Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.10.2003, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 16.10.2003, Qupperneq 12
12 16. október 2003 FIMMTUDAGUR ÁSTARJÁTNING BRESKA FLUGHERSINS Tyrkneskur ferðamaður fylgist hugfanginn með listflugi Rauðu örvanna, úrvalssveitar breska flughersins, yfir Dubai. Ekki fylgir sögunni hverjum hjartað var ætlað. Hundruð þúsunda íbúa Petropavlovsk á Kamtsjatka sitja í kuldanum: Vilja lögsækja borgarstjórann MOSKVA, AP Saksóknari í Petro- pavlovsk á Kamtsjatka hefur far- ið fram á það vð dómstóla að frið- helgi borgarstjórans verði aflétt svo unnt sé að sækja hann til saka fyrir afglöp. Hitakerfi borgarinn- ar er í molum og segir saksóknar- inn að borgarstjórinn hafi brugð- ist borgarbúum. Ekkert viðhald hafi verið á hitakerfi borgarinnar og nú þegar vetur sé að ganga í garð blasi við neyðarástand hjá stórum hluta 250.000 íbúa. Yfir- maður þjónustudeildar borgarinn- ar hefur þegar verið ákærður vegna málsins. Hitastigið í opinberum skrif- stofum, skólum, sjúkrahúsum og víðar hefur síðustu daga verið um og innan við 10 gráður á celsíus. Léleg húshitun er landlægt vandamál um allt Rússland og bjuggu yfir 350.000 heimili við litla sem enga húshitun síðasta vetur. Borgarstjórinn nýtur friðhelgi þar sem hann er jafnramt þing- maður héraðsins. Ákvörðunar dómara er að vænta innan 10 daga. ■ Vanvirðing við þingið Tveir þingmenn, stjórnar og stjórnarandstöðu, tókust á fyrir skemmstu á Alþingi um virðingu löggjafarsamkundunnar og hvernig þingmenn sýndu þingheimi vanvirðingu. Fréttablaðið ræddi við þá og fékk þá til að útlista þetta nánar. Hjálmar Árnason,þ i n g m a ð u r F r a m s ó k n a r - flokksins, vísar því á bug að hægt sé að lýsa því sem óvirð- ingu að þingmenn séu ekki staddir í þingsal meðan um- ræður fara fram. „Alþingi hefur lagt sjónvarp í öll húsakynni Alþingis. Það er mjög algengt að þingmenn sitji til dæmis á skrifstofum sínum, undirbúi mál og fylgist með umræðum. Megin- reglan er að þingmenn viðkom- andi nefnda standa vaktina. Þar að auki geta komið upp ýmsar ástæður fyrir því að menn séu ekki í salnum. Ég geri ekki at- hugasemdir við það ef Magnús Þór hefur ekki verið viðstaddur hverja mínútu þingfunda þann stutta tíma sem hann hefur verið á þingi.“ „Alvarlegust finnst mér þó sú heimskulega yfirlýsing (Magnús- ar Þórs) sem birtist í Frétta- blaðinu í tilefni ferðar sjávarút- vegsnefndar að hann vildi ekki sitja hand- járnaður í fyllerís- veislu á vegum LÍÚ. Ég tók það mjög alvar- lega þegar hann lýsti þessu svona,“ segir Hjálmar og bætir við að ferðin hafi hvorki verið á vegum né skipulögð af LÍÚ. Slík- ar ferðir séu hins vegar mikilvægur þáttur í starfi þings- ins. „Ég tel að Magnús Þór sé með svona fáránlegum yfir- lýsingum að skaða þingnefnd og Al- þingi í heild sinni og jafnvel koma í veg fyrir að þing- nefndir geti sinnt þessu mikilvæga og skemmtilega starfi. Magnús Þór er í einhverjum misskildum popúl- isma að grafa und- an virðingu Al- þingis.“ ■ Stjórnarliðar eru af-skaplega lítið við í þingsalnum og nánast alveg fjarverandi þeg- ar verið er að tala um mál sem þeim henta ekki,“ segir Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjáls- lynda flokksins, og er ekki alls kostar sáttur. „Það er eftirtektarvert fyrir mig sem nýjan þingmann að alltaf þegar er verið að skamma stjórnarliða hlaupa þeir úr þingsalnum.“ Magnúsi þyk- ir brotthlaup stjórnarliða úr þingsölum og fjarvera þeirra þegar verið er að ræða alvar- leg mál lítils- virðing við þing- ið. „Mér finnst þetta mjög und- arlegt. Það eru 18 nýir þing- menn og margir þeirra tilheyra þess- um tveimur stjórnar- flokkum. Þeir hefðu haft gott af því að vera í þingsalnum og læra af því sem fer fram.“ Gagnrýni hans á skipulag ferðar sjáv- arútvegsnefndar fór fyrir brjóstið á sum- um, sérstaklega þeg- ar hann sagðist lít- inn áhuga hafa á að drekka í boði LÍÚ. „Ég er alveg ósam- mála því að ég sé að sýna þinginu og þingmönnum einhverja lítilsvirðingu. Ég er að kvarta undan því að mér eldri og reyndari þingmenn séu að sýna þinginu lítilsvirðingu. Ráðherrar sjást ekki í þinginu dögum sam- an. Mér finnst það alveg með ólíkindum. Til hvers er verið að borga þeim þingfararkaup ef þeir eru aldrei í þinginu? Af hverju ekki að gera eins og í ná- grannalöndunum þar sem þing- menn hætta á þingi þegar þeir verða ráðherrar?