króna. ■ Brotthvarf varaborgarfulltrúa: Engin áhrif á R-lista SVEITARSTJÓRNIR Stefán Jón Haf- stein, formaður menningarmála- nefndar Reykjavíkur, segist hafa fullvissu fyrir því að brotthvarf varaborgarfulltrúans Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur hafi engin áhrif á samstarf R-listans. „Reykjavíkurlistinn er ekki að vinna fyrir sérstaka hópa heldur borgarbúa í heild. Það eru marg- ir innan Vinstri grænna sem líta svo á að við berum miklu víðtæk- ari ábyrgð en bara fyrir einstaka hópa í borginni,“ segir Stefán Jón, sem sjálfur tilheyrir Sam- fylkingunni. Ármann Jakobsson mun taka sæti Steinunnar Birnu. ■ Stefán Jón Hafstein segir brotthvarf varaborgarfulltrúa afskaplega leiðinlegt: Ekki stýrt af sérhagsmunum SVEITARSTJÓRNIR „Mér þykir afskap- leg leiðinlegt að Steinunn Birna skuli vera hætt. Ef ég hefði verið spurður fyrir viku hver væri einn af mínum nánustu og bestu sam- starfsmönnum innan Reykjavík- urlistans þá hefði ég nefnt hennar nafn,“ segir Stefán Jón Hafstein, formaður menningarmálanefndar Reykjavíkur. Steinunn Birna Ragnarsdóttir tónlistarkennari hefur sagt sig úr menningarmálanefndinni. Stefán Jón segir þau hafa verið samstíga í mörgu. Hún hafi tekið að sér ýmis trúnaðarstörf að hans ósk, meðal annars stýrt starfshópi sem móti stefnu borgarinnar varðandi tónlistarfræðslu. „Það kemur mjög á óvart að hún skuli vilja víkja áður en sá hópur sem hún ber ábyrgð á skilar áliti,“ segir hann. Að sögn Stefáns hefur engri til- lögu frá Steinunni Birnu verið hafnað eða vísað frá. Hann hafi aldrei skynjað óánægju hjá henni með samstarfið: „Hins vegar hef ég skynjað það mjög sterkt að hún væri áhyggju- full yfir kjaramálum tónlistar- kennara sem hún var í forystu fyrir að berjast fyrir. Það er sér- stakt sérhagsmunamál þeirra sem hún tók skiljanlega mjög nærri sér. En þar hefur þurft að horfa á málið í víðu samhengi en ekki út frá sérhagsmunun tiltekinnar stéttar.“ ■ ANNA ELÍSABET ÓLAFSDÓTTIR Verður forstjóri Lýðheilsustöðvar. STEINUNN BIRNA RAGNARSDÓTTIR „Ég get ekki setið í borgarstjórn sem vinnur gegn þeim hagsmunum sem ég hef beitt mér fyrir í mörg ár,“ segir varaborgarfulltrúinn Steinunn Birna Ragnarsdóttir, sem hættir í borgarstjórn og menningarmálanefnd. Hún ætlar á hinn bóginn að starfa áfram í sínum flokki, Vinstri grænum. „Börn voru skilin eftir út í kuldanum. STEFÁN JÓN HAFSTEIN Formaður menningarmálanefndar segir engri tillögu frá Steinunni Birnu Ragnars- dóttur, varaformanni nefndarinnar, hafa verið hafnað eða vísað frá. Aldrei hafi hann skynjað óánægju hjá henni með samstarfið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A LD A LÓ A FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T DELTA-BÚÐIRNAR Lögmenn franskra sakborninga í Guant- anamo hafa biðlað til SÞ. Guantanamo: Leita ásjár hjá SÞ PARÍS, AP Lögmenn fjögurra manna sem Bandaríkjamenn hafa í haldi í herstöðinni við Guantanamo-flóa hafa leitað ásjár Sameinuðu þjóð- anna og vilja að samtökin beiti sér gegn því sem lögmennirnir kalla andlegar pyntingar á föngunum. Í bréfi til Sameinuðu þjóðanna segjast lögmennirnir ekki hafa fengið að hitta skjólstæðinga sína í hálft annað ár. Enn fremur hafi eng- in ákæra verið birt, tveimur árum eftir handtöku. Sex Frakkar eru meðal 660 fanga sem Bandaríkja- menn halda í Guantanmo vegna gruns um tengsl við hryðjuverka- samtökin Al Kaída. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.