“ ■ Barnalög: Mistökin leiðrétt ALÞINGI Samkvæmt barnalögum sem Alþingi samþykkti síðasta vor ber að beita lögunum í dóms- málum sem höfðuð hafa verið frá síðustu áramótum. Þó er það svo að lögin eiga ekki að taka gildi fyrr en um næstu mánaðamót. Ástæðan er sú að mistök voru gerð við meðferð frumvarpsins og láðist að breyta dagsetningum um lagaskil til samræmis við gild- istökuákvæði. Til að ráða bót á þessu hefur allsherjarnefnd lagt fram lagafrumvarp sem er tvær línur, annars vegar um breytta dagsetningu, hins vegar um að lögin taki þegar gildi. ■ Misskilinn popúlismi Flýja úr þingsal HJÁLMAR ÁRNASON „Vill Magnús taka niður öll sjónvörpin og fara einhverja áratugi aftur í tímann?“ MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON Það er lágmark að menn séu í salnum til að verjast þegar að þeim er sótt. Virðing Alþingis VIRÐING ■ Hjálmar Árnason segir fram- göngu Magnúsar Þórs Hafsteins- sonar skaða virðingu þingsins. ÓVIRÐING ■ Magnús Þór Hafsteinsson segir þingmenn skaða virðingu Alþingis með því að hlusta ekki á umræður. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON Fullkomlega eðlilegt að reikna þátttöku Ís- lands í borgaralegri friðargæslu. Þróunaraðstoð: Fullkomlega eðlilegt STJÓRNMÁL „Það er fullkomlega eðlilegt að reikna þátttöku Íslands í borgaralegri friðargæslu sem framlag til þróunaraðstoðar,“ seg- ir Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra í svari við fyrirspurn Þórunnar Sveinbjarnardóttur, þingmanns Samfylkingar, um hvernig hann rökstyðji slíkt. Halldór segir borgaralega frið- argæslu forsendu þess að hefð- bundin þróunaraðstoð geti átt sér stað. „Þróunarríki eru mörg hver stríðshrjáð. Stríðsátök ala á fá- tækt, hamla þróun og koma í veg fyrir að aðstoð nái til þeirra er minnst mega sín.“ ■ PETROPAVLOVSK Hitakerfi borgarinnar er í rúst og mega borgarbúar sitja í hrollköldum húsum sín- um. Saksóknari vill létta friðhelgi af borgar- stjóranum svo unnt sé að sækja hann til saka vegna þessa. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M NORÐURÁL Hagnaðist um 870 milljónir króna. Hagnaðaraukning hjá Norðuráli: Álverð hærra en í fyrra UPPGJÖR Hagnaður Norðuráls í Hvalfirði nam 870 milljónum króna fyrstu níu mánuði ársins. Uppgjör fyrirtækisins er í dollur- um og var hagnaðurinn 11,4 milljónir dollara samanborið við 8,8 milljónir dollara fyrir sama tímabil í fyrra. Meðalverð áls í dollurum var tæpum 4% hærra í ár en í fyrra. Á móti kemur að dollarinn hefur veikst gagnvart krónu, en launakostnaður fyrir- tækisins er í íslenskum krónum. Álframleiðsla Norðuráls var 67 þúsund tonn, sem er sama magn og í fyrra. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Freysteinn Sigurðsson: Náttúruvernd er landnýting NÁTTÚRUVERND „Við fögnum því að fyrsta náttúruverndaráætlunin sé loks komin á koppinn,“ sagði Freysteinn Sigurðsson, jarð- fræðingur og stjórnarmaður í Landvernd, um drög umhverfis- ráðherra að náttúruverndar- áætlun næstu fimm árin. „Það er afar merkilegur áfangi að þessi áætlun hafi loks litið dagsins ljós og að okkar mati hefur tekist mjög bærilega til. Gögn um náttúru hér á landi eru af skornari skammti en hjá þjóðum í kringum okkur. Við erum í verri aðstöðu hvað það varðar en á móti kemur að við höfum mun meira svigrúm til að vernda náttúruna.“ Freysteinn bendir á að nátt- úruvernd sé ein tegund af land- nýtingu og tímabært sé að aðrir aðilar er starfa við nýtingu landsins komi með sambærileg- ar tillögur. „Þá fyrst fengist sú heildarmynd sem til þarf þannig að hver geiri fái sinn sanngjarna hlut.“ ■ FREYSTEINN SIGURÐSSON Íslendingar hafa meira svigrúm til að vernda náttúruna en margar aðrar þjóðir. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T STÁLU MÁLVERKUM Tilkynnt var til lögreglunnar í Reykjavík um innbrot í geymslu í kjallara í Rimahverfi þar sem fjórum mál- verkum var stolið, þar af þrem- ur olíumálverkum. Ekki er ljóst hvenær innbrotið átti sér stað þar sem ekki hefur verið farið inn í geymsluna síðan í júlí. VINNUSLYS Tönn á gröfu lenti á fæti rúmlega tvítugs manns við Lindarbraut á Seltjarnarnesi í gær. Hann var fluttur á slysadeild. RÆNDI SJÁLFSALA Farið var inn í fyrirtæki á Seljavegi í Reykjavík í fyrrinótt. Þar voru brotnir upp þrír sjálfsalar og peningum stolið úr þeim. ■ Lögreglufréttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.